← Numbers (29/36) → |
1. | Í sjöunda mánuðinum, á fyrsta degi mánaðarins, skuluð þér halda helga samkomu. Eigi skuluð þér þá vinna neina stritvinnu. Þann dag skal blásið í básúnur hjá yður. |
2. | Í brennifórn til þægilegs ilms fyrir Drottin skuluð þér þá fórna einu ungneyti, einum hrút og sjö veturgömlum sauðkindum gallalausum. |
3. | Og í matfórn með þeim fínt mjöl blandað við olíu, þrjá tíundu parta með nautinu, tvo tíundu parta með hrútnum, |
4. | og einn tíunda part með hverri þeirra sjö sauðkinda. |
5. | Enn fremur einn geithafur í syndafórn til þess að friðþægja fyrir yður, _ |
6. | auk tunglkomu-brennifórnarinnar og matfórnarinnar, er henni fylgir, og hinnar stöðugu brennifórnar og matfórnarinnar, er henni fylgir, og dreypifórnanna, er þeim fylgja, að réttum sið _ til þægilegs ilms, sem eldfórn Drottni til handa. |
7. | Tíunda daginn í þessum sama sjöunda mánuði skuluð þér halda helga samkomu og fasta. Þá skuluð þér ekkert verk vinna. |
8. | En í brennifórn skuluð þér færa Drottni til þægilegs ilms eitt ungneyti, einn hrút og sjö sauðkindur veturgamlar. Skuluð þér hafa þær gallalausar. |
9. | Og í matfórn með þeim fínt mjöl blandað við olíu, þrjá tíundu parta með nautinu, tvo tíundu parta með hrútnum, |
10. | einn tíunda part með hverri þeirra sjö sauðkinda. |
11. | Enn fremur einn geithafur í syndafórn, auk syndafórnar til friðþægingar, og stöðugu brennifórnarinnar og matfórnarinnar, er henni fylgir, og dreypifórnanna, er þeim fylgja. |
12. | Á fimmtánda degi hins sjöunda mánaðar skuluð þér halda helga samkomu. Eigi skuluð þér þá vinna neina stritvinnu, heldur halda Drottni hátíð í sjö daga. |
13. | Þér skuluð færa í brennifórn, í eldfórn þægilegs ilms Drottni til handa, þrettán ungneyti, tvo hrúta og fjórtán sauðkindur veturgamlar. Skulu þær vera gallalausar. |
14. | Og í matfórn með þeim fínt mjöl olíublandað, þrjá tíundu parta með hverju þeirra þrettán nauta, tvo tíundu parta með hvorum þeirra tveggja hrúta |
15. | og einn tíunda part með hverri þeirra fjórtán sauðkinda. |
16. | Enn fremur einn geithafur í syndafórn, auk stöðugu brennifórnarinnar og matfórnarinnar og dreypifórnarinnar, er henni fylgja. |
17. | Annan daginn tólf ungneyti, tvo hrúta og fjórtán veturgamlar sauðkindur gallalausar, |
18. | og matfórn og dreypifórnir með nautunum, hrútunum og sauðkindunum, eftir tölu þeirra, að réttum sið. |
19. | Enn fremur einn geithafur í syndafórn, auk stöðugu brennifórnarinnar og matfórnarinnar, er henni fylgir, og dreypifórnanna, er þeim fylgja. |
20. | Þriðja daginn ellefu naut, tvo hrúta og fjórtán veturgamlar sauðkindur gallalausar, |
21. | og matfórn og dreypifórnir með nautunum, hrútunum og sauðkindunum, eftir tölu þeirra, að réttum sið. |
22. | Enn fremur einn hafur í syndafórn, auk stöðugu brennifórnarinnar og matfórnarinnar og dreypifórnarinnar, er henni fylgja. |
23. | Fjórða daginn tíu naut, tvo hrúta og fjórtán veturgamlar sauðkindur gallalausar, |
24. | matfórn og dreypifórnir með nautunum, hrútunum og sauðkindunum, eftir tölu þeirra, að réttum sið. |
25. | Enn fremur einn geithafur í syndafórn, auk stöðugu brennifórnarinnar og matfórnarinnar og dreypifórnarinnar, er henni fylgja. |
26. | Fimmta daginn níu naut, tvo hrúta og fjórtán veturgamlar sauðkindur gallalausar, |
27. | og matfórn og dreypifórnir með nautunum, hrútunum og sauðkindunum, eftir tölu þeirra, að réttum sið. |
28. | Enn fremur einn hafur í syndafórn, auk stöðugu brennifórnarinnar og matfórnarinnar og dreypifórnarinnar, er henni fylgja. |
29. | Sjötta daginn átta naut, tvo hrúta og fjórtán veturgamlar sauðkindur gallalausar, |
30. | og matfórn og dreypifórnir með nautunum, hrútunum og sauðkindunum, eftir tölu þeirra, að réttum sið. |
31. | Enn fremur einn hafur í syndafórn, auk stöðugu brennifórnarinnar og matfórnarinnar og dreypifórnanna, er henni fylgja. |
32. | Sjöunda daginn sjö naut, tvo hrúta og fjórtán veturgamlar sauðkindur gallalausar, |
33. | og matfórn og dreypifórnir með nautunum, hrútunum og sauðkindunum, eftir tölu þeirra, að réttum sið. |
34. | Enn fremur einn hafur í syndafórn, auk stöðugu brennifórnarinnar og matfórnarinnar og dreypifórnarinnar, er henni fylgja. |
35. | Áttunda daginn skuluð þér halda hátíðastefnu. Eigi skuluð þér vinna neina stritvinnu. |
36. | Og þér skuluð færa í brennifórn, í eldfórn þægilegs ilms Drottni til handa, eitt naut, einn hrút og sjö veturgamlar sauðkindur gallalausar, |
37. | matfórn og dreypifórnir með nautinu, hrútnum og sauðkindunum, eftir tölu þeirra, að réttum sið. |
38. | Enn fremur einn hafur í syndafórn, auk stöðugu brennifórnarinnar og matfórnarinnar og dreypifórnarinnar, er henni fylgja. |
39. | Þessu skuluð þér fórna Drottni á löghátíðum yðar, auk heitfórna yðar og sjálfviljafórna, hvort heldur eru brennifórnir, matfórnir, dreypifórnir eða heillafórnir.``Og Móse lagði að öllu leyti svo fyrir Ísraelsmenn sem Drottinn hafði boðið honum. |
40. | Og Móse lagði að öllu leyti svo fyrir Ísraelsmenn sem Drottinn hafði boðið honum. |
← Numbers (29/36) → |