← Matthew (9/28) → |
1. | Þá sté Jesús í bát og hélt yfir um og kom til borgar sinnar. |
2. | Þar færa menn honum lama mann, sem lá í rekkju. Þegar Jesús sá trú þeirra, sagði hann við lama manninn: ,,Vertu hughraustur, barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar.`` |
3. | Nokkrir fræðimenn sögðu þá með sjálfum sér: ,,Hann guðlastar!`` |
4. | En Jesús þekkti hugsanir þeirra og sagði: ,,Hví hugsið þér illt í hjörtum yðar? |
5. | Hvort er auðveldara að segja: ,Syndir þínar eru fyrirgefnar` eða: ,Statt upp og gakk`? |
6. | En til þess að þér vitið, að Mannssonurinn hefur vald á jörðu að fyrirgefa syndir, þá segi ég þér`` _ og nú talar hann við lama manninn: ,,Statt upp, tak rekkju þína, og far heim til þín!`` |
7. | Og hann stóð upp og fór heim til sín. |
8. | En fólkið, sem horfði á þetta, varð ótta slegið og lofaði Guð, sem gefið hafði mönnum slíkt vald. |
9. | Þá er hann gekk þaðan, sá hann mann sitja hjá tollbúðinni, Matteus að nafni, og hann segir við hann: ,,Fylg þú mér!`` Og hann stóð upp og fylgdi honum. |
10. | Nú bar svo við, er Jesús sat að borði í húsi hans, að margir tollheimtumenn og bersyndugir komu og settust þar með honum og lærisveinum hans. |
11. | Þegar farísear sáu það, sögðu þeir við lærisveina hans: ,,Hvers vegna etur meistari yðar með tollheimtumönnum og bersyndugum?`` |
12. | Jesús heyrði þetta og sagði: ,,Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir sem sjúkir eru. |
13. | Farið og nemið, hvað þetta merkir: ,Miskunnsemi vil ég, ekki fórnir.` Ég er ekki kominn til að kalla réttláta, heldur syndara.`` |
14. | Þá koma til hans lærisveinar Jóhannesar og segja: ,,Hví föstum vér og farísear, en þínir lærisveinar fasta ekki?`` |
15. | Jesús svaraði þeim: ,,Hvort geta brúðkaupsgestir verið hryggir, meðan brúðguminn er hjá þeim? En koma munu þeir dagar, er brúðguminn verður frá þeim tekinn. Þá munu þeir fasta. |
16. | Enginn lætur bót af óþæfðum dúk á gamalt fat, því þá rífur bótin út frá sér og verður af verri rifa. |
17. | Ekki láta menn heldur nýtt vín á gamla belgi, því þá springa belgirnir, og vínið fer niður, en belgirnir ónýtast. Menn láta nýtt vín á nýja belgi, og varðveitist þá hvort tveggja.`` |
18. | Meðan hann var að segja þetta við þá, kom forstöðumaður einn, laut honum og sagði: ,,Dóttir mín var að skilja við, kom og legg hönd þína yfir hana, þá mun hún lifna.`` |
19. | Jesús stóð upp og fór með honum og lærisveinar hans. |
20. | Kona, sem hafði haft blóðlát í tólf ár, kom þá að baki honum og snart fald klæða hans. |
21. | Hún hugsaði með sér: ,,Ef ég fæ aðeins snert klæði hans, mun ég heil verða.`` |
22. | Jesús sneri sér við, og er hann sá hana, sagði hann: ,,Vertu hughraust, dóttir, trú þín hefur bjargað þér.`` Og konan varð heil frá þeirri stundu. |
23. | Þegar Jesús kom að húsi forstöðumannsins og sá pípuleikara og fólkið í uppnámi, |
24. | sagði hann: ,,Farið burt! Stúlkan er ekki dáin, hún sefur.`` En þeir hlógu að honum. |
25. | Þegar fólkið hafði verið látið fara, gekk hann inn og tók hönd hennar, og reis þá stúlkan upp. |
26. | Og þessi tíðindi bárust um allt það hérað. |
27. | Þá er Jesús hélt þaðan, fóru tveir blindir menn eftir honum og kölluðu: ,,Miskunna þú okkur, sonur Davíðs.`` |
28. | Þegar hann kom heim, gengu blindu mennirnir til hans. Jesús spyr þá: ,,Trúið þið, að ég geti gjört þetta?`` Þeir sögðu: ,,Já, herra.`` |
29. | Þá snart hann augu þeirra og mælti: ,,Verði ykkur að trú ykkar.`` |
30. | Og augu þeirra lukust upp. Jesús lagði ríkt á við þá og sagði: ,,Gætið þess, að enginn fái að vita þetta.`` |
31. | En þeir fóru og víðfrægðu hann í öllu því héraði. |
32. | Þegar þeir voru að fara, var komið til hans með mállausan mann, haldinn illum anda. |
33. | Og er illi andinn var út rekinn, tók málleysinginn að mæla. Mannfjöldinn undraðist og sagði: ,,Aldrei hefur þvílíkt sést í Ísrael.`` |
34. | En farísearnir sögðu: ,,Með fulltingi höfðingja illra anda rekur hann út illu andana.`` |
35. | Jesús fór nú um allar borgir og þorp og kenndi í samkundum þeirra. Hann flutti fagnaðarerindið um ríkið og læknaði hvers kyns sjúkdóm og veikindi. |
36. | En er hann sá mannfjöldann, kenndi hann í brjósti um þá, því þeir voru hrjáðir og umkomulausir eins og sauðir, er engan hirði hafa. |
37. | Þá sagði hann við lærisveina sína: ,,Uppskeran er mikil, en verkamenn fáir.Biðjið því herra uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar.`` |
38. | Biðjið því herra uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar.`` |
← Matthew (9/28) → |