← Matthew (20/28) → |
1. | Líkt er um himnaríki og húsbónda einn, sem gekk út árla morguns að ráða verkamenn í víngarð sinn. |
2. | Hann samdi við verkamennina um denar í daglaun og sendi þá í víngarð sinn. |
3. | Síðan gekk hann út um dagmál og sá aðra menn standa á torginu iðjulausa. |
4. | Hann sagði við þá: ,Farið þér einnig í víngarðinn, og ég mun greiða yður sanngjörn laun.` |
5. | Þeir fóru. Aftur gekk hann út um hádegi og nón og gjörði sem fyrr. |
6. | Og síðdegis fór hann enn út og sá menn standa þar. Hann spyr þá: ,Hví hímið þér hér iðjulausir allan daginn?` |
7. | Þeir svara: ,Enginn hefur ráðið oss.` Hann segir við þá: ,Farið þér einnig í víngarðinn.` |
8. | Þegar kvöld var komið, sagði eigandi víngarðsins við verkstjóra sinn: ,Kalla þú á verkamennina og greið þeim kaupið. Þú skalt byrja á þeim síðustu og enda á þeim fyrstu.` |
9. | Nú komu þeir, sem ráðnir voru síðdegis, og fengu hver sinn denar. |
10. | Þegar þeir fyrstu komu, bjuggust þeir við að fá meira, en fengu sinn denarinn hver. |
11. | Þeir tóku við honum og fóru að mögla gegn húsbónda sínum. |
12. | Þeir sögðu: ,Þessir síðustu hafa unnið aðeins eina stund, og þú gjörir þá jafna oss, er höfum borið hita og þunga dagsins.` |
13. | Hann sagði þá við einn þeirra: ,Vinur, ekki gjöri ég þér rangt til, sömdum við ekki um einn denar? |
14. | Taktu þitt og farðu leiðar þinnar. Ég vil gjalda þessum síðasta eins og þér. |
15. | Er ég ekki sjálfur fjár míns ráðandi? Eða sérðu ofsjónum yfir því, að ég er góðgjarn?` |
16. | Þannig verða hinir síðustu fyrstir og hinir fyrstu síðastir.`` |
17. | Jesús hélt nú upp til Jerúsalem, og á leiðinni tók hann þá tólf afsíðis og sagði við þá: |
18. | ,,Nú förum vér upp til Jerúsalem. Þar verður Mannssonurinn framseldur æðstu prestum og fræðimönnum. Þeir munu dæma hann til dauða |
19. | og framselja hann heiðingjum, að þeir hæði hann, húðstrýki og krossfesti. En á þriðja degi mun hann upp rísa.`` |
20. | Þá kom til hans móðir þeirra Sebedeussona með sonum sínum, laut honum og vildi biðja hann bónar. |
21. | Hann spyr hana: ,,Hvað viltu?`` Hún segir: ,,Lát þú þessa tvo syni mína sitja þér við hlið í ríki þínu, annan til hægri handar þér og hinn til vinstri.`` |
22. | Jesús svarar: ,,Þið vitið ekki, hvers þið biðjið. Getið þið drukkið þann kaleik, sem ég á að drekka?`` Þeir segja við hann: ,,Það getum við.`` |
23. | Hann segir við þá: ,,Kaleik minn munuð þið drekka. En mitt er ekki að veita, hver situr mér til hægri handar eða vinstri. Það veitist þeim, sem það er fyrirbúið af föður mínum.`` |
24. | Þegar hinir tíu heyrðu þetta, gramdist þeim við bræðurna tvo. |
25. | En Jesús kallaði þá til sín og mælti: ,,Þér vitið, að þeir, sem ráða fyrir þjóðum, drottna yfir þeim, og höfðingjar láta menn kenna á valdi sínu. |
26. | En eigi sé svo meðal yðar, heldur sé sá, sem mikill vill verða meðal yðar, þjónn yðar. |
27. | Og sá er vill fremstur vera meðal yðar, sé þræll yðar, |
28. | eins og Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér, heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga.`` |
29. | Þegar þeir fóru frá Jeríkó, fylgdi honum mikill mannfjöldi. |
30. | Tveir menn blindir sátu þar við veginn. Þegar þeir heyrðu, að þar færi Jesús, hrópuðu þeir: ,,Herra, miskunna þú okkur, sonur Davíðs!`` |
31. | Fólkið hastaði á þá, að þeir þegðu, en þeir hrópuðu því meir: ,,Herra, miskunna þú okkur, sonur Davíðs!`` |
32. | Jesús nam staðar, kallaði á þá og sagði: ,,Hvað viljið þið að ég gjöri fyrir ykkur?`` |
33. | Þeir mæltu: ,,Herra, lát augu okkar opnast.``Jesús kenndi í brjósti um þá og snart augu þeirra. Jafnskjótt fengu þeir sjónina og fylgdu honum. |
34. | Jesús kenndi í brjósti um þá og snart augu þeirra. Jafnskjótt fengu þeir sjónina og fylgdu honum. |
← Matthew (20/28) → |