← Mark (4/16) → |
1. | Aftur tók hann að kenna við vatnið. Svo mikill mannfjöldi safnaðist að honum, að hann varð að stíga í bát og sitja þar, úti á vatninu. En allt fólkið var á landi við vatnið. |
2. | Hann kenndi þeim margt í dæmisögum og sagði við þá: |
3. | ,,Hlýðið á! Sáðmaður gekk út að sá, |
4. | og þá er hann sáði, féll sumt hjá götunni, og fuglar komu og átu það upp. |
5. | Sumt féll í grýtta jörð, þar sem var lítill jarðvegur, og það rann skjótt upp, því það hafði ekki djúpa jörð. |
6. | En er sól hækkaði, visnaði það, og sökum þess að það hafði ekki rætur, skrælnaði það. |
7. | Og sumt féll meðal þyrna, og þyrnarnir uxu og kæfðu það, og það bar ekki ávöxt. |
8. | En sumt féll í góða jörð, kom upp, óx og bar ávöxt, það gaf þrítugfaldan, sextugfaldan og hundraðfaldan ávöxt.`` |
9. | Og hann sagði: ,,Hver sem eyru hefur að heyra, hann heyri!`` |
10. | Þegar hann var orðinn einn, spurðu þeir tólf og hinir, sem með honum voru, um dæmisögurnar. |
11. | Hann svaraði þeim: ,,Yður er gefinn leyndardómur Guðs ríkis. Hinir, sem fyrir utan eru, fá allt í dæmisögum, |
12. | að sjáandi sjái þeir og skynji ekki, heyrandi heyri þeir og skilji ekki, svo þeir snúi sér eigi og verði fyrirgefið.`` |
13. | Og hann segir við þá: ,,Þér skiljið eigi þessa dæmisögu. Hvernig fáið þér þá skilið nokkra dæmisögu? |
14. | Sáðmaðurinn sáir orðinu. |
15. | Það hjá götunni, þar sem orðinu er sáð, merkir þá sem heyra, en Satan kemur jafnskjótt og tekur burt orðið, sem í þá var sáð. |
16. | Eins það sem sáð var í grýtta jörð, það merkir þá sem taka orðinu með fögnuði, um leið og þeir heyra það, |
17. | en hafa enga rótfestu. Þeir eru hvikulir og er þrenging verður síðan eða ofsókn vegna orðsins, bregðast þeir þegar. |
18. | Öðru var sáð meðal þyrna. Það merkir þá sem heyra orðið, |
19. | en áhyggjur heimsins, tál auðæfanna og aðrar girndir koma til og kefja orðið, svo það ber engan ávöxt. |
20. | Hitt, sem sáð var í góða jörð, merkir þá sem heyra orðið, taka við því og bera þrítugfaldan, sextugfaldan og hundraðfaldan ávöxt.`` |
21. | Og hann sagði við þá: ,,Ekki bera menn ljós inn og setja það undir mæliker eða bekk? Er það ekki sett á ljósastiku? |
22. | Því að ekkert er hulið, að það verði eigi gjört opinbert, né leynt, að það komi ekki í ljós. |
23. | Ef einhver hefur eyru að heyra, hann heyri!`` |
24. | Enn sagði hann við þá: ,,Gætið að, hvað þér heyrið. Með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða og við yður bætt. |
25. | Því að þeim, sem hefur, mun gefið verða, og frá þeim, sem eigi hefur, mun tekið verða jafnvel það sem hann hefur.`` |
26. | Þá sagði hann: ,,Svo er Guðs ríki sem maður sái sæði í jörð. |
27. | Hann sefur síðan og vakir, nætur og daga, en sæðið grær og vex, hann veit ekki með hverjum hætti. |
28. | Sjálfkrafa ber jörðin ávöxt, fyrst stráið, þá axið og síðan fullvaxið hveiti í axinu. |
29. | En þá er ávöxturinn er fullþroska, lætur hann þegar bera út sigðina, því að uppskeran er komin.`` |
30. | Og hann sagði: ,,Við hvað eigum vér að líkja Guðs ríki? Með hvaða dæmi eigum vér að lýsa því? |
31. | Líkt er það mustarðskorni. Þegar því er sáð í mold, er það smærra hverju sáðkorni á jörðu. |
32. | En eftir að því er sáð tekur það að spretta, það verður öllum jurtum meira og fær svo stórar greinar, að fuglar himins geta hreiðrað sig í skugga þess.`` |
33. | Í mörgum slíkum dæmisögum flutti hann þeim orðið, svo sem þeir gátu numið, |
34. | og án dæmisagna talaði hann ekki til þeirra, en fyrir lærisveinum sínum skýrði hann allt, þegar þeir voru einir. |
35. | Að kvöldi sama dags sagði hann við þá: ,,Förum yfir um!`` |
36. | Þeir skildu þá við mannfjöldann og tóku hann með sér, þar sem hann var, í bátnum, en aðrir bátar voru með honum. |
37. | Þá brast á stormhrina mikil, og féllu öldurnar inn í bátinn, svo við lá, að hann fyllti. |
38. | Jesús var í skutnum og svaf á kodda. Þeir vöktu hann og sögðu við hann: ,,Meistari, hirðir þú ekki um, að vér förumst?`` |
39. | Hann vaknaði, hastaði á vindinn og sagði við vatnið: ,,Þegi þú, haf hljótt um þig!`` Þá lægði vindinn og gerði stillilogn. |
40. | Og hann sagði við þá: ,,Hví eruð þér hræddir, hafið þér enn enga trú?``En þeir urðu miklum ótta lostnir og sögðu hver við annan: ,,Hver er þessi? Jafnvel vindur og vatn hlýða honum.`` |
41. | En þeir urðu miklum ótta lostnir og sögðu hver við annan: ,,Hver er þessi? Jafnvel vindur og vatn hlýða honum.`` |
← Mark (4/16) → |