← Luke (20/24) → |
1. | Svo bar við einn dag, er hann var að kenna lýðnum í helgidóminum og flutti fagnaðarerindið, að æðstu prestarnir og fræðimennirnir ásamt öldungunum gengu til hans |
2. | og sögðu: ,,Seg þú oss, með hvaða valdi gjörir þú þetta? Hver hefur gefið þér þetta vald?`` |
3. | Hann svaraði þeim: ,,Ég vil og leggja spurningu fyrir yður. Segið mér: |
4. | Var skírn Jóhannesar frá himni eða frá mönnum?`` |
5. | Þeir ráðguðust hver við annan um þetta og sögðu: ,,Ef vér svörum: Frá himni, spyr hann: Hví trúðuð þér honum þá ekki? |
6. | Ef vér svörum: Frá mönnum, mun allur lýðurinn grýta oss, því að hann er sannfærður um, að Jóhannes sé spámaður.`` |
7. | Þeir kváðust því ekki vita, hvaðan hún væri. |
8. | Jesús sagði við þá: ,,Ég segi yður þá ekki heldur, með hvaða valdi ég gjöri þetta.`` |
9. | Og hann tók að segja lýðnum dæmisögu þessa: ,,Maður nokkur plantaði víngarð og seldi hann vínyrkjum á leigu, fór síðan úr landi til langdvala. |
10. | Á settum tíma sendi hann þjón til vínyrkjanna, að þeir fengju honum hlut af ávexti víngarðsins, en vínyrkjarnir börðu hann og sendu burt tómhentan. |
11. | Aftur sendi hann annan þjón. Þeir börðu hann einnig og svívirtu og sendu burt tómhentan. |
12. | Og enn sendi hann hinn þriðja, en þeir veittu honum einnig áverka og köstuðu honum út. |
13. | Þá sagði eigandi víngarðsins: ,Hvað á ég að gjöra? Ég sendi son minn elskaðan. Má vera, þeir virði hann.` |
14. | En er vínyrkjarnir sáu hann, báru þeir saman ráð sín og sögðu: ,Þetta er erfinginn. Drepum hann, þá fáum vér arfinn.` |
15. | Og þeir köstuðu honum út fyrir víngarðinn og drápu hann. Hvað mun nú eigandi víngarðsins gjöra við þá? |
16. | Hann mun koma, tortíma vínyrkjum þessum og fá öðrum víngarðinn.`` Þegar þeir heyrðu þetta, sögðu þeir: ,,Verði það aldrei.`` |
17. | Jesús horfði á þá og mælti: ,,Hvað merkir þá ritning þessi: Sá steinn, sem smiðirnir höfnuðu, er orðinn hyrningarsteinn? |
18. | Hver sem fellur á þennan stein, mun sundur molast, og þann sem hann fellur á, mun hann sundur merja.`` |
19. | Fræðimennirnir og æðstu prestarnir vildu leggja hendur á hann á sömu stundu, en óttuðust lýðinn. Þeir skildu, að hann átti við þá með dæmisögu þessari. |
20. | Þeir höfðu gætur á honum og sendu njósnarmenn, er létust vera einlægir. Þeir áttu að hafa á orðum hans, svo að þeir mættu framselja hann í hendur og á vald landstjórans. |
21. | Þeir spurðu hann: ,,Meistari, vér vitum, að þú talar og kennir rétt og gjörir þér engan mannamun, heldur kennir Guðs veg í sannleika. |
22. | Leyfist oss að gjalda keisaranum skatt eða ekki?`` |
23. | En hann merkti flærð þeirra og sagði við þá: |
24. | ,,Sýnið mér denar. Hvers mynd og yfirskrift er á honum?`` Þeir sögðu: ,,Keisarans.`` |
25. | En hann sagði við þá: ,,Gjaldið þá keisaranum það sem keisarans er og Guði það sem Guðs er.`` |
26. | Og þeir gátu ekki haft neitt á orðum hans í viðurvist lýðsins, en undruðust svar hans og þögðu. |
27. | Þá komu nokkrir saddúkear, en þeir neita því, að upprisa sé til, og sögðu við hann: |
28. | ,,Meistari, Móse segir oss í ritningunum, að deyi maður kvæntur, en barnlaus, skuli bróðir hans ganga að eiga ekkjuna og vekja honum niðja. |
29. | Nú voru sjö bræður. Sá fyrsti tók sér konu og dó barnlaus. |
30. | Gekk þá annar bróðirinn |
31. | og síðan hinn þriðji að eiga hana og eins allir sjö, og létu þeir engin börn eftir sig, er þeir dóu. |
32. | Síðast dó og konan. |
33. | Kona hvers þeirra verður hún í upprisunni? Allir sjö höfðu þeir átt hana.`` |
34. | Jesús svaraði þeim: ,,Börn þessarar aldar kvænast og giftast, |
35. | en þeir sem verðir þykja að fá hlutdeild í komandi veröld og upprisunni frá dauðum, kvænast hvorki né giftast. |
36. | Þeir geta ekki heldur dáið framar, þeir eru englum jafnir og börn Guðs, enda börn upprisunnar. |
37. | En að dauðir rísi upp, það hefur jafnvel Móse sýnt í sögunni um þyrnirunninn, er hann kallar ,Drottin Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs.` |
38. | Ekki er hann Guð dauðra, heldur lifenda, því að honum lifa allir.`` |
39. | Þá sögðu nokkrir fræðimannanna: ,,Vel mælt, meistari.`` |
40. | En þeir þorðu ekki framar að spyrja hann neins. |
41. | Hann sagði við þá: ,,Hvernig geta menn sagt, að Kristur sé sonur Davíðs? |
42. | Davíð segir sjálfur í sálmunum: Drottinn sagði við minn drottin: Set þig mér til hægri handar, |
43. | þangað til ég gjöri óvini þína að fótskör þinni. |
44. | Davíð kallar hann drottin, hvernig getur hann þá verið sonur hans?`` |
45. | Í áheyrn alls lýðsins sagði hann við lærisveina sína: |
46. | ,,Varist fræðimennina, sem fýsir að ganga í síðskikkjum og er ljúft að láta heilsa sér á torgum, vilja skipa æðsta bekk í samkundum og hefðarsæti í veislum.Þeir eta upp heimili ekkna og flytja langar bænir að yfirskini. Þeir munu fá því þyngri dóm.`` |
47. | Þeir eta upp heimili ekkna og flytja langar bænir að yfirskini. Þeir munu fá því þyngri dóm.`` |
← Luke (20/24) → |