← Matthew (7/28) → |
1. | Dæmið ekki, svo að þér verðið ekki dæmdir. |
2. | Því að með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmdir, og með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða. |
3. | Hví sér þú flísina í auga bróður þíns, en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu? |
4. | Eða hvernig fær þú sagt við bróður þinn: ,Lát mig draga flísina úr auga þér?` Og þó er bjálki í auga sjálfs þín. |
5. | Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér, og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns. |
6. | Gefið ekki hundum það sem heilagt er, og kastið eigi perlum yðar fyrir svín. Þau mundu troða þær undir fótum, og þeir snúa sér við og rífa yður í sig. |
7. | Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða. |
8. | Því að hver sá öðlast, sem biður, sá finnur, sem leitar, og fyrir þeim, sem á knýr, mun upp lokið verða. |
9. | Eða hver er sá maður meðal yðar, sem gefur syni sínum stein, er hann biður um brauð? |
10. | Eða höggorm, þegar hann biður um fisk? |
11. | Fyrst þér, sem eruð vondir, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðir yðar á himnum gefa þeim góðar gjafir, sem biðja hann? |
12. | Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Þetta er lögmálið og spámennirnir. |
13. | Gangið inn um þrönga hliðið. Því að vítt er hliðið og vegurinn breiður, sem liggur til glötunar, og margir þeir, sem þar fara inn. |
14. | Hve þröngt er það hlið og mjór sá vegur, er liggur til lífsins, og fáir þeir, sem finna hann. |
15. | Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum, en innra eru þeir gráðugir vargar. |
16. | Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Hvort lesa menn vínber af þyrnum eða fíkjur af þistlum? |
17. | Þannig ber sérhvert gott tré góða ávöxtu, en slæmt tré vonda. |
18. | Gott tré getur ekki borið vonda ávöxtu, ekki heldur slæmt tré góða ávöxtu. |
19. | Hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og í eld kastað. |
20. | Af ávöxtum þeirra skuluð þér því þekkja þá. |
21. | Ekki mun hver sá, sem við mig segir: ,Herra, herra,` ganga inn í himnaríki, heldur sá einn, er gjörir vilja föður míns, sem er á himnum. |
22. | Margir munu segja við mig á þeim degi: ,Herra, herra, höfum vér ekki kennt í þínu nafni, rekið út illa anda í þínu nafni og gjört í þínu nafni mörg kraftaverk?` |
23. | Þá mun ég votta þetta: ,Aldrei þekkti ég yður. Farið frá mér, illgjörðamenn.` |
24. | Hver sem heyrir þessi orð mín og breytir eftir þeim, sá er líkur hyggnum manni, er byggði hús sitt á bjargi. |
25. | Nú skall á steypiregn, vatnið flæddi, stormar blésu og buldu á því húsi, en það féll eigi, því það var grundvallað á bjargi. |
26. | En hver sem heyrir þessi orð mín og breytir ekki eftir þeim, sá er líkur heimskum manni, er byggði hús sitt á sandi. |
27. | Steypiregn skall á, vatnið flæddi, stormar blésu og buldu á því húsi. Það féll, og fall þess var mikið.`` |
28. | Þegar Jesús hafði lokið þessari ræðu, undraðist mannfjöldinn mjög kenningu hans,því að hann kenndi þeim eins og sá, er vald hefur, og ekki eins og fræðimenn þeirra. |
29. | því að hann kenndi þeim eins og sá, er vald hefur, og ekki eins og fræðimenn þeirra. |
← Matthew (7/28) → |