← Mark (3/16) → |
1. | Öðru sinni gekk hann í samkunduhús. Þar var maður með visna hönd, |
2. | og höfðu þeir nánar gætur á Jesú, hvort hann læknaði hann á hvíldardegi. Þeir hugðust kæra hann. |
3. | Og Jesús segir við manninn með visnu höndina: ,,Statt upp og kom hér fram!`` |
4. | Síðan spyr hann þá: ,,Hvort er heldur leyfilegt að gjöra gott eða gjöra illt á hvíldardegi, bjarga lífi eða deyða?`` En þeir þögðu. |
5. | Og hann leit í kring á þá með reiði, sárhryggur yfir harðúð hjartna þeirra, og sagði við manninn: ,,Réttu fram hönd þína.`` Hann rétti fram höndina, og hún varð heil. |
6. | Þá gengu farísearnir út og tóku þegar með Heródesarsinnum saman ráð sín gegn honum, hvernig þeir gætu náð lífi hans. |
7. | Jesús fór með lærisveinum sínum út að vatninu, og fylgdi mikill fjöldi úr Galíleu og úr Júdeu, |
8. | frá Jerúsalem, Ídúmeu, landinu handan Jórdanar, og úr byggðum Týrusar og Sídonar kom til hans fjöldi manna, er heyrt höfðu, hve mikið hann gjörði. |
9. | Og hann bauð lærisveinum sínum að hafa til bát fyrir sig, svo að mannfjöldinn þrengdi eigi að honum. |
10. | En marga hafði hann læknað, og því þustu að honum allir þeir, sem einhver mein höfðu, til að snerta hann. |
11. | Og hvenær sem óhreinir andar sáu hann, féllu þeir fram fyrir honum og æptu upp: ,,Þú ert sonur Guðs.`` |
12. | En hann lagði ríkt á við þá, að þeir gjörðu hann eigi kunnan. |
13. | Síðan fór hann til fjalls og kallaði til sín þá er hann sjálfur vildi, og þeir komu til hans. |
14. | Hann skipaði tólf, er skyldu vera með honum og hann gæti sent út að prédika, |
15. | með valdi að reka út illa anda. |
16. | Hann skipaði þá tólf: Símon, er hann gaf nafnið Pétur, |
17. | Jakob Sebedeusson og Jóhannes bróður hans, en þeim gaf hann nafnið Boanerges, sem þýðir þrumusynir, |
18. | og Andrés, Filippus og Bartólómeus, Matteus og Tómas, Jakob Alfeusson, Taddeus og Símon vandlætara |
19. | og Júdas Ískaríot, þann er sveik hann. |
20. | Þegar hann kemur heim, safnast þar aftur mannfjöldi, svo þeir gátu ekki einu sinni matast. |
21. | Hans nánustu fréttu það og fóru út og vildu ná honum, enda sögðu þeir, að hann væri frá sér. |
22. | Og fræðimennirnir, er komnir voru ofan frá Jerúsalem, sögðu: ,,Beelsebúl er í honum. Með fulltingi höfðingja illra anda rekur hann út illu andana.`` |
23. | En Jesús kallaði þá til sín og mælti við þá í líkingum: ,,Hvernig getur Satan rekið Satan út? |
24. | Verði ríki sjálfu sér sundurþykkt, fær það ríki eigi staðist, |
25. | og verði heimili sjálfu sér sundurþykkt, fær það heimili eigi staðist. |
26. | Sé nú Satan risinn gegn sjálfum sér og orðinn sér sundurþykkur, fær hann ekki staðist, þá er úti um hann. |
27. | Enginn getur brotist inn í hús hins sterka og rænt föngum hans, nema hann bindi áður hinn sterka, þá getur hann rænt hús hans. |
28. | Sannlega segi ég yður: Allt verður mannanna börnum fyrirgefið, allar syndir þeirra og lastmælin, hve mjög sem þeir kunna að lastmæla, |
29. | en sá sem lastmælir gegn heilögum anda, fær eigi fyrirgefningu um aldur, hann er sekur um eilífa synd.`` |
30. | En þeir höfðu sagt: ,,Óhreinn andi er í honum.`` |
31. | Nú koma móðir hans og bræður, standa úti og gera honum orð að koma. |
32. | Mikill fjöldi sat í kringum hann, og var honum sagt: ,,Móðir þín, bræður og systur eru hér úti og spyrja eftir þér.`` |
33. | Hann svarar þeim: ,,Hver er móðir mín og bræður?`` |
34. | Og hann leit á þá, er kringum hann sátu, og segir: ,,Hér er móðir mín og bræður mínir!Hver, sem gjörir vilja Guðs, sá er bróðir minn, systir og móðir.`` |
35. | Hver, sem gjörir vilja Guðs, sá er bróðir minn, systir og móðir.`` |
← Mark (3/16) → |