← Luke (10/24) → |
1. | Eftir þetta kvaddi Drottinn til aðra, sjötíu og tvo að tölu, og sendi þá á undan sér, tvo og tvo, í hverja þá borg og stað, sem hann ætlaði sjálfur að koma til. |
2. | Og hann sagði við þá: ,,Uppskeran er mikil, en verkamenn fáir. Biðjið því herra uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar. |
3. | Farið! Ég sendi yður eins og lömb meðal úlfa. |
4. | Hafið ekki pyngju, ekki mal né skó, og heilsið engum á leiðinni. |
5. | Hvar sem þér komið í hús, þá segið fyrst: ,Friður sé með þessu húsi.` |
6. | Og sé þar friðar sonur, mun friður yðar hvíla yfir honum, ella hverfa aftur til yðar. |
7. | Verið um kyrrt í sama húsi, neytið þess, sem þar er fram boðið í mat og drykk. Verður er verkamaðurinn launa sinna. Eigi skuluð þér flytjast hús úr húsi. |
8. | Og hvar sem þér komið í borg og tekið er við yður, þá neytið þess, sem fyrir yður er sett. |
9. | Læknið þá, sem þar eru sjúkir, og segið þeim: ,Guðs ríki er komið í nánd við yður.` |
10. | En hvar sem þér komið í borg og eigi er við yður tekið, þá farið út á strætin og segið: |
11. | ,Jafnvel það dust, sem loðir við fætur vora úr borg yðar, þurrkum vér af oss handa yður. Vitið samt þetta, að Guðs ríki er komið í nánd.` |
12. | Ég segi yður: Bærilegra mun Sódómu á þeim degi en þeirri borg. |
13. | Vei þér, Korasín! Vei þér, Betsaída! Ef gjörst hefðu í Týrus og Sídon kraftaverkin, sem gjörðust í ykkur, hefðu þeir löngu iðrast og setið í sekk og ösku. |
14. | En Týrus og Sídon mun bærilegra í dóminum en ykkur. |
15. | Og þú Kapernaum! Verður þú hafin til himins? Nei, til heljar mun þér steypt verða. |
16. | Sá sem á yður hlýðir, hlýðir á mig, og sá sem yður hafnar, hafnar mér. En sá sem hafnar mér, hafnar þeim er sendi mig.`` |
17. | Nú komu þeir sjötíu og tveir aftur með fögnuði og sögðu: ,,Herra, jafnvel illir andar eru oss undirgefnir í þínu nafni.`` |
18. | En hann mælti við þá: ,,Ég sá Satan hrapa af himni sem eldingu. |
19. | Ég hef gefið yður vald að stíga á höggorma og sporðdreka og yfir öllu óvinarins veldi. Alls ekkert mun yður mein gjöra. |
20. | Gleðjist samt ekki af því, að andarnir eru yður undirgefnir, gleðjist öllu heldur af hinu, að nöfn yðar eru skráð í himnunum.`` |
21. | Á sömu stundu varð hann glaður í heilögum anda og sagði: ,,Ég vegsama þig, faðir, herra himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum, en opinberað það smælingjum. Já, faðir, svo var þér þóknanlegt. |
22. | Allt er mér falið af föður mínum, og enginn veit, hver sonurinn er, nema faðirinn, né hver faðirinn er, nema sonurinn og sá sem sonurinn vill opinbera hann.`` |
23. | Og hann sneri sér að lærisveinum sínum og sagði við þá einslega: ,,Sæl eru þau augu, sem sjá það sem þér sjáið. |
24. | Því að ég segi yður: Margir spámenn og konungar vildu sjá það sem þér sjáið, en sáu það ekki, og heyra það sem þér heyrið, en heyrðu það ekki.`` |
25. | Lögvitringur nokkur sté fram, vildi freista hans og mælti: ,,Meistari, hvað á ég að gjöra til þess að öðlast eilíft líf?`` |
26. | Jesús sagði við hann: ,,Hvað er ritað í lögmálinu? Hvernig lest þú?`` |
27. | Hann svaraði: ,,Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og öllum huga þínum, og náunga þinn eins og sjálfan þig.`` |
28. | Jesús sagði við hann: ,,Þú svaraðir rétt. Gjör þú þetta, og þú munt lifa.`` |
29. | En hann vildi réttlæta sjálfan sig og sagði við Jesú: ,,Hver er þá náungi minn?`` |
30. | Því svaraði Jesús svo: ,,Maður nokkur fór frá Jerúsalem ofan til Jeríkó og féll í hendur ræningjum. Þeir flettu hann klæðum og börðu hann, hurfu brott síðan og létu hann eftir dauðvona. |
31. | Svo vildi til, að prestur nokkur fór ofan sama veg og sá manninn, en sveigði fram hjá. |
32. | Eins kom og levíti þar að, sá hann og sveigði fram hjá. |
33. | En Samverji nokkur, er var á ferð, kom að honum, og er hann sá hann, kenndi hann í brjósti um hann, |
34. | gekk til hans, batt um sár hans og hellti í þau viðsmjöri og víni. Og hann setti hann á sinn eigin eyk, flutti hann til gistihúss og lét sér annt um hann. |
35. | Daginn eftir tók hann upp tvo denara, fékk gestgjafanum og mælti: ,Lát þér annt um hann og það sem þú kostar meiru til, skal ég borga þér, þegar ég kem aftur.` |
36. | Hver þessara þriggja sýnist þér hafa reynst náungi þeim manni, sem féll í hendur ræningjum?`` |
37. | Hann mælti: ,,Sá sem miskunnarverkið gjörði á honum.`` Jesús sagði þá við hann: ,,Far þú og gjör hið sama.`` |
38. | Á ferð þeirra kom Jesús í þorp nokkurt, og kona að nafni Marta bauð honum heim. |
39. | Hún átti systur, er María hét, og settist hún við fætur Drottins og hlýddi á orð hans. |
40. | En Marta lagði allan hug á að veita sem mesta þjónustu. Og hún gekk til hans og mælti: ,,Herra, hirðir þú eigi um það, að systir mín lætur mig eina um að þjóna gestum? Seg þú henni að hjálpa mér.`` |
41. | En Drottinn svaraði henni: ,,Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæðist í mörgu,en eitt er nauðsynlegt. María valdi góða hlutskiptið. Það verður ekki frá henni tekið.`` |
42. | en eitt er nauðsynlegt. María valdi góða hlutskiptið. Það verður ekki frá henni tekið.`` |
← Luke (10/24) → |