← Luke (3/24) → |
1. | Á fimmtánda stjórnarári Tíberíusar keisara, þegar Pontíus Pílatus var landstjóri í Júdeu, en Heródes fjórðungsstjóri í Galíleu, Filippus bróðir hans í Ítúreu og Trakónítishéraði og Lýsanías í Abílene, |
2. | í æðstapreststíð Annasar og Kaífasar, kom orð Guðs til Jóhannesar Sakaríasonar í óbyggðinni. |
3. | Og hann fór um alla Jórdanbyggð og prédikaði iðrunarskírn til fyrirgefningar synda, |
4. | eins og ritað er í bók Jesaja spámanns: Rödd hrópanda í eyðimörk: Greiðið veg Drottins, gjörið beinar brautir hans. |
5. | Öll gil skulu fyllast, öll fell og hálsar lægjast. Krókar skulu verða beinir og óvegir sléttar götur. |
6. | Og allir menn munu sjá hjálpræði Guðs. |
7. | Við mannfjöldann, sem fór út til að skírast af honum, sagði hann: ,,Þér nöðru kyn, hver kenndi yður að flýja komandi reiði? |
8. | Berið þá ávexti samboðna iðruninni, og farið ekki að segja með sjálfum yður: ,Vér eigum Abraham að föður.` Ég segi yður, að Guð getur vakið Abraham börn af steinum þessum. |
9. | Öxin er þegar lögð að rótum trjánna og hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og í eld kastað.`` |
10. | Mannfjöldinn spurði hann: ,,Hvað eigum vér þá að gjöra?`` |
11. | En hann svaraði þeim: ,,Sá sem á tvo kyrtla, gefi þeim, er engan á, og eins gjöri sá er matföng hefur.`` |
12. | Þá komu og tollheimtumenn til að skírast. Þeir sögðu við hann: ,,Meistari, hvað eigum vér að gjöra?`` |
13. | En hann sagði við þá: ,,Heimtið ekki meira en fyrir yður er lagt.`` |
14. | Hermenn spurðu hann einnig: ,,En hvað eigum vér að gjöra?`` Hann sagði við þá: ,,Hafið ekki fé af neinum, hvorki með ofríki né svikum. Látið yður nægja mála yðar.`` |
15. | Nú var eftirvænting vakin hjá lýðnum, og allir voru að hugsa með sjálfum sér, hvort Jóhannes kynni að vera Kristur. |
16. | En Jóhannes svaraði öllum og sagði: ,,Ég skíri yður með vatni, en sá kemur, sem mér er máttugri, og er ég ekki verður að leysa skóþveng hans. Hann mun skíra yður með heilögum anda og eldi. |
17. | Hann er með varpskófluna í hendi sér til þess að gjörhreinsa láfa sinn og safna hveitinu í hlöðu sína, en hismið mun hann brenna í óslökkvanda eldi.`` |
18. | Með mörgu öðru áminnti hann og flutti lýðnum fagnaðarboðin. |
19. | Hann vítti Heródes fjórðungsstjóra vegna Heródíasar, konu bróður hans, og fyrir allt hið illa, sem hann hafði gjört. |
20. | Þá bætti Heródes einnig því ofan á allt annað, að hann varpaði Jóhannesi í fangelsi. |
21. | Er allur lýðurinn lét skírast, var Jesús einnig skírður. Þá bar svo við, er hann gjörði bæn sína, að himinninn opnaðist, |
22. | og heilagur andi steig niður yfir hann í líkamlegri mynd, eins og dúfa, og rödd kom af himni: ,,Þú ert minn elskaði sonur, á þér hef ég velþóknun.`` |
23. | En Jesús var um þrítugt, er hann hóf starf sitt. Var hann, eftir því sem haldið var, sonur Jósefs, sonar Elí, |
24. | sonar Mattats, sonar Leví, sonar Melkí, sonar Jannaí, sonar Jósefs, |
25. | sonar Mattatíass, sonar Amoss, sonar Naúms, sonar Eslí, sonar Naggaí, |
26. | sonar Maats, sonar Mattatíass, sonar Semeíns, sonar Jóseks, sonar Jóda, |
27. | sonar Jóhanans, sonar Hresa, sonar Serúbabels, sonar Sealtíels, sonar Nerí, |
28. | sonar Melkí, sonar Addí, sonar Kósams, sonar Elmadams, sonar Ers, |
29. | sonar Jesú, sonar Elíesers, sonar Jóríms, sonar Mattats, sonar Leví, |
30. | sonar Símeons, sonar Júda, sonar Jósefs, sonar Jónams, sonar Eljakíms, |
31. | sonar Melea, sonar Menna, sonar Mattata, sonar Natans, sonar Davíðs, |
32. | sonar Ísaí, sonar Óbeðs, sonar Bóasar, sonar Salmons, sonar Naksons, |
33. | sonar Ammínadabs, sonar Admíns, sonar Arní, sonar Esroms, sonar Peres, sonar Júda, |
34. | sonar Jakobs, sonar Ísaks, sonar Abrahams, sonar Tara, sonar Nakórs, |
35. | sonar Serúgs, sonar Reú, sonar Pelegs, sonar Ebers, sonar Sela, |
36. | sonar Kenans, sonar Arpaksads, sonar Sems, sonar Nóa, sonar Lameks, |
37. | sonar Metúsala, sonar Enoks, sonar Jareds, sonar Mahalalels, sonar Kenans,sonar Enoss, sonar Sets, sonar Adams, sonar Guðs. |
38. | sonar Enoss, sonar Sets, sonar Adams, sonar Guðs. |
← Luke (3/24) → |