← Nehemiah (11/13) → |
1. | Höfðingjar lýðsins settust að í Jerúsalem, en hinir af lýðnum vörpuðu hlutkesti til þess að flytja einn af hverjum tíu inn, að hann tæki sér bústað í Jerúsalem, borginni helgu, en hinir níu tíundupartarnir bjuggu í borgunum. |
2. | Og lýðurinn blessaði alla þá menn, sem sjálfviljuglega réðu af að búa í Jerúsalem. |
3. | Þessir eru höfðingjar skattlandsins, þeir er bjuggu í Jerúsalem og í Júdaborgum _ þeir bjuggu í borgum sínum, hver á eign sinni: Ísrael, prestarnir, levítarnir, musterisþjónarnir og niðjar þræla Salómons. |
4. | Í Jerúsalem bjuggu bæði Júdamenn og Benjamínítar. Af Júdamönnum: Ataja Ússíason, Sakaríasonar, Amarjasonar, Sefatjasonar, Mahalaleelssonar, af niðjum Peres, |
5. | og Maaseja Barúksson, Kol-Hósesonar, Hasajasonar, Adajasonar, Jójaríbssonar, Sakaríasonar, sonar Sílónítans. |
6. | Allir niðjar Peres, þeir er bjuggu í Jerúsalem, voru samtals 468 vopnfærir menn. |
7. | Af Benjamínítum: Sallú Mesúllamsson, Jóedssonar, Pedajasonar, Kólajasonar, Maasejasonar, Ítíelssonar, Jesajasonar, |
8. | og eftir honum Gabbaí Sallaí, samtals 928. |
9. | Jóel Síkríson var yfirmaður þeirra, og Júda Hasnúason var annar maður æðstur yfir borginni. |
10. | Af prestunum: Jedaja, Jójaríb, Jakín, |
11. | Seraja Hilkíason, Mesúllamssonar, Sadókssonar, Merajótssonar, Ahítúbssonar, höfuðsmaður yfir musteri Guðs, |
12. | og bræður þeirra, sem önnuðust störfin við musterið, samtals 822, og Adaja Jeróhamsson, Pelaljasonar, Amsísonar, Sakaríasonar, Pashúrssonar, Malkíasonar, |
13. | og bræður hans, ætthöfðingjar, samtals 242, og Amassaí Asareelsson, Ahsaísonar, Mesillemótssonar, Immerssonar, |
14. | og bræður þeirra, dugandi menn, samtals 128. Yfirmaður þeirra var Sabdíel Haggedólímsson. |
15. | Af levítunum: Semaja Hassúbsson, Asríkamssonar, Hasabjasonar, Búnnísonar, |
16. | og Sabtaí og Jósabad, sem settir voru yfir utanhússverkin við musteri Guðs og báðir af flokki levítahöfðingjanna, |
17. | og Mattanja Míkason, Sabdísonar, Asafssonar, forsöngvarinn, sá er byrjaði lofsönginn við bænagjörðina, og Bakbúkja, annar maður æðstur af bræðrum hans, og Abda Sammúason, Galalssonar, Jedútúnssonar, |
18. | allir levítarnir í borginni helgu samtals 284. |
19. | Hliðverðirnir: Akkúb, Talmón og bræður þeirra, þeir er héldu vörð við hliðin, samtals 172. |
20. | Aðrir Ísraelsmenn, prestarnir og levítarnir, bjuggu í öllum hinum borgum Júda, hver á eign sinni. |
21. | Musterisþjónarnir bjuggu á Ófel, og Síha og Gispa voru settir yfir musterisþjónana. |
22. | Yfirmaður levítanna í Jerúsalem var Ússí Baníson, Hasabjasonar, Mattanjasonar, Míkasonar, af niðjum Asafs, söngvurunum við þjónustuna í musteri Guðs. |
23. | Því að konungleg skipun hafði verið gefin út um þá, og var visst gjald ákveðið handa söngvurunum, það er þeir þurftu með á degi hverjum. |
24. | Petaja Mesesabeelsson, einn af niðjum Sera Júdasonar, var umboðsmaður konungsins í öllu því, er lýðinn varðaði. |
25. | Að því er snertir þorpin í sveitum þeirra, þá bjuggu nokkrir af Júdamönnum í Kirjat Arba og smáborgunum þar í kring, í Díbon og smáborgunum þar í kring, í Jekabeel og þorpunum þar í kring, |
26. | í Jesúa, í Mólada, í Bet Pelet, |
27. | í Hasar Súal og í Beerseba og smáborgunum þar í kring, |
28. | í Siklag og í Mekóna og smáborgunum þar í kring, |
29. | í En Rimmon, í Sorea, í Jarmút, |
30. | Sanóa, Adúllam og þorpunum þar í kring, í Lakís og sveitunum þar í kring, í Aseka og smáborgunum þar í kring. Þeir höfðu tekið sér bólfestu frá Beerseba allt norður að Hinnomsdal. |
31. | Benjamínítar bjuggu allt frá Geba, í Mikmas, Aja, Betel og smáborgunum þar í kring, |
32. | í Anatót, Nób, Ananja, |
33. | Hasór, Rama, Gittaím, |
34. | Hadíd, Sebóím, Neballat, |
35. | Lód og Ónó, í Smiðadal.Og af levítunum bjuggu sumar Júda-deildirnar í Benjamín. |
36. | Og af levítunum bjuggu sumar Júda-deildirnar í Benjamín. |
← Nehemiah (11/13) → |