← Numbers (3/36) → |
1. | Þessir voru niðjar Arons og Móse, þá er Drottinn talaði við Móse á Sínaífjalli. |
2. | Þessi voru nöfn Arons sona: Nadab frumgetinn og Abíhú, Eleasar og Ítamar. |
3. | Þessi voru nöfn Arons sona, hinna smurðu presta, sem vígðir voru til prestsþjónustu, |
4. | en þeir Nadab og Abíhú dóu fyrir augliti Drottins, þá er þeir báru óvígðan eld fram fyrir Drottin í Sínaí-eyðimörk; en þeir áttu enga sonu. Þeir Eleasar og Ítamar þjónuðu því í prestsembætti frammi fyrir Aroni, föður sínum. |
5. | Drottinn talaði við Móse og sagði: |
6. | ,,Lát þú ættkvísl Leví koma og leið þú hana fyrir Aron prest, að þeir þjóni honum. |
7. | Þeir skulu annast það, sem annast þarf fyrir hann, og það, sem annast þarf fyrir allan söfnuðinn fyrir framan samfundatjaldið, og gegna þjónustu í búðinni. |
8. | Og þeir skulu sjá um öll áhöld samfundatjaldsins og það, sem annast þarf fyrir Ísraelsmenn, og gegna þjónustu í búðinni. |
9. | Og þú skalt gefa levítana Aroni og sonum hans. Þeir eru honum gefnir af Ísraelsmönnum til fullkominnar eignar. |
10. | En Aron og sonu hans skalt þú setja til þess að annast prestsembætti, og komi óvígður maður þar nærri, skal hann líflátinn verða.`` |
11. | Drottinn talaði við Móse og sagði: |
12. | ,,Sjá, ég hefi tekið levítana af Ísraelsmönnum í stað allra frumburða Ísraelsmanna, þá er opna móðurlíf, og skulu levítarnir vera mín eign. |
13. | Því að ég á alla frumburði. Á þeim degi, er ég laust alla frumburði í Egyptalandi, helgaði ég mér alla frumburði í Ísrael, bæði menn og skepnur. Mínir skulu þeir vera. Ég er Drottinn.`` |
14. | Drottinn talaði við Móse í Sínaí-eyðimörk og sagði: |
15. | ,,Tel þú sonu Leví eftir ættum þeirra og kynkvíslum. Alla karlmenn mánaðargamla og þaðan af eldri skalt þú telja.`` |
16. | Og Móse taldi þá að boði Drottins, eins og fyrir hann var lagt. |
17. | Þessir voru synir Leví eftir nöfnum þeirra: Gerson, Kahat og Merarí. |
18. | Þessi eru nöfn Gersons sona eftir kynkvíslum þeirra: Libní og Símeí. |
19. | Synir Kahats eftir kynkvíslum þeirra: Amram og Jísehar, Hebron og Ússíel. |
20. | Synir Merarí eftir kynkvíslum þeirra: Mahelí og Músí. Þessar eru kynkvíslir Leví eftir ættum þeirra. |
21. | Til Gersons telst kynkvísl Libníta og kynkvísl Símeíta. Þessar eru kynkvíslir Gersóníta. |
22. | Þeir er taldir voru af þeim _ eftir tölu á öllum karlkyns, mánaðargömlum og þaðan af eldri _ þeir er taldir voru af þeim, voru 7.500. |
23. | Kynkvíslir Gersóníta tjölduðu að baki búðarinnar, að vestanverðu. |
24. | Og höfuðsmaður yfir ætt Gersóníta var Eljasaf Laelsson. |
25. | Það sem Gersons synir áttu að annast í samfundatjaldinu, var búðin og tjaldið, þakið á því og dúkbreiðan fyrir dyrum samfundatjaldsins, |
26. | forgarðstjöldin og dúkbreiðan fyrir dyrum forgarðsins, sem liggur allt í kringum búðina og altarið, og stögin, sem þar til heyra _ allt sem að því þurfti að þjóna. |
27. | Til Kahats telst kynkvísl Amramíta, kynkvísl Jíseharíta, kynkvísl Hebróníta og kynkvísl Ússíelíta. Þessar eru kynkvíslir Kahatíta. |
28. | Eftir tölu á öllum karlkyns, mánaðargömlum og þaðan af eldri, voru þeir 8.600 og höfðu á hendi að annast helgidóminn. |
29. | Kynkvíslir Kahats sona tjölduðu á hlið við búðina, að sunnanverðu. |
30. | Og ætthöfðingi yfir kynkvíslum Kahatíta var Elísafan Ússíelsson. |
31. | Það sem þeir áttu að annast, var örkin, borðið, ljósastikan, ölturun og hin helgu áhöld, er þeir hafa við þjónustugjörðina, og dúkbreiðan og allt, sem að því þurfti að þjóna. |
32. | Höfðingi yfir höfðingjum levítanna var Eleasar Aronsson prests. Hann hafði umsjón yfir þeim, er höfðu á hendi að annast helgidóminn. |
33. | Til Merarí telst kynkvísl Mahelíta og kynkvísl Músíta. Þessar eru kynkvíslir Merarí. |
34. | Og þeir er taldir voru af þeim, eftir tölu á öllum karlkyns, mánaðargömlum og þaðan af eldri, voru 6.200. |
35. | Ætthöfðingi yfir kynkvíslum Merarí var Súríel Abíhaílsson. Tjölduðu þeir á hlið við búðina, að norðanverðu. |
36. | Merarí sonum var falin hirðing á þiljuborðum búðarinnar, á slám hennar, stólpum og undirstöðum og öllum áhöldum hennar, og allt sem að því þurfti að þjóna, |
37. | á stólpum forgarðsins allt í kring og undirstöðum þeirra, hælum og stögum. |
38. | Fyrir framan búðina, að austanverðu, fyrir framan samfundatjaldið, móti upprás sólar, tjölduðu þeir Móse og Aron og synir hans, og höfðu á hendi að annast helgidóminn, það er annast þurfti fyrir Ísraelsmenn. En komi óvígður maður þar nærri, skal hann líflátinn verða. |
39. | Allir þeir er taldir voru af levítunum, sem þeir Móse og Aron töldu eftir boði Drottins, eftir kynkvíslum þeirra _ allir karlkyns, mánaðargamlir og þaðan af eldri, voru 22.000. |
40. | Drottinn sagði við Móse: ,,Tel þú alla frumburði karlkyns meðal Ísraelsmanna, mánaðargamla og þaðan af eldri, og haf þú tölu á nöfnum þeirra. |
41. | Og þú skalt taka levítana mér til handa _ ég er Drottinn _ í stað allra frumburða meðal Ísraelsmanna, og fénað levítanna í stað allra frumburða af fénaði Ísraelsmanna.`` |
42. | Móse taldi, svo sem Drottinn hafði boðið honum, alla frumburði meðal Ísraelsmanna. |
43. | Og allir frumburðir karlkyns, eftir nafnatölu, mánaðargamlir og þaðan af eldri, þeir er taldir voru af þeim, voru 22.273. |
44. | Drottinn talaði við Móse og sagði: |
45. | ,,Tak þú levítana í stað allra frumburða meðal Ísraelsmanna og fénað levítanna í stað fénaðar þeirra, og skulu levítarnir vera mín eign. Ég er Drottinn. |
46. | Og að því er snertir lausnargjald þeirra tvö hundruð sjötíu og þriggja, þeirra af frumburðum Ísraelsmanna, sem umfram eru levítana, |
47. | þá skalt þú taka fimm sikla fyrir hvert höfuð. Eftir helgidómssikli skalt þú taka, tuttugu gerur í sikli. |
48. | Og þú skalt fá Aroni og sonum hans féð til lausnar þeim, sem umfram eru meðal þeirra.`` |
49. | Og Móse tók lausnargjaldið af þeim, er umfram voru þá, er leystir voru fyrir levítana. |
50. | Tók hann féð af frumburðum Ísraelsmanna, eitt þúsund þrjú hundruð sextíu og fimm sikla, eftir helgidóms sikli.Og Móse seldi lausnargjaldið Aroni og sonum hans í hendur eftir boði Drottins, svo sem Drottinn hafði boðið Móse. |
51. | Og Móse seldi lausnargjaldið Aroni og sonum hans í hendur eftir boði Drottins, svo sem Drottinn hafði boðið Móse. |
← Numbers (3/36) → |