← Mark (12/16) → |
1. | Og hann tók að tala til þeirra í dæmisögum: ,,Maður plantaði víngarð. Hann hlóð garð um hann, gróf fyrir vínþröng og reisti turn, seldi hann síðan vínyrkjum á leigu og fór úr landi. |
2. | Á settum tíma sendi hann þjón til vínyrkjanna að fá hjá þeim hlut af ávexti víngarðsins. |
3. | En þeir tóku hann og börðu og sendu burt tómhentan. |
4. | Aftur sendi hann til þeirra annan þjón. Hann lömdu þeir í höfuðið og svívirtu. |
5. | Enn sendi hann annan, og hann drápu þeir, og marga fleiri ýmist börðu þeir eða drápu. |
6. | Einn átti hann eftir enn, elskaðan son. Hann sendi hann síðastan til þeirra og sagði: ,Þeir munu virða son minn.` |
7. | En vínyrkjar þessir sögðu sín á milli: ,Þetta er erfinginn. Förum og drepum hann, þá fáum vér arfinn.` |
8. | Og þeir tóku hann og drápu og köstuðu honum út fyrir víngarðinn. |
9. | Hvað mun nú eigandi víngarðsins gjöra? Hann mun koma, tortíma vínyrkjunum og fá öðrum víngarðinn. |
10. | Hafið þér eigi lesið þessa ritningu: Sá steinn, sem smiðirnir höfnuðu, er orðinn hyrningarsteinn. |
11. | Þetta er verk Drottins, og undursamlegt er það í augum vorum.`` |
12. | Þeir vildu taka hann höndum, en óttuðust fólkið. Þeir skildu, að hann átti við þá með dæmisögunni. Og þeir yfirgáfu hann og gengu burt. |
13. | Þá sendu þeir til hans nokkra farísea og Heródesarsinna, og skyldu þeir veiða hann í orðum. |
14. | Þeir koma og segja við hann: ,,Meistari, vér vitum, að þú ert sannorður og hirðir ekki um álit neins, enda gjörir þú þér engan mannamun, heldur kennir Guðs veg í sannleika. Leyfist að gjalda keisaranum skatt eða ekki? Eigum vér að gjalda eða ekki gjalda?`` |
15. | En hann sá hræsni þeirra og sagði við þá: ,,Hví freistið þér mín? Fáið mér denar, látið mig sjá.`` |
16. | Þeir fengu honum pening. Hann spyr: ,,Hvers mynd og yfirskrift er þetta?`` Þeir svöruðu: ,,Keisarans.`` |
17. | En Jesús sagði við þá: ,,Gjaldið keisaranum það, sem keisarans er, og Guði það, sem Guðs er.`` Og þá furðaði stórlega á honum. |
18. | Saddúkear komu til hans, en þeir neita því, að upprisa sé til, og sögðu við hann: |
19. | ,,Meistari, Móse segir oss í ritningunum, ,að deyi maður barnlaus, en láti eftir sig konu, skuli bróðir hans ganga að eiga ekkjuna og vekja honum niðja.` |
20. | Nú voru sjö bræður. Sá fyrsti tók sér konu, en dó barnlaus. |
21. | Annar bróðirinn gekk að eiga hana og dó barnlaus. Eins hinn þriðji, |
22. | og allir sjö urðu barnlausir. Síðast allra dó konan. |
23. | Í upprisunni, þegar menn rísa upp, kona hvers þeirra verður hún þá? Allir sjö höfðu átt hana.`` |
24. | Jesús svaraði þeim: ,,Er það ekki þetta, sem veldur því, að þér villist: Þér þekkið ekki ritningarnar né mátt Guðs? |
25. | Þegar menn rísa upp frá dauðum, kvænast þeir hvorki né giftast. Þeir eru sem englar á himnum. |
26. | En um þá dauðu, að þeir rísa upp, hafið þér ekki lesið það í bók Móse, í sögunni um þyrnirunninn? Guð segir við Móse: ,Ég er Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs.` |
27. | Ekki er hann Guð dauðra heldur lifenda. Þér villist stórlega.`` |
28. | Þá kom til hans fræðimaður einn. Hann hafði hlýtt á orðaskipti þeirra og fann, að Jesús hafði svarað þeim vel. Hann spurði: ,,Hvert er æðst allra boðorða?`` |
29. | Jesús svaraði: ,,Æðst er þetta: ,Heyr, Ísrael! Drottinn, Guð vor, hann einn er Drottinn. |
30. | Og þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum huga þínum og öllum mætti þínum.` |
31. | Annað er þetta: ,Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.` Ekkert boðorð annað er þessum meira.`` |
32. | Fræðimaðurinn sagði þá við hann: ,,Rétt er það, meistari, satt sagðir þú, að einn er hann og enginn er annar en hann. |
33. | Og að elska hann af öllu hjarta, öllum skilningi og öllum mætti og elska náungann eins og sjálfan sig, það er öllum brennifórnum og sláturfórnum meira.`` |
34. | Jesús sá, að hann svaraði viturlega, og sagði við hann: ,,Þú ert ekki fjarri Guðs ríki.`` Og enginn þorði framar að spyrja hann. |
35. | Þegar Jesús var að kenna í helgidóminum, sagði hann: ,,Hvernig geta fræðimennirnir sagt, að Kristur sé sonur Davíðs? |
36. | Sjálfur mælti Davíð af heilögum anda: Drottinn sagði við minn drottin: Set þig mér til hægri handar, þangað til ég gjöri óvini þína að fótskör þinni. |
37. | Davíð kallar hann sjálfur drottin. Hvernig getur hann þá verið sonur hans?`` Og hinn mikli mannfjöldi hlýddi fúslega á hann. |
38. | Í kenningu sinni sagði hann: ,,Varist fræðimennina, sem fýsir að ganga í síðskikkjum og láta heilsa sér á torgum, |
39. | vilja skipa æðsta bekk í samkundum og hefðarsæti í veislum. |
40. | Þeir eta upp heimili ekkna og flytja langar bænir að yfirskini. Þeir munu fá því þyngri dóm.`` |
41. | Jesús settist gegnt fjárhirslunni og horfði á fólkið leggja peninga í hana. Margir auðmenn lögðu þar mikið. |
42. | Þá kom ekkja ein fátæk og lét þar tvo smápeninga, eins eyris virði. |
43. | Og hann kallaði til sín lærisveina sína og sagði við þá: ,,Sannlega segi ég yður, þessi fátæka ekkja gaf meira en allir hinir, er lögðu í fjárhirsluna.Allir gáfu þeir af allsnægtum sínum, en hún gaf af skorti sínum allt sem hún átti, alla björg sína.`` |
44. | Allir gáfu þeir af allsnægtum sínum, en hún gaf af skorti sínum allt sem hún átti, alla björg sína.`` |
← Mark (12/16) → |