← Matthew (15/28) → |
1. | Nú komu til Jesú farísear og fræðimenn frá Jerúsalem og sögðu: |
2. | ,,Hvers vegna brjóta lærisveinar þínir erfikenning forfeðranna? Þeir taka ekki handlaugar, áður en þeir neyta matar.`` |
3. | Hann svaraði þeim: ,,Hvers vegna brjótið þér sjálfir boðorð Guðs sakir erfikenningar yðar? |
4. | Guð hefur sagt: ,Heiðra föður þinn og móður,` og: ,Hver sem formælir föður eða móður, skal dauða deyja.` |
5. | En þér segið: Hver sem segir við föður sinn eða móður: ,Það sem þér hefði getað orðið til styrktar frá mér, er musterisfé,` |
6. | hann á ekki að heiðra föður sinn [eða móður]. Þér ógildið orð Guðs með erfikenning yðar. |
7. | Hræsnarar, sannspár var Jesaja um yður, er hann segir: |
8. | Lýður þessi heiðrar mig með vörunum, en hjarta þeirra er langt frá mér. |
9. | Til einskis dýrka þeir mig, er þeir kenna þá lærdóma, sem eru mannasetningar einar.`` |
10. | Og hann kallaði til sín mannfjöldann og sagði: ,,Heyrið og skiljið. |
11. | Ekki saurgar það manninn, sem inn fer í munninn, hitt saurgar manninn, sem út fer af munni.`` |
12. | Þá komu lærisveinar hans og sögðu við hann: ,,Veistu, að farísearnir hneyksluðust, þegar þeir heyrðu orð þín?`` |
13. | Hann svaraði: ,,Sérhver jurt, sem faðir minn himneskur hefur eigi gróðursett, mun upprætt verða. |
14. | Látið þá eiga sig! Þeir eru blindir, leiðtogar blindra. Ef blindur leiðir blindan, falla báðir í gryfju.`` |
15. | Þá sagði Pétur við hann: ,,Skýrðu fyrir oss líkinguna.`` |
16. | Hann svaraði: ,,Eruð þér líka skilningslausir ennþá? |
17. | Skiljið þér ekki, að allt sem inn kemur í munninn, fer í magann og lendir síðan í safnþrónni? |
18. | En það sem út fer af munni, kemur frá hjartanu. Og slíkt saurgar manninn. |
19. | Því að frá hjartanu koma illar hugsanir, manndráp, hórdómur, saurlifnaður, þjófnaður, ljúgvitni, lastmælgi. |
20. | Þetta er það, sem saurgar manninn. En að eta með óþvegnum höndum saurgar engan mann.`` |
21. | Þaðan hélt Jesús til byggða Týrusar og Sídonar. |
22. | Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: ,,Miskunna þú mér, herra, sonur Davíðs! Dóttir mín er mjög kvalin af illum anda.`` |
23. | En hann svaraði henni engu orði. Lærisveinar hans komu þá og báðu hann: ,,Láttu hana fara, hún eltir oss með hrópum.`` |
24. | Hann mælti: ,,Ég er ekki sendur nema til týndra sauða af Ísraelsætt.`` |
25. | Konan kom, laut honum og sagði: ,,Herra, hjálpa þú mér!`` |
26. | Hann svaraði: ,,Ekki sæmir að taka brauð barnanna og kasta því fyrir hundana.`` |
27. | Hún sagði: ,,Satt er það, herra, þó eta hundarnir mola þá, sem falla af borðum húsbænda þeirra.`` |
28. | Þá mælti Jesús við hana: ,,Kona, mikil er trú þín. Verði þér sem þú vilt.`` Og dóttir hennar varð heil frá þeirri stundu. |
29. | Þaðan fór Jesús og kom að Galíleuvatni. Og hann gekk upp á fjall og settist þar. |
30. | Menn komu til hans hópum saman og höfðu með sér halta menn og blinda, fatlaða, mállausa og marga aðra og lögðu þá fyrir fætur hans, og hann læknaði þá. |
31. | Fólkið undraðist, þegar það sá mállausa mæla, fatlaða heila, halta ganga og blinda sjá. Og þeir lofuðu Guð Ísraels. |
32. | Jesús kallaði til sín lærisveina sína og sagði: ,,Ég kenni í brjósti um mannfjöldann. Þeir hafa nú hjá mér verið þrjá daga og hafa ekkert til matar. Ég vil ekki láta þá fara fastandi frá mér, þeir gætu örmagnast á leiðinni.`` |
33. | Lærisveinarnir sögðu: ,,Hvar fáum vér nóg brauð til að metta allt þetta fólk hér í óbyggðum?`` |
34. | Jesús spyr: ,,Hve mörg brauð hafið þér?`` Þeir svara: ,,Sjö, og fáeina smáfiska.`` |
35. | Þá bauð hann fólkinu að setjast á jörðina, |
36. | tók brauðin sjö og fiskana, gjörði þakkir og braut þau og gaf lærisveinunum, en lærisveinarnir fólkinu. |
37. | Allir neyttu og urðu mettir. Síðan tóku þeir saman leifarnar, sjö körfur fullar. |
38. | En þeir, sem neytt höfðu, voru fjórar þúsundir karlmanna auk kvenna og barna.Síðan lét hann fólkið fara, sté í bátinn og kom í Magadanbyggðir. |
39. | Síðan lét hann fólkið fara, sté í bátinn og kom í Magadanbyggðir. |
← Matthew (15/28) → |