← Luke (22/24) → |
1. | Nú fór í hönd hátíð ósýrðu brauðanna, sú er nefnist páskar. |
2. | Og æðstu prestarnir og fræðimennirnir leituðu fyrir sér, hvernig þeir gætu ráðið hann af dögum, því að þeir voru hræddir við lýðinn. |
3. | Þá fór Satan í Júdas, sem kallaður var Ískaríot og var í tölu þeirra tólf. |
4. | Hann fór og ræddi við æðstu prestana og varðforingjana um það, hvernig hann skyldi framselja þeim Jesú. |
5. | Þeir urðu glaðir við og hétu honum fé fyrir. |
6. | Hann gekk að því og leitaði færis að framselja hann þeim, þegar fólkið væri fjarri. |
7. | Þegar sá dagur ósýrðu brauðanna kom, er slátra skyldi páskalambinu, |
8. | sendi Jesús þá Pétur og Jóhannes og sagði: ,,Farið og búið til páskamáltíðar fyrir oss.`` |
9. | Þeir sögðu við hann: ,,Hvar vilt þú, að við búum hana?`` |
10. | En hann sagði við þá: ,,Þegar þið komið inn í borgina, mætir ykkur maður, sem ber vatnsker. Fylgið honum inn þangað sem hann fer, |
11. | og segið við húsráðandann: ,Meistarinn spyr þig: Hvar er herbergið, þar sem ég get neytt páskamáltíðarinnar með lærisveinum mínum?` |
12. | Hann mun þá sýna ykkur loftsal mikinn, búinn hægindum. Hafið þar viðbúnað.`` |
13. | Þeir fóru og fundu allt eins og hann hafði sagt og bjuggu til páskamáltíðar. |
14. | Og er stundin var komin, gekk hann til borðs og postularnir með honum. |
15. | Og hann sagði við þá: ,,Hjartanlega hef ég þráð að neyta þessarar páskamáltíðar með yður, áður en ég líð. |
16. | Því ég segi yður: Eigi mun ég framar neyta hennar, fyrr en hún fullkomnast í Guðs ríki.`` |
17. | Þá tók hann kaleik, gjörði þakkir og sagði: ,,Takið þetta og skiptið með yður. |
18. | Því ég segi yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins, fyrr en Guðs ríki kemur.`` |
19. | Og hann tók brauð, gjörði þakkir, braut það, gaf þeim og sagði: ,,Þetta er líkami minn, sem fyrir yður er gefinn. Gjörið þetta í mína minningu.`` |
20. | Eins tók hann kaleikinn eftir kvöldmáltíðina og sagði: ,,Þessi kaleikur er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði, sem fyrir yður er úthellt. |
21. | En sjá, hönd þess, er mig svíkur, er á borðinu hjá mér. |
22. | Mannssonurinn fer að sönnu þá leið, sem ákveðin er, en vei þeim manni, sem því veldur, að hann verður framseldur.`` |
23. | Og þeir tóku að spyrjast á um það, hver þeirra mundi verða til þess að gjöra þetta. |
24. | Og þeir fóru að metast um, hver þeirra væri talinn mestur. |
25. | En Jesús sagði við þá: ,,Konungar þjóða drottna yfir þeim og valdhafar þeirra kallast velgjörðamenn. |
26. | En eigi sé yður svo farið, heldur sé hinn mesti yðar á meðal sem væri hann yngstur og foringinn sem þjónn. |
27. | Því hvort er sá meiri, sem situr til borðs, eða hinn, sem þjónar? Er það ekki sá sem situr til borðs? Samt er ég meðal yðar eins og þjónninn. |
28. | En þér eruð þeir sem hafið verið stöðugir með mér í freistingum mínum. |
29. | Og yður fæ ég ríki í hendur, eins og faðir minn hefur fengið mér, |
30. | að þér megið eta og drekka við borð mitt í ríki mínu, sitja í hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels. |
31. | Símon, Símon, Satan krafðist yðar að sælda yður eins og hveiti. |
32. | En ég hef beðið fyrir þér, að trú þín þrjóti ekki. Og styrk þú bræður þína, þegar þú ert snúinn við.`` |
33. | En Símon sagði við hann: ,,Herra, reiðubúinn er ég að fylgja þér bæði í fangelsi og dauða.`` |
34. | Jesús mælti: ,,Ég segi þér, Pétur: Áður en hani galar í dag, munt þú þrisvar hafa neitað því, að þú þekkir mig.`` |
35. | Og hann sagði við þá: ,,Þegar ég sendi yður út án pyngju og mals og skólausa, brast yður þá nokkuð?`` Þeir svöruðu: ,,Nei, ekkert.`` |
36. | Þá sagði hann við þá: ,,En nú skal sá, er pyngju hefur, taka hana með sér og eins sá, er mal hefur, og hinn, sem ekkert á, selji yfirhöfn sína og kaupi sverð. |
37. | Því ég segi yður, að þessi ritning á að rætast á mér: ,með illvirkjum var hann talinn.` Og nú er að fullnast það sem um mig er ritað.`` |
38. | En þeir sögðu: ,,Herra, hér eru tvö sverð.`` Og hann sagði við þá: ,,Það er nóg.`` |
39. | Síðan fór hann út og gekk, eins og hann var vanur, til Olíufjallsins. Og lærisveinarnir fylgdu honum. |
40. | Þegar hann kom á staðinn, sagði hann við þá: ,,Biðjið, að þér fallið ekki í freistni.`` |
41. | Og hann vék frá þeim svo sem steinsnar, féll á kné, baðst fyrir og sagði: |
42. | ,,Faðir, ef þú vilt, þá tak þennan kaleik frá mér! En verði þó ekki minn heldur þinn vilji.`` [ |
43. | Þá birtist honum engill af himni, sem styrkti hann. |
44. | Og hann komst í dauðans angist og baðst enn ákafar fyrir, en sveiti hans varð eins og blóðdropar, er féllu á jörðina.] |
45. | Hann stóð upp frá bæn sinni, kom til lærisveinanna og fann þá sofandi, örmagna af hryggð. |
46. | Og hann sagði við þá: ,,Hví sofið þér? Rísið upp og biðjið, að þér fallið ekki í freistni.`` |
47. | Meðan hann var enn að tala, kom flokkur manna, og fremstur fór einn hinna tólf, Júdas, áður nefndur. Hann gekk að Jesú til að kyssa hann. |
48. | Jesús sagði við hann: ,,Júdas, svíkur þú Mannssoninn með kossi?`` |
49. | Þeir sem með honum voru, sáu að hverju fór og sögðu: ,,Herra, eigum vér ekki að bregða sverði?`` |
50. | Og einn þeirra hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum hægra eyrað. |
51. | Þá sagði Jesús: ,,Hér skal staðar nema.`` Og hann snart eyrað og læknaði hann. |
52. | Þá sagði Jesús við æðstu prestana, varðforingja helgidómsins og öldungana, sem komnir voru á móti honum: ,,Eruð þér að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja? |
53. | Daglega var ég með yður í helgidóminum, og þér lögðuð ekki hendur á mig. En þetta er yðar tími og máttur myrkranna.`` |
54. | En þeir tóku hann höndum og leiddu brott og fóru með hann í hús æðsta prestsins. Pétur fylgdi eftir álengdar. |
55. | Menn höfðu kveikt eld í miðjum garðinum og sátu við hann, og Pétur settist meðal þeirra. |
56. | En þerna nokkur sá hann sitja í bjarmanum, hvessti á hann augun og sagði: ,,Þessi maður var líka með honum.`` |
57. | Því neitaði hann og sagði: ,,Kona, ég þekki hann ekki.`` |
58. | Litlu síðar sá hann annar maður og sagði: ,,Þú ert líka einn af þeim.`` En Pétur svaraði: ,,Nei, maður minn, það er ég ekki.`` |
59. | Og að liðinni um það bil einni stund fullyrti enn annar þetta og sagði: ,,Víst var þessi líka með honum, enda Galíleumaður.`` |
60. | Pétur mælti: ,,Ekki skil ég, hvað þú átt við, maður.`` Og jafnskjótt sem hann sagði þetta, gól hani. |
61. | Og Drottinn vék sér við og leit til Péturs. Þá minntist Pétur orða Drottins, er hann mælti við hann: ,,Áður en hani galar í dag, muntu þrisvar afneita mér.`` |
62. | Og hann gekk út og grét beisklega. |
63. | En þeir menn, sem gættu Jesú, hæddu hann og börðu, |
64. | huldu andlit hans og sögðu: ,,Spáðu nú, hver það var, sem sló þig?`` |
65. | Og marga aðra svívirðu sögðu þeir við hann. |
66. | Þegar dagur rann, kom öldungaráð lýðsins saman, bæði æðstu prestar og fræðimenn, og létu færa hann fyrir ráðsfund sinn. |
67. | Þeir sögðu: ,,Ef þú ert Kristur, þá seg oss það.`` En hann sagði við þá: ,,Þótt ég segi yður það, munuð þér ekki trúa, |
68. | og ef ég spyr yður, svarið þér ekki. |
69. | En upp frá þessu mun Mannssonurinn sitja til hægri handar Guðs kraftar.`` |
70. | Þá spurðu þeir allir: ,,Ert þú þá sonur Guðs?`` Og hann sagði við þá: ,,Þér segið, að ég sé sá.``En þeir sögðu: ,,Hvað þurfum vér nú framar vitnis við? Vér höfum sjálfir heyrt það af munni hans.`` |
71. | En þeir sögðu: ,,Hvað þurfum vér nú framar vitnis við? Vér höfum sjálfir heyrt það af munni hans.`` |
← Luke (22/24) → |