← Mark (2/16) → |
1. | Nokkrum dögum síðar kom hann aftur til Kapernaum. Þegar fréttist, að hann væri heima, |
2. | söfnuðust þar svo margir, að hvergi var lengur rúm, ekki einu sinni fyrir dyrum úti. Og hann flutti þeim orðið. |
3. | Þá er komið með lama mann, og báru fjórir. |
4. | Þegar þeir gátu ekki komist með hann til Jesú fyrir fólkinu, rufu þeir þekjuna uppi yfir honum, grófu þar í gegn og létu síga ofan rekkjuna, sem hinn lami lá í. |
5. | Þá er Jesús sér trú þeirra, segir hann við lama manninn: ,,Barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar.`` |
6. | Þar sátu nokkrir fræðimenn og hugsuðu í hjörtum sínum: |
7. | ,,Hví mælir þessi maður svo? Hann guðlastar. Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn?`` |
8. | Samstundis skynjaði Jesús í anda sínum, að þeir hugsuðu þannig með sér, og hann sagði við þá: ,,Hví hugsið þér slíkt í hjörtum yðar? |
9. | Hvort er auðveldara að segja við lama manninn: ,Syndir þínar eru fyrirgefnar,` eða segja: ,Statt upp, tak rekkju þína og gakk?` |
10. | En til þess að þér vitið, að Mannssonurinn hefur vald til að fyrirgefa syndir á jörðu, |
11. | þá segi ég þér`` _ og nú talar hann við lama manninn: _ ,,Statt upp, tak rekkju þína, og far heim til þín.`` |
12. | Hann stóð upp, tók jafnskjótt rekkjuna og gekk burt í allra augsýn, svo að allir voru furðu lostnir, lofuðu Guð og sögðu: ,,Aldrei áður höfum vér þvílíkt séð.`` |
13. | Aftur fór hann út og gekk með vatninu, og allur mannfjöldinn kom til hans, og hann kenndi þeim. |
14. | Og er hann gekk þar, sá hann Leví Alfeusson sitja hjá tollbúðinni, og hann segir við hann: ,,Fylg þú mér!`` Og hann stóð upp og fylgdi honum. |
15. | Svo bar við, að Jesús sat að borði í húsi hans, og margir tollheimtumenn og bersyndugir sátu þar með honum og lærisveinum hans, en margir fylgdu honum. |
16. | Fræðimenn af flokki farísea, sem sáu, að hann samneytti bersyndugum og tollheimtumönnum, sögðu þá við lærisveina hans: ,,Hann etur með tollheimtumönnum og bersyndugum.`` |
17. | Jesús heyrði þetta og svaraði þeim: ,,Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir, sem sjúkir eru. Ég er ekki kominn til að kalla réttláta, heldur syndara.`` |
18. | Lærisveinar Jóhannesar og farísear héldu nú föstu. Þá koma menn til Jesú og spyrja hann: ,,Hví fasta lærisveinar Jóhannesar og lærisveinar farísea, en þínir lærisveinar fasta ekki?`` |
19. | Jesús svaraði þeim: ,,Hvort geta brúðkaupsgestir fastað, meðan brúðguminn er hjá þeim? Alla þá stund, sem brúðguminn er hjá þeim, geta þeir ekki fastað. |
20. | En koma munu þeir dagar, er brúðguminn verður frá þeim tekinn, þá munu þeir fasta, á þeim degi. |
21. | Enginn saumar bót af óþæfðum dúk á gamalt fat, því þá rífur nýja bótin af hinu gamla og verður af verri rifa. |
22. | Og enginn lætur nýtt vín á gamla belgi, því þá sprengir vínið belgina, og vínið ónýtist og belgirnir. Nýtt vín er látið á nýja belgi.`` |
23. | Svo bar við, að Jesús fór um sáðlönd á hvíldardegi, og lærisveinar hans tóku að tína kornöx á leiðinni. |
24. | Farísearnir sögðu þá við hann: ,,Lít á, hví gjöra þeir það, sem er ekki leyfilegt á hvíldardegi?`` |
25. | Hann svaraði þeim: ,,Hafið þér aldrei lesið, hvað Davíð gjörði, er honum lá á, þegar hann hungraði og menn hans? |
26. | Hann fór inn í Guðs hús, þegar Abíatar var æðsti prestur, og át skoðunarbrauðin, en þau má enginn eta nema prestarnir, og gaf líka mönnum sínum.`` |
27. | Og hann sagði við þá: ,,Hvíldardagurinn varð til mannsins vegna og eigi maðurinn vegna hvíldardagsins.Því er Mannssonurinn einnig herra hvíldardagsins.`` |
28. | Því er Mannssonurinn einnig herra hvíldardagsins.`` |
← Mark (2/16) → |