← Mark (14/16) → |
1. | Nú voru tveir dagar til páska og hátíðar ósýrðu brauðanna. Og æðstu prestarnir og fræðimennirnir leituðu fyrir sér, hvernig þeir gætu handsamað Jesú með svikum og tekið hann af lífi. |
2. | En þeir sögðu: ,,Ekki á hátíðinni, þá gæti orðið uppþot með lýðnum.`` |
3. | Hann var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa, og sat að borði. Þá kom þar kona og hafði alabastursbuðk með ómenguðum, dýrum nardussmyrslum. Hún braut buðkinn og hellti yfir höfuð honum. |
4. | En þar voru nokkrir, er gramdist þetta, og þeir sögðu sín á milli: ,,Til hvers er þessi sóun á smyrslum? |
5. | Þessi smyrsl hefði mátt selja fyrir meira en þrjú hundruð denara og gefa fátækum.`` Og þeir atyrtu hana. |
6. | En Jesús sagði: ,,Látið hana í friði! Hvað eruð þér að angra hana? Gott verk gjörði hún mér. |
7. | Fátæka hafið þér jafnan hjá yður og getið gjört þeim gott, nær þér viljið, en mig hafið þér ekki ávallt. |
8. | Hún gjörði það, sem í hennar valdi stóð. Hún hefur fyrirfram smurt líkama minn til greftrunar. |
9. | Sannlega segi ég yður: Hvar sem fagnaðarerindið verður flutt, um heim allan, mun og getið verða þess, sem hún gjörði, til minningar um hana.`` |
10. | Júdas Ískaríot, einn þeirra tólf, fór þá til æðstu prestanna að framselja þeim hann. |
11. | Þegar þeir heyrðu það, urðu þeir glaðir við og hétu honum fé fyrir. En hann leitaði færis að framselja hann. |
12. | Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna, þegar menn slátruðu páskalambinu, sögðu lærisveinar hans við hann: ,,Hvert vilt þú, að vér förum og búum þér páskamáltíðina?`` |
13. | Þá sendi hann tvo lærisveina sína og sagði við þá: ,,Farið inn í borgina, og ykkur mun mæta maður, sem ber vatnsker. Fylgið honum, |
14. | og þar sem hann fer inn, skuluð þið segja við húsráðandann: ,Meistarinn spyr: Hvar er herbergið, þar sem ég get neytt páskamáltíðarinnar með lærisveinum mínum?` |
15. | Hann mun þá sýna ykkur loftsal mikinn, búinn hægindum og til reiðu. Hafið þar viðbúnað fyrir oss.`` |
16. | Lærisveinarnir fóru, komu inn í borgina og fundu allt eins og hann hafði sagt og bjuggu til páskamáltíðar. |
17. | Um kvöldið kom hann með þeim tólf. |
18. | Þegar þeir sátu að borði og mötuðust sagði Jesús: ,,Sannlega segi ég yður: Einn af yður mun svíkja mig, einn sem með mér etur.`` |
19. | Þeir urðu hryggir við og sögðu við hann, einn af öðrum: ,,Ekki er það ég?`` |
20. | Hann svaraði þeim: ,,Það er einn þeirra tólf. Hann dýfir í sama fat og ég. |
21. | Mannssonurinn fer að sönnu héðan, svo sem um hann er ritað, en vei þeim manni, sem því veldur, að Mannssonurinn verður framseldur. Betra væri þeim manni að hafa aldrei fæðst.`` |
22. | Þá er þeir mötuðust, tók hann brauð, þakkaði Guði, braut það og gaf þeim og sagði: ,,Takið, þetta er líkami minn.`` |
23. | Og hann tók kaleik, gjörði þakkir og gaf þeim, og þeir drukku af honum allir. |
24. | Og hann sagði við þá: ,,Þetta er blóð mitt, blóð sáttmálans, úthellt fyrir marga. |
25. | Sannlega segi ég yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins til þess dags, er ég drekk hann nýjan í Guðs ríki.`` |
26. | Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn, fóru þeir til Olíufjallsins. |
27. | Og Jesús sagði við þá: ,,Þér munuð allir hneykslast, því að ritað er: Ég mun slá hirðinn, og sauðirnir munu tvístrast. |
28. | En eftir að ég er upp risinn, mun ég fara á undan yður til Galíleu.`` |
29. | Þá sagði Pétur: ,,Þótt allir hneykslist, geri ég það aldrei.`` |
30. | Jesús sagði við hann: ,,Sannlega segi ég þér: Nú í nótt, áður en hani galar tvisvar, muntu þrisvar afneita mér.`` |
31. | En Pétur kvað enn fastar að: ,,Þó að ég ætti að deyja með þér, þá mun ég aldrei afneita þér.`` Eins töluðu þeir allir. |
32. | Þeir koma til staðar, er heitir Getsemane, og Jesús segir við lærisveina sína: ,,Setjist hér, meðan ég biðst fyrir.`` |
33. | Hann tók með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes. Og nú setti að honum ógn og angist. |
34. | Hann segir við þá: ,,Sál mín er hrygg allt til dauða. Bíðið hér og vakið.`` |
35. | Þá gekk hann lítið eitt áfram, féll til jarðar og bað, að sú stund færi fram hjá sér, ef verða mætti. |
36. | Hann sagði: ,,Abba, faðir! allt megnar þú. Tak þennan kaleik frá mér! Þó ekki sem ég vil, heldur sem þú vilt.`` |
37. | Hann kemur aftur og finnur þá sofandi. Þá sagði hann við Pétur: ,,Símon, sefur þú? Gastu ekki vakað eina stund? |
38. | Vakið og biðjið, að þér fallið ekki í freistni. Andinn er reiðubúinn, en holdið veikt.`` |
39. | Aftur vék hann brott og baðst fyrir með sömu orðum. |
40. | Þegar hann kom aftur, fann hann þá enn sofandi, því drungi var á augum þeirra. Og ekki vissu þeir, hvað þeir ættu að segja við hann. |
41. | Í þriðja sinn kom hann og sagði við þá: ,,Sofið þér enn og hvílist? Nú er nóg. Stundin er komin. Mannssonurinn er framseldur í hendur syndugra manna. |
42. | Standið upp, förum! Sá er í nánd, er mig svíkur.`` |
43. | Um leið, meðan hann var enn að tala, kemur Júdas, einn þeirra tólf, og með honum flokkur manna frá æðstu prestunum, fræðimönnunum og öldungunum, og höfðu þeir sverð og barefli. |
44. | Svikarinn hafði sagt þeim þetta til marks: ,,Sá sem ég kyssi, hann er það. Takið hann höndum og færið brott í tryggri vörslu.`` |
45. | Hann kemur, gengur beint að Jesú og segir: ,,Rabbí!`` og kyssti hann. |
46. | En hinir lögðu hendur á hann og tóku hann. |
47. | Einn þeirra, er hjá stóðu, brá sverði, hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað. |
48. | Þá sagði Jesús við þá: ,,Eruð þér að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja til að handtaka mig? |
49. | Daglega var ég hjá yður í helgidóminum og kenndi, og þér tókuð mig ekki höndum. En ritningarnar hljóta að rætast.`` |
50. | Þá yfirgáfu hann allir lærisveinar hans og flýðu. |
51. | En maður nokkur ungur fylgdist með honum. Hann hafði línklæði eitt á berum sér. Þeir vildu taka hann, |
52. | en hann lét eftir línklæðið og flýði nakinn. |
53. | Nú færðu þeir Jesú til æðsta prestsins. Þar komu saman allir æðstu prestarnir, öldungarnir og fræðimennirnir. |
54. | Pétur fylgdi honum álengdar, allt inn í garð æðsta prestsins. Þar sat hann hjá þjónunum og vermdi sig við eldinn. |
55. | Æðstu prestarnir og allt ráðið leituðu vitnis gegn Jesú til að geta líflátið hann, en fundu eigi. |
56. | Margir báru þó ljúgvitni gegn honum, en framburði þeirra bar ekki saman. |
57. | Þá stóðu nokkrir upp og báru ljúgvitni gegn honum og sögðu: |
58. | ,,Vér heyrðum hann segja: ,Ég mun brjóta niður musteri þetta, sem með höndum er gjört, og reisa annað á þrem dögum, sem ekki er með höndum gjört.` `` |
59. | En ekki bar þeim heldur saman um þetta. |
60. | Þá stóð æðsti presturinn upp og spurði Jesú: ,,Svarar þú því engu, sem þessir vitna gegn þér?`` |
61. | En hann þagði og svaraði engu. Enn spurði æðsti presturinn hann: ,,Ertu Kristur, sonur hins blessaða?`` |
62. | Jesús sagði: ,,Ég er sá, og þér munuð sjá Mannssoninn sitja til hægri handar máttarins og koma í skýjum himins.`` |
63. | Þá reif æðsti presturinn klæði sín og sagði: ,,Hvað þurfum vér nú framar votta við? |
64. | Þér heyrðuð guðlastið. Hvað líst yður?`` Og þeir dæmdu hann allir sekan og dauða verðan. |
65. | Þá tóku sumir að hrækja á hann, þeir huldu andlit hans, slógu hann með hnefunum og sögðu við hann: ,,Spáðu!`` Eins börðu þjónarnir hann. |
66. | Pétur var niðri í garðinum. Þar kom ein af þernum æðsta prestsins |
67. | og sá, hvar Pétur var að orna sér. Hún horfir á hann og segir: ,,Þú varst líka með manninum frá Nasaret, þessum Jesú.`` |
68. | Því neitaði hann og sagði: ,,Ekki veit ég né skil, hvað þú ert að fara.`` Og hann gekk út í forgarðinn, [en þá gól hani.] |
69. | Þar sá þernan hann og fór enn að segja við þá, sem hjá stóðu: ,,Þessi er einn af þeim.`` |
70. | En hann neitaði sem áður. Litlu síðar sögðu þeir, er hjá stóðu enn við Pétur: ,,Víst ertu einn af þeim, enda ertu Galíleumaður.`` |
71. | En hann sór og sárt við lagði: ,,Ég þekki ekki þennan mann, sem þér talið um.``Um leið gól hani annað sinn, og Pétur minntist þess, er Jesús hafði mælt við hann: ,,Áður en hani galar tvisvar muntu þrisvar afneita mér.`` Þá fór hann að gráta. |
72. | Um leið gól hani annað sinn, og Pétur minntist þess, er Jesús hafði mælt við hann: ,,Áður en hani galar tvisvar muntu þrisvar afneita mér.`` Þá fór hann að gráta. |
← Mark (14/16) → |