← Luke (5/24) → |
1. | Nú bar svo til, að hann stóð við Genesaretvatn og mannfjöldinn þrengdist að honum til að hlýða á Guðs orð. |
2. | Þá sá hann tvo báta við vatnið, en fiskimennirnir voru farnir í land og þvoðu net sín. |
3. | Hann fór út í þann bátinn, er Símon átti, og bað hann að leggja lítið eitt frá landi, settist og tók að kenna mannfjöldanum úr bátnum. |
4. | Þegar hann hafði lokið ræðu sinni, sagði hann við Símon: ,,Legg þú út á djúpið, og leggið net yðar til fiskjar.`` |
5. | Símon svaraði: ,,Meistari, vér höfum stritað í alla nótt og ekkert fengið, en fyrst þú segir það, skal ég leggja netin.`` |
6. | Nú gjörðu þeir svo, og fengu þeir þá mikinn fjölda fiska, en net þeirra tóku að rifna. |
7. | Bentu þeir þá félögum sínum á hinum bátnum að koma og hjálpa sér. Þeir komu og hlóðu báða bátana, svo að nær voru sokknir. |
8. | Þegar Símon Pétur sá þetta, féll hann fyrir kné Jesú og sagði: ,,Far þú frá mér, herra, því að ég er syndugur maður.`` |
9. | En felmtur kom á hann og alla þá, sem með honum voru, vegna fiskaflans, er þeir höfðu fengið. |
10. | Eins var um Jakob og Jóhannes Sebedeussyni, félaga Símonar. Jesús sagði þá við Símon: ,,Óttast þú ekki, héðan í frá skalt þú menn veiða.`` |
11. | Og þeir lögðu bátunum að landi, yfirgáfu allt og fylgdu honum. |
12. | Svo bar við, er hann var í einni borginni, að þar var maður altekinn líkþrá. Hann sá Jesú, féll fram á ásjónu sína og bað hann: ,,Herra, ef þú vilt, getur þú hreinsað mig.`` |
13. | Jesús rétti út höndina, snart hann og mælti: ,,Ég vil, verð þú hreinn!`` Jafnskjótt hvarf af honum líkþráin. |
14. | Og hann bauð honum að segja þetta engum. ,,En far þú,`` sagði hann, ,,sýn þig prestinum, og fórna fyrir hreinsun þína, eins og Móse bauð, þeim til vitnisburðar.`` |
15. | En fregnin um hann breiddist út því meir, og menn komu hópum saman til að hlýða á hann og læknast af meinum sínum. |
16. | En hann dró sig einatt í hlé til óbyggðra staða og var þar á bæn. |
17. | Dag nokkurn var hann að kenna. Þar sátu farísear og lögmálskennendur, komnir úr hverju þorpi í Galíleu og Júdeu og frá Jerúsalem, og kraftur Drottins var með honum til þess að lækna. |
18. | Komu þá menn með lama mann í rekkju og reyndu að bera hann inn og leggja hann fyrir framan Jesú. |
19. | En vegna mannfjöldans sáu þeir engin ráð til að komast inn með hann og fóru því upp á þak og létu hann síga í rekkjunni niður um helluþekjuna beint fram fyrir Jesú. |
20. | Og er hann sá trú þeirra, sagði hann: ,,Maður, syndir þínar eru þér fyrirgefnar.`` |
21. | Þá tóku fræðimennirnir og farísearnir að hugsa með sér: ,,Hver er sá, er fer með slíka guðlöstun? Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn?`` |
22. | En Jesús skynjaði gjörla hugsanir þeirra og sagði við þá: ,,Hvað hugsið þér í hjörtum yðar? |
23. | Hvort er auðveldara að segja: ,Syndir þínar eru þér fyrirgefnar,` eða segja: ,Statt upp og gakk`? |
24. | En til þess að þér vitið, að Mannssonurinn hefur vald á jörðu til að fyrirgefa syndir, þá segi ég þér:`` _ og nú talar hann við lama manninn _ ,,Statt upp, tak rekkju þína, og far heim til þín.`` |
25. | Jafnskjótt stóð hann upp frammi fyrir þeim, tók það, sem hann hafði legið á, fór heim til sín og lofaði Guð. |
26. | En allir voru furðu lostnir og lofuðu Guð. Og þeir urðu ótta slegnir og sögðu: ,,Óskiljanlegt er það, sem vér höfum séð í dag.`` |
27. | Eftir þetta fór hann út. Þá sá hann tollheimtumann, Leví að nafni, sitja hjá tollbúðinni og sagði við hann: ,,Fylg þú mér!`` |
28. | Og hann stóð upp, yfirgaf allt og fylgdi honum. |
29. | Leví bjó honum veislu mikla í húsi sínu, og þar sat að borði með þeim mikill fjöldi tollheimtumanna og annarra. |
30. | En farísearnir og fræðimenn þeirra vönduðu um við lærisveina hans og sögðu: ,,Hvers vegna etið þér og drekkið með tollheimtumönnum og bersyndugum?`` |
31. | Og Jesús svaraði þeim: ,,Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir sem sjúkir eru. |
32. | Ég er ekki kominn til að kalla réttláta, heldur syndara til iðrunar.`` |
33. | En þeir sögðu við hann: ,,Lærisveinar Jóhannesar fasta oft og fara með bænir og eins lærisveinar farísea, en þínir eta og drekka.`` |
34. | Jesús sagði við þá: ,,Hvort getið þér ætlað brúðkaupsgestum að fasta, meðan brúðguminn er hjá þeim? |
35. | En koma munu þeir dagar, er brúðguminn verður frá þeim tekinn, þá munu þeir fasta á þeim dögum.`` |
36. | Hann sagði þeim einnig líkingu: ,,Enginn rífur bót af nýju fati og lætur á gamalt fat, því að bæði rífur hann þá nýja fatið og bótin af því hæfir ekki hinu gamla. |
37. | Og enginn lætur nýtt vín á gamla belgi, því þá sprengir nýja vínið belgina og fer niður, en belgirnir ónýtast. |
38. | Nýtt vín ber að láta á nýja belgi.Og enginn, sem drukkið hefur gamalt vín, vill nýtt, því að hann segir: ,Hið gamla er gott.``` |
39. | Og enginn, sem drukkið hefur gamalt vín, vill nýtt, því að hann segir: ,Hið gamla er gott.``` |
← Luke (5/24) → |