← Mark (9/16) → |
1. | Og hann sagði við þá: ,,Sannlega segi ég yður: Nokkrir þeirra, sem hér standa, munu eigi dauða bíða, fyrr en þeir sjá Guðs ríki komið með krafti.`` |
2. | Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes og fer með þá upp á hátt fjall, að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra, |
3. | og klæði hans urðu fannhvít og skínandi, og fær enginn bleikir á jörðu svo hvítt gjört. |
4. | Og þeim birtist Elía ásamt Móse, og voru þeir á tali við Jesú. |
5. | Þá tekur Pétur til máls og segir við Jesú: ,,Rabbí, gott er, að vér erum hér. Gjörum þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.`` |
6. | Hann vissi ekki, hvað hann átti að segja, enda urðu þeir mjög skelfdir. |
7. | Þá kom ský og skyggði yfir þá, og rödd kom úr skýinu: ,,Þessi er minn elskaði sonur, hlýðið á hann!`` |
8. | Og snögglega, þegar þeir litu í kring, sáu þeir engan framar hjá sér nema Jesú einan. |
9. | Á leiðinni ofan fjallið bannaði hann þeim að segja nokkrum frá því, er þeir höfðu séð, fyrr en Mannssonurinn væri risinn upp frá dauðum. |
10. | Þeir festu orðin í minni og ræddu um, hvað væri að rísa upp frá dauðum. |
11. | Og þeir spurðu hann: ,,Hví segja fræðimennirnir, að Elía eigi fyrst að koma?`` |
12. | Hann svaraði þeim: ,,Víst kemur Elía fyrst og færir allt í lag. En hvernig er ritað um Mannssoninn? Á hann ekki margt að líða og smáður verða? |
13. | En ég segi yður: Elía er kominn, og þeir gjörðu honum allt, sem þeir vildu, eins og ritað er um hann.`` |
14. | Þegar þeir komu til lærisveinanna, sáu þeir mannfjölda mikinn kringum þá og fræðimenn að þrátta við þá. |
15. | En um leið og fólkið sá hann, sló þegar felmtri á alla, og þeir hlupu til og heilsuðu honum. |
16. | Hann spurði þá: ,,Um hvað eruð þér að þrátta við þá?`` |
17. | En einn úr mannfjöldanum svaraði honum: ,,Meistari, ég færði til þín son minn, sem málleysis andi er í. |
18. | Hvar sem andinn grípur hann, slengir hann honum flötum, og hann froðufellir, gnístir tönnum og stirðnar upp. Ég bað lærisveina þína að reka hann út, en þeir gátu það ekki.`` |
19. | Jesús svarar þeim: ,,Ó, þú vantrúa kynslóð, hversu lengi á ég að vera hjá yður? Hversu lengi á ég að umbera yður? Færið hann til mín.`` |
20. | Þeir færðu hann þá til Jesú, en um leið og andinn sá hann, teygði hann drenginn ákaflega, hann féll til jarðar, veltist um og froðufelldi. |
21. | Jesús spurði þá föður hans: ,,Hve lengi hefur honum liðið svo?`` Hann sagði: ,,Frá bernsku. |
22. | Og oft hefur hann kastað honum bæði í eld og vatn til að fyrirfara honum. En ef þú getur nokkuð, þá sjá aumur á okkur og hjálpa okkur.`` |
23. | Jesús sagði við hann: ,,Ef þú getur! Sá getur allt sem trúir.`` |
24. | Jafnskjótt hrópaði faðir sveinsins: ,,Ég trúi, hjálpa þú vantrú minni.`` |
25. | Nú sér Jesús, að mannfjöldi þyrpist að. Þá hastar hann á óhreina andann og segir: ,,Þú dumbi, daufi andi, ég býð þér, far út af honum, og kom aldrei framar í hann.`` |
26. | Þá æpti andinn, teygði hann mjög og fór, en sveinninn varð sem nár, svo að flestir sögðu: ,,Hann er dáinn.`` |
27. | En Jesús tók í hönd honum og reisti hann upp, og hann stóð á fætur. |
28. | Þegar Jesús var kominn inn og orðinn einn með lærisveinum sínum, spurðu þeir hann: ,,Hví gátum vér ekki rekið hann út?`` |
29. | Hann mælti: ,,Þetta kyn verður eigi út rekið nema með bæn.`` |
30. | Þeir héldu nú brott þaðan og fóru um Galíleu, en hann vildi ekki, að neinn vissi það, |
31. | því að hann var að kenna lærisveinum sínum. Hann sagði þeim: ,,Mannssonurinn verður framseldur í manna hendur, og þeir munu lífláta hann, en þá er hann hefur líflátinn verið, mun hann upp rísa eftir þrjá daga.`` |
32. | En þeir skildu ekki það sem hann sagði og þorðu ekki að spyrja hann. |
33. | Þeir komu til Kapernaum. Þegar hann var kominn inn, spurði hann þá: ,,Hvað voruð þér að ræða á leiðinni?`` |
34. | En þeir þögðu. Þeir höfðu verið að ræða það sín á milli á leiðinni, hver væri mestur. |
35. | Hann settist niður, kallaði á þá tólf og sagði við þá: ,,Hver sem vill vera fremstur, sé síðastur allra og þjónn allra.`` |
36. | Og hann tók lítið barn, setti það meðal þeirra, tók það sér í faðm og sagði við þá: |
37. | ,,Hver sem tekur við einu slíku barni í mínu nafni, tekur við mér, og hver sem tekur við mér, tekur ekki aðeins við mér, heldur og við þeim er sendi mig.`` |
38. | Jóhannes sagði við hann: ,,Meistari, vér sáum mann reka út illa anda í þínu nafni, og vildum vér varna honum þess, af því að hann fylgdi oss ekki.`` |
39. | Jesús sagði: ,,Varnið honum þess ekki, því að enginn er sá, að hann gjöri kraftaverk í mínu nafni og geti þegar á eftir talað illa um mig. |
40. | Sá sem er ekki á móti oss, er með oss. |
41. | Hver sem gefur yður bikar vatns að drekka, vegna þess að þér eruð Krists, sannlega segi ég yður, hann mun alls ekki missa af launum sínum. |
42. | Hverjum þeim, sem tælir til falls einn af þessum smælingjum, sem trúa, væri betra að vera varpað í hafið með mylnustein um hálsinn. |
43. | Ef hönd þín tælir þig til falls, þá sníð hana af. Betra er þér handarvana inn að ganga til lífsins en hafa báðar hendur og fara til helvítis, í hinn óslökkvanda eld. [ |
44. | Þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki.] |
45. | Ef fótur þinn tælir þig til falls, þá sníð hann af. Betra er þér höltum inn að ganga til lífsins en hafa báða fætur og verða kastað í helvíti. [ |
46. | Þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki.] |
47. | Og ef auga þitt tælir þig til falls, þá ríf það úr. Betra er þér eineygðum inn að ganga í Guðs ríki en hafa bæði augu og verða kastað í helvíti, |
48. | þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki. |
49. | Sérhver mun eldi saltast.Saltið er gott, en ef saltið missir seltuna, með hverju viljið þér þá krydda það? Hafið salt í sjálfum yður, og haldið frið yðar á milli.`` |
50. | Saltið er gott, en ef saltið missir seltuna, með hverju viljið þér þá krydda það? Hafið salt í sjálfum yður, og haldið frið yðar á milli.`` |
← Mark (9/16) → |