← Nehemiah (3/13) → |
1. | Þá tóku þeir sig til, Eljasíb æðsti prestur og bræður hans, prestarnir, og reistu Sauðahliðið _ vígðu þeir það og settu hurðirnar í það _ og allt að Hammeaturni _ hann vígðu þeir _ allt að Hananelturni. |
2. | Næstir honum byggðu Jeríkómenn, og næstur þeim byggði Sakkúr Imríson. |
3. | Fiskhliðið byggðu Senaamenn. Þeir gjörðu þar dyraumbúnað og settu hurðirnar í það, lokurnar og slagbrandana. |
4. | Næstur þeim hlóð upp Meremót Úríason, Hakkóssonar. Næstur honum hlóð upp Mesúllam Berekíason, Mesesabeelssonar. Næstur honum hlóð upp Sadók Baanason. |
5. | Næstir honum hlóðu upp Tekóamenn, en göfugmenni þeirra beygðu ekki háls sinn undir þjónustu herra síns. |
6. | Við gamla hliðið gjörðu þeir Jójada Paseason og Mesúllam Besódíason. Þeir gjörðu þar dyraumbúnað og settu hurðirnar í það, lokurnar og slagbrandana. |
7. | Næstir þeim hlóðu upp Melatja Gíbeoníti og Jadón Merónótíti og meðal þeirra menn frá Gíbeon og Mispa, sem lutu hástól landstjórans í héraðinu hinumegin Fljóts. |
8. | Næstur þeim hlóð upp Ússíel Harhajason og með honum gullsmiðirnir. Næstur honum hlóð upp Hananja, einn af smyrslasölunum. Og þeir steinlögðu Jerúsalem allt að breiða múrnum. |
9. | Næstur honum hlóð upp Refaja Húrsson, höfðingi yfir hálfu héraðinu kringum Jerúsalem. |
10. | Næstur honum hlóð upp Jedaja Harúmafsson, og það gegnt húsi sínu. Næstur honum hlóð upp Hattús Hasabnejason. |
11. | Annan part hlóðu upp þeir Malkía Harímsson og Hasúb Pahat Móabsson, svo og baksturofnsturninn. |
12. | Næstur þeim hlóð upp Sallúm Hallóhesson, höfðingi yfir hinum helming héraðsins kringum Jerúsalem _ hann og dætur hans. |
13. | Við Dalshliðið gjörði Hanún og Sanóabúar _ þeir byggðu það og settu hurðirnar í það, lokurnar og slagbrandana _ og þúsund álnir af múrnum, allt að Mykjuhliðinu. |
14. | Við Mykjuhliðið gjörði Malkía Rekabsson, höfðingi yfir Bet Keremhéraði _ hann byggði það og setti hurðirnar í það, lokurnar og slagbrandana. |
15. | Við Lindarhliðið gjörði Sallún Kol Hóseson, höfðingi yfir Mispahéraði _ hann byggði það, gjörði þak á það, setti hurðirnar í það, lokurnar og slagbrandana _, enn fremur múrinn hjá vatnsveitutjörninni að Kóngsgarðinum og allt að tröppunum, er liggja niður frá Davíðsborg. |
16. | Næstur á eftir honum hlóð upp Nehemía Asbúksson, höfðingi yfir hálfu Bet Súrhéraði, þar til komið var gegnt gröfum Davíðs og að tilbúnu tjörninni og kappahúsinu. |
17. | Næstir á eftir honum hlóðu upp levítarnir, og var Rehúm Baníson fyrir þeim. Næstur þeim hlóð upp Hasabja, höfðingi yfir hálfu Kegíluhéraði, fyrir sitt hérað. |
18. | Næstir á eftir honum hlóðu upp bræður þeirra og fyrir þeim Bavvaí Henadadsson, höfðingi yfir hinum helming Kegíluhéraðs. |
19. | Næstur þeim hlóð upp Eser Jesúason, höfðingi yfir Mispa, annan part, gegnt þar sem gengið er upp í vopnabúrið á horninu. |
20. | Næstur á eftir honum, upp fjallið, hlóð upp Barúk Sabbaíson, annan part, frá horninu að dyrunum á húsi Eljasíbs æðsta prests. |
21. | Næstur á eftir honum hlóð upp Meremót Úríason, Hakkóssonar, annan part, frá dyrunum á húsi Eljasíbs að endanum á húsi Eljasíbs. |
22. | Næstir á eftir honum hlóðu upp prestarnir, menn þar úr grenndinni. |
23. | Næstir á eftir þeim hlóðu upp þeir Benjamín og Hassúb, gegnt húsi sínu. Næstur á eftir þeim hlóð upp Asarja Maasejason, Ananjasonar, hjá húsi sínu. |
24. | Næstur á eftir honum hlóð upp Binnúí Henadadsson, annan part, frá húsi Asarja að horninu, þar að sem múrinn beygir við. |
25. | Palal Úsaíson gegnt horninu og efri turninum, sem gengur út úr höll konungs og heyrir til varðgarðsins. Næstur á eftir honum Pedaja Parósson. |
26. | En musterisþjónarnir bjuggu í Ófel, austur á móts við Vatnshliðið og turninn, er þar gengur fram. |
27. | Næstir á eftir honum hlóðu upp Tekóamenn, annan part, gegnt stóra turninum, er þar gekk fram, allt að Ófelmúrnum. |
28. | Fyrir ofan Hrossahliðið hlóðu prestarnir upp hver gegnt húsi sínu. |
29. | Næstur á eftir þeim hlóð upp Sadók Immersson gegnt húsi sínu. Næstur á eftir honum hlóð upp Semaja Sekanjason, vörður Austurhliðsins. |
30. | Næstir á eftir honum hlóðu upp þeir Hananja Selemjason og Hanún, sjötti sonur Salafs, annan part. Næstur á eftir þeim hlóð upp Mesúllam Berekíason, gegnt klefa sínum. |
31. | Næstur á eftir honum hlóð upp Malkía, einn af gullsmiðunum, allt að húsi musterisþjónanna, og kaupmennirnir gegnt Mífkaðhliðinu og allt að hornsvölunum.Og milli hornsvalanna og Sauðahliðsins hlóðu gullsmiðirnir og kaupmennirnir. |
32. | Og milli hornsvalanna og Sauðahliðsins hlóðu gullsmiðirnir og kaupmennirnir. |
← Nehemiah (3/13) → |