← Lamentations (5/5) |
1. | Minnstu þess, Drottinn, hvað yfir oss hefir gengið, lít þú á og sjá háðung vora. |
2. | Arfleifð vor er komin í hendur annarra, hús vor í hendur útlendinga. |
3. | Vér erum orðnir munaðarleysingjar, föðurlausir, mæður vorar orðnar sem ekkjur. |
4. | Vatnið sem vér drekkum, verðum vér að kaupa, viðinn fáum vér aðeins gegn borgun. |
5. | Ofsækjendur vorir sitja á hálsi vorum, þótt vér séum þreyttir, fáum vér enga hvíld. |
6. | Til Egyptalands réttum vér út höndina, til Assýríu, til þess að seðjast af mat. |
7. | Feður vorir syndguðu, þeir eru eigi framar til, og vér berum misgjörð þeirra. |
8. | Þrælar drottna yfir oss, enginn hrífur oss úr höndum þeirra. |
9. | Með lífsháska sækjum vér matbjörg vora í eyðimörkinni, þar sem sverðið vofir yfir oss. |
10. | Hörund vort er orðið svart eins og ofn af hungurbruna. |
11. | Konur hafa þeir svívirt í Síon, meyjar í Júda-borgum. |
12. | Höfðingja hengdu þeir, öldungnum sýndu þeir enga virðingu. |
13. | Æskumennirnir urðu að þræla við kvörnina, og sveinarnir duttu undir viðarbyrðunum. |
14. | Öldungarnir eru horfnir úr borgarhliðunum, æskumennirnir frá strengleikum. |
15. | Fögnuður hjarta vors er þrotinn, gleðidans vor snúinn í sorg. |
16. | Kórónan er fallin af höfði voru, vei oss, því að vér höfum syndgað. |
17. | Af því er hjarta vort sjúkt orðið, vegna þess eru augu vor döpur, |
18. | vegna Síonarfjalls, sem er í eyði og refir nú hlaupa um. |
19. | Þú, Drottinn, ríkir að eilífu, þitt hásæti stendur frá kyni til kyns. |
20. | Hví vilt þú gleyma oss eilíflega, yfirgefa oss um langan aldur?Snú þú oss til þín, Drottinn, þá snúum vér við, lát þú daga vora aftur verða eins og forðum! |
21. | Snú þú oss til þín, Drottinn, þá snúum vér við, lát þú daga vora aftur verða eins og forðum! |
← Lamentations (5/5) |