← Mark (16/16) |
1. | Þá er hvíldardagurinn var liðinn, keyptu þær María Magdalena, María móðir Jakobs og Salóme ilmsmyrsl til að fara og smyrja hann. |
2. | Og mjög árla hinn fyrsta dag vikunnar, um sólarupprás, koma þær að gröfinni. |
3. | Þær sögðu sín á milli: ,,Hver mun velta fyrir oss steininum frá grafarmunnanum?`` |
4. | En þegar þær líta upp, sjá þær, að steininum hafði verið velt frá, en hann var mjög stór. |
5. | Þær stíga inn í gröfina og sjá ungan mann sitja hægra megin, klæddan hvítri skikkju og þær skelfdust. |
6. | En hann sagði við þær: ,,Skelfist eigi. Þér leitið að Jesú frá Nasaret, hinum krossfesta. Hann er upp risinn, hann er ekki hér. Sjá, þarna er staðurinn, þar sem þeir lögðu hann. |
7. | En farið og segið lærisveinum hans og Pétri: ,Hann fer á undan yður til Galíleu. Þar munuð þér sjá hann, eins og hann sagði yður`.`` |
8. | Þær fóru út og flýðu frá gröfinni, því ótti og ofboð var yfir þær komið. Þær sögðu engum frá neinu, því þær voru hræddar. |
9. | Þegar hann var upp risinn árla hinn fyrsta dag vikunnar, birtist hann fyrst Maríu Magdalenu, en út af henni hafði hann rekið sjö illa anda. |
10. | Hún fór og kunngjörði þetta þeim, er með honum höfðu verið og hörmuðu nú og grétu. |
11. | Þá er þeir heyrðu, að hann væri lifandi og hún hefði séð hann, trúðu þeir ekki. |
12. | Eftir þetta birtist hann í annarri mynd tveimur þeirra, þar sem þeir voru á göngu á leið út í sveit. |
13. | Þeir sneru við og kunngjörðu hinum, en þeir trúðu þeim ekki heldur. |
14. | Seinna birtist hann þeim ellefu, þegar þeir sátu til borðs, og ávítaði þá fyrir vantrú þeirra og harðúð hjartans, að þeir hefðu ekki trúað þeim, er sáu hann upp risinn. |
15. | Hann sagði við þá: ,,Farið út um allan heim, og prédikið fagnaðarerindið öllu mannkyni. |
16. | Sá sem trúir og skírist, mun hólpinn verða, en sá sem trúir ekki, mun fyrirdæmdur verða. |
17. | En þessi tákn munu fylgja þeim, er trúa: Í mínu nafni munu þeir reka út illa anda, tala nýjum tungum, |
18. | taka upp höggorma, og þó að þeir drekki eitthvað banvænt, mun þeim ekki verða meint af. Yfir sjúka munu þeir leggja hendur, og þeir verða heilir.``Þegar nú Drottinn Jesús hafði talað við þá, var hann upp numinn til himins og settist til hægri handar Guði. |
19. | Þegar nú Drottinn Jesús hafði talað við þá, var hann upp numinn til himins og settist til hægri handar Guði. |
← Mark (16/16) |