← Luke (6/24) → |
1. | En svo bar við á hvíldardegi, að hann fór um sáðlönd, og tíndu lærisveinar hans kornöx, neru milli handanna og átu. |
2. | Þá sögðu farísear nokkrir: ,,Hví gjörið þér það, sem er ekki leyfilegt á hvíldardegi?`` |
3. | Og Jesús svaraði þeim: ,,Hafið þér þá ekki lesið, hvað Davíð gjörði, er hann hungraði og menn hans? |
4. | Hann fór inn í Guðs hús, tók skoðunarbrauðin og át og gaf mönnum sínum, en þau má enginn eta nema prestarnir einir.`` |
5. | Og hann sagði við þá: ,,Mannssonurinn er herra hvíldardagsins.`` |
6. | Annan hvíldardag gekk hann í samkunduna og kenndi. Þar var maður nokkur með visna hægri hönd. |
7. | En fræðimenn og farísear höfðu nánar gætur á Jesú, hvort hann læknaði á hvíldardegi, svo að þeir fengju tilefni að kæra hann. |
8. | En hann vissi hugsanir þeirra og sagði við manninn með visnu höndina: ,,Statt upp, og kom hér fram.`` Og hann stóð upp og kom. |
9. | Jesús sagði við þá: ,,Ég spyr yður, hvort er heldur leyfilegt að gjöra gott eða gjöra illt á hvíldardegi, bjarga lífi eða granda því?`` |
10. | Hann leit í kring á þá alla og sagði við manninn: ,,Réttu fram hönd þína.`` Hann gjörði svo, og hönd hans varð heil. |
11. | En þeir urðu æfir við og ræddu sín á milli, hvað þeir gætu gjört Jesú. |
12. | En svo bar við um þessar mundir, að hann fór til fjalls að biðjast fyrir og var alla nóttina á bæn til Guðs. |
13. | Og er dagur rann, kallaði hann til sín lærisveina sína, valdi tólf úr þeirra hópi og nefndi þá postula. |
14. | Þeir voru: Símon, sem hann nefndi Pétur, Andrés bróðir hans, Jakob og Jóhannes, Filippus og Bartólómeus, |
15. | Matteus og Tómas, Jakob Alfeusson og Símon, kallaður vandlætari, |
16. | og Júdas Jakobsson og Júdas Ískaríot, sem varð svikari. |
17. | Hann gekk ofan með þeim og nam staðar á sléttri flöt. Þar var stór hópur lærisveina hans og mikill fjöldi fólks úr allri Júdeu, frá Jerúsalem og sjávarbyggðum Týrusar og Sídonar, |
18. | er komið hafði til að hlýða á hann og fá lækning meina sinna. Einnig voru þeir læknaðir, er þjáðir voru af óhreinum öndum. |
19. | Allt fólkið reyndi að snerta hann, því að frá honum kom kraftur, er læknaði alla. |
20. | Þá hóf hann upp augu sín, leit á lærisveina sína og sagði: ,,Sælir eruð þér, fátækir, því að yðar er Guðs ríki. |
21. | Sælir eruð þér, sem nú hungrar, því að þér munuð saddir verða. Sælir eruð þér, sem nú grátið, því að þér munuð hlæja. |
22. | Sælir eruð þér, þá er menn hata yður, þá er þeir útskúfa yður og smána og bera út óhróður um yður vegna Mannssonarins. |
23. | Fagnið á þeim degi og leikið af gleði, því laun yðar eru mikil á himni, og á sama veg fóru feður þeirra með spámennina. |
24. | En vei yður, þér auðmenn, því að þér hafið tekið út huggun yðar. |
25. | Vei yður, sem nú eruð saddir, því að yður mun hungra. Vei yður, sem nú hlæið, því að þér munuð sýta og gráta. |
26. | Vei yður, þá er allir menn tala vel um yður, því að á sama veg fórst feðrum þeirra við falsspámennina. |
27. | En ég segi yður, er á mig hlýðið: Elskið óvini yðar, gjörið þeim gott, sem hata yður, |
28. | blessið þá, sem bölva yður, og biðjið fyrir þeim, er misþyrma yður. |
29. | Slái þig einhver á kinnina, skaltu og bjóða hina, og taki einhver yfirhöfn þína, skaltu ekki varna honum að taka kyrtilinn líka. |
30. | Gef þú hverjum sem biður þig, og þann, sem tekur þitt frá þér, skaltu eigi krefja. |
31. | Og svo sem þér viljið, að aðrir menn gjöri við yður, svo skuluð þér og þeim gjöra. |
32. | Og þótt þér elskið þá, sem yður elska, hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar elska þá líka, sem þá elska. |
33. | Og þótt þér gjörið þeim gott, sem yður gjöra gott, hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar gjöra og hið sama. |
34. | Og þótt þér lánið þeim, sem þér vonið að muni borga, hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar lána einnig syndurum til þess að fá allt aftur. |
35. | Nei, elskið óvini yðar, og gjörið gott og lánið án þess að vænta nokkurs í staðinn, og laun yðar munu verða mikil, og þér verða börn hins hæsta, því að hann er góður við vanþakkláta og vonda. |
36. | Verið miskunnsamir, eins og faðir yðar er miskunnsamur. |
37. | Dæmið ekki, og þér munuð eigi dæmdir verða. Sakfellið eigi, og þér munuð eigi sakfelldir verða. Sýknið, og þér munuð sýknaðir verða. |
38. | Gefið, og yður mun gefið verða. Góður mælir, troðinn, skekinn, fleytifullur mun lagður í skaut yðar. Því með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður aftur mælt verða.`` |
39. | Þá sagði hann þeim og líkingu: ,,Hvort fær blindur leitt blindan? Munu ekki báðir falla í gryfju? |
40. | Ekki er lærisveinn meistaranum fremri, en hver sem er fullnuma, verður eins og meistari hans. |
41. | Hví sérð þú flísina í auga bróður þíns, en tekur ekki eftir bjálkanum í auga sjálfs þín? |
42. | Hvernig fær þú sagt við bróður þinn: ,Bróðir, lát mig draga flísina úr auga þér,` en sérð þó eigi sjálfur bjálkann í þínu auga? Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér, og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns. |
43. | Því að ekki er til gott tré, er beri slæman ávöxt, né heldur slæmt tré, er beri góðan ávöxt. |
44. | En hvert tré þekkist af ávexti sínum, enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrnirunni. |
45. | Góður maður ber gott fram úr góðum sjóði hjarta síns, en vondur maður ber vont fram úr vondum sjóði. Af gnægð hjartans mælir munnur hans. |
46. | En hví kallið þér mig herra, herra, og gjörið ekki það, sem ég segi? |
47. | Ég skal sýna yður, hverjum sá er líkur, sem kemur til mín, heyrir orð mín og breytir eftir þeim. |
48. | Hann er líkur manni, er byggði hús, gróf djúpt fyrir og grundvallaði það á bjargi. Nú kom flóð og flaumurinn skall á því húsi, en fékk hvergi hrært það, vegna þess að það var vel byggt.Hinn, er heyrir og gjörir ekki, er líkur manni, sem byggði hús á jörðinni án undirstöðu. Flaumurinn skall á því, og það hús féll þegar, og fall þess varð mikið.`` |
49. | Hinn, er heyrir og gjörir ekki, er líkur manni, sem byggði hús á jörðinni án undirstöðu. Flaumurinn skall á því, og það hús féll þegar, og fall þess varð mikið.`` |
← Luke (6/24) → |