← Luke (17/24) → |
1. | Hann sagði við lærisveina sína: ,,Eigi verður umflúið, að til ginninga komi, en vei þeim er veldur. |
2. | Betra væri honum að hafa mylnustein um hálsinn og vera varpað í hafið en að tæla einn af þessum smælingjum til falls. |
3. | Hafið gát á sjálfum yður. Ef bróðir þinn syndgar, þá ávíta hann, og ef hann iðrast, þá fyrirgef honum. |
4. | Og þótt hann misgjöri við þig sjö sinnum á dag og snúi sjö sinnum aftur til þín og segi: ,Ég iðrast,` þá skalt þú fyrirgefa honum.`` |
5. | Postularnir sögðu við Drottin: ,,Auk oss trú!`` |
6. | En Drottinn sagði: ,,Ef þér hefðuð trú eins og mustarðskorn, gætuð þér sagt við mórberjatré þetta: ,Ríf þig upp með rótum og fest rætur í sjónum,` og það mundi hlýða yður. |
7. | Hafi einhver yðar þjón, er plægir eða hirðir fénað, segir hann þá við hann, þegar hann kemur inn af akri: ,Kom þegar og set þig til borðs`? |
8. | Segir hann ekki fremur við hann: ,Bú þú mér kvöldverð, gyrð þig og þjóna mér, meðan ég et og drekk, síðan getur þú etið og drukkið.` |
9. | Og er hann þakklátur þjóni sínum fyrir að gjöra það, sem boðið var? |
10. | Eins skuluð þér segja, þá er þér hafið gjört allt, sem yður var boðið: ,Ónýtir þjónar erum vér, vér höfum gjört það eitt, sem vér vorum skyldir að gjöra.``` |
11. | Svo bar við á ferð hans til Jerúsalem, að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu. |
12. | Og er hann kom inn í þorp nokkurt, mættu honum tíu menn líkþráir. Þeir stóðu álengdar, |
13. | hófu upp raust sína og kölluðu: ,,Jesús, meistari, miskunna þú oss!`` |
14. | Er hann leit þá, sagði hann við þá: ,,Farið og sýnið yður prestunum.`` Þeir héldu af stað og nú brá svo við, að þeir urðu hreinir. |
15. | En einn þeirra sneri aftur, er hann sá, að hann var heill orðinn, og lofaði Guð hárri raustu. |
16. | Hann féll fram á ásjónu sína að fótum Jesú og þakkaði honum. En hann var Samverji. |
17. | Jesús sagði: ,,Urðu ekki allir tíu hreinir? Hvar eru hinir níu? |
18. | Urðu engir til þess að snúa aftur að gefa Guði dýrðina nema þessi útlendingur?`` |
19. | Síðan mælti Jesús við hann: ,,Statt upp, og far leiðar þinnar. Trú þín hefur bjargað þér.`` |
20. | Farísear spurðu hann, hvenær Guðs ríki kæmi. Hann svaraði þeim: ,,Guðs ríki kemur ekki þannig, að á því beri. |
21. | Ekki munu menn segja: Sjá, þar er það eða hér er það, því Guðs ríki er innra með yður.`` |
22. | Og hann sagði við lærisveinana: ,,Þeir dagar munu koma, að þér þráið að sjá einn dag Mannssonarins og munuð eigi sjá. |
23. | Menn munu segja við yður: Sjá hér, sjá þar. En farið ekki og hlaupið eftir því. |
24. | Eins og elding, sem leiftrar og lýsir frá einu skauti himins til annars, svo mun Mannssonurinn verða á degi sínum. |
25. | En fyrst á hann margt að líða og útskúfaður verða af þessari kynslóð. |
26. | Eins og var á dögum Nóa, svo mun og verða á dögum Mannssonarins: |
27. | Menn átu og drukku, kvæntust og giftust allt til þess dags, er Nói gekk í örkina, og flóðið kom og tortímdi öllum. |
28. | Eins var og á dögum Lots: Menn átu og drukku, keyptu og seldu, gróðursettu og byggðu. |
29. | En daginn, sem Lot fór úr Sódómu, rigndi eldi og brennisteini af himni og tortímdi öllum. |
30. | Eins mun verða á þeim degi, er Mannssonurinn opinberast. |
31. | Sá sem þann dag er á þaki uppi og á muni sína í húsinu, fari ekki ofan að sækja þá. Og sá sem er á akri, skal ekki heldur hverfa aftur. |
32. | Minnist konu Lots. |
33. | Sá sem vill sjá lífi sínu borgið, mun týna því, en sá sem týnir því, mun öðlast líf. |
34. | Ég segi yður: Á þeirri nóttu verða tveir í einni hvílu, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn. |
35. | Tvær munu mala á sömu kvörn, önnur verður tekin, hin eftir skilin. [ |
36. | Tveir verða á akri, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn.]``Þeir spurðu hann þá: ,,Hvar, herra?`` En hann sagði við þá: ,,Þar munu ernirnir safnast, sem hræið er.`` |
37. | Þeir spurðu hann þá: ,,Hvar, herra?`` En hann sagði við þá: ,,Þar munu ernirnir safnast, sem hræið er.`` |
← Luke (17/24) → |