← Luke (12/24) → |
1. | Fólk hafði nú flykkst að í tugum þúsunda, svo að nærri tróð hver annan undir. Jesús tók þá að tala, fyrst til lærisveina sinna: ,,Varist súrdeig farísea, sem er hræsnin. |
2. | Ekkert er hulið, sem eigi verður opinbert, né leynt, er eigi verður kunnugt. |
3. | Því mun allt það, sem þér hafið talað í myrkri, heyrast í birtu, og það, sem þér hafið hvíslað í herbergjum, mun kunngjört á þökum uppi. |
4. | Það segi ég yður, vinir mínir: Hræðist ekki þá, sem líkamann deyða og fá að því búnu ekki meira að gjört. |
5. | Ég skal sýna yður, hvern þér eigið að hræðast. Hræðist þann, er hefur vald að deyða og að því búnu varpa í helvíti. Já, ég segi yður, hræðist hann. |
6. | Eru ekki fimm spörvar seldir fyrir tvo smápeninga? Og þó er ekki einn þeirra gleymdur Guði. |
7. | Hárin á höfði yðar eru jafnvel öll talin. Verið óhræddir, þér eruð meira verðir en margir spörvar. |
8. | En ég segi yður: Hvern þann sem kannast við mig fyrir mönnum, mun og Mannssonurinn kannast við fyrir englum Guðs. |
9. | En þeim sem afneitar mér fyrir mönnum, mun afneitað verða fyrir englum Guðs. |
10. | Hverjum sem mælir gegn Mannssyninum, verður það fyrirgefið, en þeim sem lastmælir gegn heilögum anda, verður ekki fyrirgefið. |
11. | Og þegar þeir leiða yður fyrir samkundur, höfðingja og yfirvöld, hafið þá ekki áhyggjur af því, hvernig eða með hverju þér eigið að verja yður eða hvað þér eigið að segja. |
12. | Því að heilagur andi mun kenna yður á þeirri stundu, hvað segja ber.`` |
13. | Einn úr mannfjöldanum sagði við hann: ,,Meistari, seg þú bróður mínum að skipta með mér arfinum.`` |
14. | Hann svaraði honum: ,,Maður, hver hefur sett mig dómara eða skiptaráðanda yfir ykkur?`` |
15. | Og hann sagði við þá: ,,Gætið yðar, og varist alla ágirnd. Enginn þiggur líf af eigum sínum, þótt auðugur sé.`` |
16. | Þá sagði hann þeim dæmisögu þessa: ,,Maður nokkur ríkur átti land, er hafði borið mikinn ávöxt. |
17. | Hann hugsaði með sér: ,Hvað á ég að gjöra? Nú get ég hvergi komið fyrir afurðum mínum.` |
18. | Og hann sagði: ,Þetta gjöri ég: Ég ríf hlöður mínar og reisi aðrar stærri, og þangað safna ég öllu korni mínu og auðæfum. |
19. | Og ég segi við sálu mína: Sála mín, nú átt þú mikinn auð til margra ára, hvíl þig nú, et og drekk og ver glöð.` |
20. | En Guð sagði við hann: ,Heimskingi, á þessari nóttu verður sál þín af þér heimtuð, og hver fær þá það, sem þú hefur aflað?` |
21. | Svo fer þeim er safnar sér fé, en er ekki ríkur hjá Guði.`` |
22. | Og hann sagði við lærisveina sína: ,,Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar, hvað þér eigið að eta, né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. |
23. | Lífið er meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin. |
24. | Hyggið að hröfnunum. Hvorki sá þeir né uppskera, eigi hafa þeir forðabúr eða hlöðu, og Guð fæðir þá. Hve miklum mun eruð þér fremri fuglunum! |
25. | Og hver yðar getur með áhyggjum aukið spönn við aldur sinn? |
26. | Fyrst þér nú orkið ekki svo litlu, hví látið þér allt hitt valda yður áhyggjum? |
27. | Hyggið að liljunum, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna. En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra. |
28. | Fyrst Guð skrýðir svo grasið á vellinum, sem í dag stendur, en á morgun verður í ofn kastað, hve miklu fremur mun hann þá klæða yður, þér trúlitlir! |
29. | Hafið ekki hugann við, hvað þér eigið að eta og hvað að drekka, og kvíðið engu. |
30. | Allt þetta stunda heiðingjar heimsins, en faðir yðar veit, að þér þarfnist þessa. |
31. | Leitið heldur ríkis hans, og þá mun þetta veitast yður að auki. |
32. | Vertu ekki hrædd, litla hjörð, því að föður yðar hefur þóknast að gefa yður ríkið. |
33. | Seljið eigur yðar og gefið ölmusu, fáið yður pyngjur, er fyrnast ekki, fjársjóð á himnum, er þrýtur ekki, þar sem þjófur fær eigi í nánd komist né mölur spillt. |
34. | Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera. |
35. | Verið gyrtir um lendar, og látið ljós yðar loga, |
36. | og verið líkir þjónum, er bíða þess, að húsbóndi þeirra komi úr brúðkaupi og þeir geti lokið upp fyrir honum um leið og hann kemur og knýr dyra. |
37. | Sælir eru þeir þjónar, sem húsbóndinn finnur vakandi, er hann kemur. Sannlega segi ég yður, hann mun gyrða sig belti, láta þá setjast að borði og koma og þjóna þeim. |
38. | Og komi hann um miðnætti eða síðar og finni þá vakandi, sælir eru þeir þá. |
39. | Það skiljið þér, að húsráðandi léti ekki brjótast inn í hús sitt, ef hann vissi, á hvaða stundu þjófurinn kæmi. |
40. | Verið þér og viðbúnir, því að Mannssonurinn kemur á þeirri stundu, sem þér ætlið eigi.`` |
41. | Þá spurði Pétur: ,,Herra, mælir þú þessa líkingu til vor eða til allra?`` |
42. | Drottinn mælti: ,,Hver er sá trúi og hyggni ráðsmaður, sem húsbóndinn setur yfir hjú sín að gefa þeim skammtinn á réttum tíma? |
43. | Sæll er sá þjónn, er húsbóndinn finnur breyta svo, er hann kemur. |
44. | Ég segi yður með sanni: Hann mun setja hann yfir allar eigur sínar. |
45. | En ef sá þjónn segir í hjarta sínu: ,Það dregst, að húsbóndi minn komi,` og tekur að berja þjóna og þernur, eta og drekka og verða ölvaður, |
46. | þá mun húsbóndi þess þjóns koma á þeim degi, er hann væntir ekki, á þeirri stundu, er hann veit ekki, höggva hann og láta hann fá hlut með ótrúum. |
47. | Sá þjónn, sem veit vilja húsbónda síns og hefur ekki viðbúnað né gjörir vilja hans, mun barinn mörg högg. |
48. | En hinn, sem veit hann ekki, en vinnur til refsingar, mun barinn fá högg. Hver sem mikið er gefið, verður mikils krafinn, og af þeim verður meira heimtað, sem meira er léð. |
49. | Ég er kominn að varpa eldi á jörðu. Hversu vildi ég, að hann væri þegar kveiktur! |
50. | Skírn á ég að skírast. Hversu þungt er mér, uns hún er fullnuð. |
51. | Ætlið þér, að ég sé kominn að færa frið á jörðu? Nei, segi ég yður, heldur sundurþykki. |
52. | Upp frá þessu verða fimm í sama húsi sundurþykkir, þrír við tvo og tveir við þrjá, |
53. | faðir við son og sonur við föður, móðir við dóttur og dóttir við móður, tengdamóðir við tengdadóttur sína og tengdadóttir við tengdamóður.`` |
54. | Hann sagði og við fólkið: ,,Þá er þér sjáið ský draga upp í vestri, segið þér jafnskjótt: ,Nú fer að rigna.` Og svo verður. |
55. | Og þegar vindur blæs af suðri, segið þér: ,Nú kemur hiti.` Og svo fer. |
56. | Hræsnarar, útlit lofts og jarðar kunnið þér að ráða, en hvernig er því farið, að þér kunnið ekki að meta þennan tíma? |
57. | Hví dæmið þér ekki af sjálfum yður, hvað rétt sé? |
58. | Þegar þú ferð með andstæðingi þínum fyrir yfirvald, þá kostaðu kapps um það á leiðinni að ná sáttum við hann, til þess að hann dragi þig ekki fyrir dómarann, dómarinn afhendi þig böðlinum, og böðullinn varpi þér í fangelsi.Ég segi þér, eigi munt þú komast út þaðan, fyrr en þú hefur borgað síðasta eyri.`` |
59. | Ég segi þér, eigi munt þú komast út þaðan, fyrr en þú hefur borgað síðasta eyri.`` |
← Luke (12/24) → |