← Matthew (28/28) |
1. | Að liðnum hvíldardegi, þegar lýsti af fyrsta degi vikunnar, komu þær María Magdalena og María hin til að líta á gröfina. |
2. | Þá varð landskjálfti mikill, því engill Drottins sté niður af himni, kom og velti steininum og settist á hann. |
3. | Hann var sem elding ásýndum og klæðin hvít sem snjór. |
4. | Varðmennirnir skulfu af hræðslu við hann og urðu sem örendir. |
5. | En engillinn mælti við konurnar: ,,Þér skuluð eigi óttast. Ég veit, að þér leitið að Jesú hinum krossfesta. |
6. | Hann er ekki hér. Hann er upp risinn, eins og hann sagði. Komið og sjáið staðinn, þar sem hann lá. |
7. | Farið í skyndi og segið lærisveinum hans: ,Hann er upp risinn frá dauðum, sjá hann fer á undan yður til Galíleu. Þar munuð þér sjá hann.` Þetta hef ég sagt yður.`` |
8. | Og þær fóru í skyndi frá gröfinni, með ótta og mikilli gleði, og hlupu að flytja lærisveinum hans boðin. |
9. | Og sjá, Jesús kemur á móti þeim og segir: ,,Heilar þið!`` En þær komu, féllu fram fyrir honum og föðmuðu fætur hans. |
10. | Þá segir Jesús við þær: ,,Óttist ekki, farið og segið bræðrum mínum að halda til Galíleu. Þar munu þeir sjá mig.`` |
11. | Meðan þær voru á leiðinni komu nokkrir varðmenn til borgarinnar og sögðu æðstu prestunum allt, sem gjörst hafði. |
12. | En þeir kvöddu saman öldungana og tóku það ráð með þeim að bera mikið fé á hermennina og mæltu við þá: |
13. | ,,Segið þetta: ,Lærisveinar hans komu á næturþeli, meðan vér sváfum, og stálu honum.` |
14. | Og ef þetta berst landshöfðingjanum til eyrna, skulum vér sefa hann, svo að þér getið verið áhyggjulausir.`` |
15. | Þeir tóku við fénu og gjörðu sem þeim var sagt. Þessi sögusögn hefur verið borin út meðal Gyðinga allt til þessa dags. |
16. | En lærisveinarnir ellefu fóru til Galíleu, til fjallsins, sem Jesús hafði stefnt þeim til. |
17. | Þar sáu þeir hann og veittu honum lotningu. En sumir voru í vafa. |
18. | Og Jesús gekk til þeirra, talaði við þá og sagði: ,,Allt vald er mér gefið á himni og jörðu.Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, |
19. | Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, |
← Matthew (28/28) |