← Mark (13/16) → |
1. | Þegar Jesús gekk út úr helgidóminum, segir einn lærisveina hans við hann: ,,Meistari, lít á, hvílíkir steinar, hvílíkar byggingar!`` |
2. | Jesús svaraði honum: ,,Sérðu þessar miklu byggingar? Ekki mun eftir látinn steinn yfir steini, er eigi sé niður brotinn.`` |
3. | Þá er hann sat á Olíufjallinu gegnt helgidóminum, spurðu hann einslega þeir Pétur, Jakob, Jóhannes og Andrés: |
4. | ,,Seg þú oss, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn þess, að allt þetta sé að koma fram?`` |
5. | En Jesús tók að segja þeim: ,,Varist að láta nokkurn leiða yður í villu. |
6. | Margir munu koma í mínu nafni og segja: ,Það er ég!` og marga munu þeir leiða í villu. |
7. | En þegar þér spyrjið hernað og ófriðartíðindi, þá skelfist ekki. Þetta á að verða, en endirinn er ekki þar með kominn. |
8. | Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá verða landskjálftar á ýmsum stöðum og hungur. Þetta er upphaf fæðingarhríðanna. |
9. | Gætið að sjálfum yður. Menn munu draga yður fyrir dómstóla, í samkundum verðið þér húðstrýktir, og þér munuð leiddir fyrir landshöfðingja og konunga mín vegna, þeim til vitnisburðar. |
10. | En fyrst á að prédika öllum þjóðum fagnaðarerindið. |
11. | Þegar menn taka yður og draga fyrir rétt, hafið þá ekki fyrirfram áhyggjur af því, hvað þér eigið að segja, heldur talið það, sem yður verður gefið á þeirri stundu. Þér eruð ekki þeir sem tala, heldur heilagur andi. |
12. | Þá mun bróðir selja bróður í dauða og faðir barn sitt. Börn munu rísa gegn foreldrum og valda þeim dauða. |
13. | Og þér munuð hataðir af öllum vegna nafns míns. En sá sem staðfastur er allt til enda, mun hólpinn verða. |
14. | En þegar þér sjáið viðurstyggð eyðingarinnar standa þar, er ekki skyldi _ lesandinn athugi það _ þá flýi þeir, sem í Júdeu eru, til fjalla. |
15. | Sá sem er uppi á þaki, fari ekki ofan og inn í húsið að sækja neitt. |
16. | Og sá sem er á akri, skal ekki hverfa aftur að taka yfirhöfn sína. |
17. | Vei þeim sem þungaðar eru eða börn hafa á brjósti á þeim dögum. |
18. | Biðjið, að það verði ekki um vetur. |
19. | Á þeim dögum verður sú þrenging, sem engin hefur þvílík verið frá upphafi sköpunar, er Guð skapaði, allt til þessa, og mun aldrei verða. |
20. | Ef Drottinn hefði ekki stytt þessa daga, kæmist enginn maður af. En hann hefur stytt þá vegna þeirra, sem hann hefur útvalið. |
21. | Og ef einhver segir þá við yður: ,Hér er Kristur,` eða: ,Þar,` þá trúið því ekki. |
22. | Því að fram munu koma falskristar og falsspámenn, og þeir munu gjöra tákn og undur til að leiða afvega hina útvöldu ef orðið gæti. |
23. | Verið varir um yður. Ég hef sagt yður allt fyrir. |
24. | En á þeim dögum, eftir þrenging þessa, mun sólin sortna og tunglið hætta að skína. |
25. | Stjörnurnar munu hrapa af himni og kraftar himnanna bifast. |
26. | Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýjum með miklum mætti og dýrð. |
27. | Og hann mun senda út englana og safna sínum útvöldu úr áttunum fjórum, frá skautum jarðar til himinskauta. |
28. | Nemið líkingu af fíkjutrénu. Þegar greinar þess fara að mýkjast og laufið að springa út, þá vitið þér, að sumar er í nánd. |
29. | Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið þetta verða, að hann er í nánd, fyrir dyrum. |
30. | Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok, uns allt þetta er komið fram. |
31. | Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða. |
32. | En þann dag eða stund veit enginn, hvorki englar á himni né sonurinn, enginn nema faðirinn. |
33. | Verið varir um yður, vakið! Þér vitið ekki, nær tíminn er kominn. |
34. | Svo er þetta sem maður fari úr landi, skilji við hús sitt og feli þjónum sínum umráðin, hverjum sitt verk. Dyraverðinum býður hann að vaka. |
35. | Vakið því, þér vitið ekki, nær húsbóndinn kemur, að kveldi, á miðnætti, í óttu eða dögun. |
36. | Látið hann ekki finna yður sofandi, þegar hann kemur allt í einu.Það sem ég segi yður, það segi ég öllum: Vakið!`` |
37. | Það sem ég segi yður, það segi ég öllum: Vakið!`` |
← Mark (13/16) → |