Mark (1/16) → |
1. | Upphaf fagnaðarerindisins um Jesú Krist, Guðs son. |
2. | Svo er ritað hjá Jesaja spámanni: Sjá, ég sendi sendiboða minn á undan þér, er greiða mun veg þinn. |
3. | Rödd hrópanda í eyðimörk: Greiðið veg Drottins, gjörið beinar brautir hans. |
4. | Þannig kom Jóhannes skírari fram í óbyggðinni og prédikaði iðrunarskírn til fyrirgefningar synda, |
5. | og menn streymdu til hans frá allri Júdeubyggð og allir Jerúsalembúar og létu skírast af honum í ánni Jórdan og játuðu syndir sínar. |
6. | En Jóhannes var í klæðum úr úlfaldahári, með leðurbelti um lendar sér og át engisprettur og villihunang. |
7. | Hann prédikaði svo: ,,Sá kemur eftir mig, sem mér er máttugri, og er ég ekki verður þess að krjúpa niður og leysa skóþveng hans. |
8. | Ég hef skírt yður með vatni, en hann mun skíra yður með heilögum anda.`` |
9. | Svo bar við á þeim dögum, að Jesús kom frá Nasaret í Galíleu og var skírður af Jóhannesi í Jórdan. |
10. | Um leið og hann sté upp úr vatninu, sá hann himnana ljúkast upp og andann stíga niður yfir sig eins og dúfu. |
11. | Og rödd kom af himnum: ,,Þú ert minn elskaði sonur, á þér hef ég velþóknun.`` |
12. | Þá knúði andinn hann út í óbyggðina, |
13. | og hann var í óbyggðinni fjörutíu daga, og Satan freistaði hans. Hann hafðist við meðal villidýra, og englar þjónuðu honum. |
14. | Þegar Jóhannes hafði verið tekinn höndum, kom Jesús til Galíleu og prédikaði fagnaðarerindi Guðs |
15. | og sagði: ,,Tíminn er fullnaður og Guðs ríki í nánd. Gjörið iðrun og trúið fagnaðarerindinu.`` |
16. | Jesús var á gangi með Galíleuvatni og sá Símon og Andrés, bróður Símonar, vera að kasta netum í vatnið, en þeir voru fiskimenn. |
17. | Jesús sagði við þá: ,,Komið og fylgið mér, og mun ég láta yður menn veiða.`` |
18. | Og þegar í stað létu þeir eftir netin og fylgdu honum. |
19. | Hann gekk skammt þaðan og sá Jakob Sebedeusson og Jóhannes bróður hans, og voru þeir einnig á báti að búa net. |
20. | Jesús kallaði þá, og þeir yfirgáfu Sebedeus föður sinn hjá daglaunamönnunum í bátnum og fylgdu honum. |
21. | Þeir komu til Kapernaum. Og hvíldardaginn gekk Jesús í samkunduna og kenndi. |
22. | Undruðust menn mjög kenningu hans, því að hann kenndi þeim eins og sá er vald hefur, og ekki eins og fræðimennirnir. |
23. | Þar var í samkundu þeirra maður haldinn óhreinum anda. Hann æpti: |
24. | ,,Hvað vilt þú oss, Jesús frá Nasaret? Ert þú kominn að tortíma oss? Ég veit, hver þú ert, hinn heilagi Guðs.`` |
25. | Jesús hastaði þá á hann og mælti: ,,Þegi þú, og far út af honum.`` |
26. | Þá teygði óhreini andinn manninn, rak upp hljóð mikið og fór út af honum. |
27. | Sló felmtri á alla, og hver spurði annan: ,,Hvað er þetta? Ný kenning með valdi! Hann skipar jafnvel óhreinum öndum og þeir hlýða honum.`` |
28. | Og orðstír hans barst þegar um alla Galíleu. |
29. | Úr samkundunni fóru þeir rakleitt í hús Símonar og Andrésar og með þeim Jakob og Jóhannes. |
30. | Tengdamóðir Símonar lá með sótthita, og sögðu þeir Jesú þegar frá henni. |
31. | Hann gekk þá að, tók í hönd henni og reisti hana á fætur. Sótthitinn fór úr henni, og hún gekk þeim fyrir beina. |
32. | Þegar kvöld var komið og sólin setst, færðu menn til hans alla þá, er sjúkir voru og haldnir illum öndum, |
33. | og allur bærinn var saman kominn við dyrnar. |
34. | Hann læknaði marga, er þjáðust af ýmsum sjúkdómum, og rak út marga illa anda, en illu öndunum bannaði hann að tala, því að þeir vissu hver hann var. |
35. | Og árla, löngu fyrir dögun, fór hann á fætur og gekk út, vék burt á óbyggðan stað og baðst þar fyrir. |
36. | Þeir Símon leituðu hann uppi, |
37. | og þegar þeir fundu hann, sögðu þeir við hann: ,,Allir eru að leita að þér.`` |
38. | Hann sagði við þá: ,,Vér skulum fara annað, í þorpin hér í grennd, svo að ég geti einnig prédikað þar, því að til þess er ég kominn.`` |
39. | Og hann fór og prédikaði í samkundum þeirra í allri Galíleu og rak út illa anda. |
40. | Maður nokkur líkþrár kom til hans, féll á kné og bað hann: ,,Ef þú vilt, getur þú hreinsað mig.`` |
41. | Og hann kenndi í brjósti um manninn, rétti út höndina, snart hann og mælti: ,,Ég vil, verð þú hreinn!`` |
42. | Jafnskjótt hvarf af honum líkþráin, og hann varð hreinn. |
43. | Og Jesús lét hann fara, lagði ríkt á við hann |
44. | og sagði: ,,Gæt þess að segja engum neitt, en far þú, sýn þig prestinum og fórna fyrir hreinsun þína því, sem Móse bauð, þeim til vitnisburðar.``En maðurinn gekk burt og ræddi margt um þetta og víðfrægði mjög, svo að Jesús gat ekki framar komið opinberlega í neina borg, heldur hafðist við úti á óbyggðum stöðum. En menn komu til hans hvaðanæva. |
45. | En maðurinn gekk burt og ræddi margt um þetta og víðfrægði mjög, svo að Jesús gat ekki framar komið opinberlega í neina borg, heldur hafðist við úti á óbyggðum stöðum. En menn komu til hans hvaðanæva. |
Mark (1/16) → |