← Matthew (22/28) → |
1. | Þá tók Jesús enn að tala við þá í dæmisögum og mælti: |
2. | ,,Líkt er um himnaríki og konung einn, sem gjörði brúðkaup sonar síns. |
3. | Hann sendi þjóna sína að kalla til brúðkaupsins þá, sem boðnir voru, en þeir vildu ekki koma. |
4. | Aftur sendi hann aðra þjóna og mælti: ,Segið þeim, sem boðnir voru: Veislu mína hef ég búið, uxum mínum og alifé er slátrað, og allt er tilbúið, komið í brúðkaupið.` |
5. | En þeir skeyttu því ekki. Einn fór á akur sinn, annar til kaupskapar síns, |
6. | en hinir tóku þjóna hans, misþyrmdu þeim og drápu. |
7. | Konungur reiddist, sendi út her sinn og lét tortíma morðingjum þessum og brenna borg þeirra. |
8. | Síðan segir hann við þjóna sína: ,Brúðkaupsveislan er tilbúin, en hinir boðnu voru ekki verðugir. |
9. | Farið því út á vegamót, og bjóðið í brúðkaupið hverjum þeim sem þér finnið.` |
10. | Þjónarnir fóru út á vegina og söfnuðu öllum, sem þeir fundu, vondum og góðum, svo að brúðkaupssalurinn varð alskipaður gestum. |
11. | Konungur gekk þá inn að sjá gestina og leit þar mann, sem var ekki búinn brúðkaupsklæðum. |
12. | Hann segir við hann: ,Vinur, hvernig ert þú hér kominn og ert ekki í brúðkaupsklæðum?` Maðurinn gat engu svarað. |
13. | Konungur sagði þá við þjóna sína: ,Bindið hann á höndum og fótum og varpið honum í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna.` |
14. | Því að margir eru kallaðir, en fáir útvaldir.`` |
15. | Þá gengu farísearnir burt og tóku saman ráð sín, hvernig þeir gætu flækt hann í orðum. |
16. | Þeir senda til hans lærisveina sína ásamt Heródesarsinnum, og þeir segja: ,,Meistari, vér vitum, að þú ert sannorður og kennir Guðs veg í sannleika, þú hirðir ekki um álit neins, enda gjörir þú þér engan mannamun. |
17. | Seg oss því, hvað þér líst? Leyfist að gjalda keisaranum skatt eða ekki?`` |
18. | Jesús þekkti illsku þeirra og sagði: ,,Hví freistið þér mín, hræsnarar? |
19. | Sýnið mér peninginn, sem goldinn er í skatt.`` Þeir fengu honum denar. |
20. | Hann spyr: ,,Hvers mynd og yfirskrift er þetta?`` |
21. | Þeir svara: ,,Keisarans.`` Hann segir: ,,Gjaldið þá keisaranum það, sem keisarans er, og Guði það, sem Guðs er.`` |
22. | Þegar þeir heyrðu þetta, undruðust þeir, og þeir yfirgáfu hann og gengu burt. |
23. | Sama dag komu til hans saddúkear, en þeir neita því, að upprisa sé til, og sögðu við hann: |
24. | ,,Meistari, Móse segir: ,Deyi maður barnlaus, þá skal bróðir hans ganga að eiga konu bróður síns og vekja honum niðja.` |
25. | Hér voru með oss sjö bræður. Sá fyrsti kvæntist og dó. Hann átti engan niðja og eftirlét því bróður sínum konuna. |
26. | Eins varð um næsta og þriðja og þá alla sjö. |
27. | Síðast allra dó konan. |
28. | Kona hvers þeirra sjö verður hún í upprisunni? Allir höfðu þeir átt hana.`` |
29. | En Jesús svaraði þeim: ,,Þér villist, því að þér þekkið ekki ritningarnar né mátt Guðs. |
30. | Í upprisunni kvænast menn hvorki né giftast. Þeir eru sem englar á himni. |
31. | En um upprisu dauðra hafið þér ekki lesið það sem Guð segir við yður: |
32. | ,Ég er Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs.` Ekki er hann Guð dauðra, heldur lifenda.`` |
33. | En mannfjöldinn hlýddi á og undraðist mjög kenningu hans. |
34. | Þegar farísear heyrðu, að hann hafði gjört saddúkea orðlausa, komu þeir saman. |
35. | Og einn þeirra, sem var lögvitringur, vildi freista hans og spurði: |
36. | ,,Meistari, hvert er hið æðsta boðorð í lögmálinu?`` |
37. | Hann svaraði honum: ,,,Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum.` |
38. | Þetta er hið æðsta og fremsta boðorð. |
39. | Annað er þessu líkt: ,Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.` |
40. | Á þessum tveimur boðorðum hvílir allt lögmálið og spámennirnir.`` |
41. | Meðan farísearnir voru saman komnir, spurði Jesús þá: |
42. | ,,Hvað virðist yður um Krist? Hvers son er hann?`` Þeir svara: ,,Davíðs.`` |
43. | Hann segir: ,,Hvernig getur þá Davíð, innblásinn andanum, kallað hann drottin? Hann segir: |
44. | Drottinn sagði við minn drottin: Set þig mér til hægri handar, þangað til ég gjöri óvini þína að fótskör þinni. |
45. | Fyrst Davíð kallar hann drottin, hvernig getur hann þá verið sonur hans?``Enginn gat svarað honum einu orði, og frá þeim degi þorði enginn að spyrja hann neins framar. |
46. | Enginn gat svarað honum einu orði, og frá þeim degi þorði enginn að spyrja hann neins framar. |
← Matthew (22/28) → |