← Lamentations (4/5) → |
1. | Æ, hversu blakkt er gullið orðið, umbreyttur málmurinn dýri, æ, hversu var helgum steinum fleygt út á öllum strætamótum. |
2. | Síon-búar hinir dýrmætu, jafnvægir skíragulli, hversu voru þeir metnir jafnt og leirker, jafnt og smíð úr pottara höndum. |
3. | Jafnvel sjakalarnir bjóða júgrið og gefa hvolpum sínum að sjúga, en dóttir þjóðar minnar er orðin harðbrjósta, eins og strútsfuglarnir í eyðimörkinni. |
4. | Tunga brjóstmylkingsins loddi við góminn af þorsta, börnin báðu um brauð, en enginn miðlaði þeim neinu. |
5. | Þeir sem vanir hafa verið að eta krásir, örmagnast nú á strætunum, þeir sem bornir voru á purpura, faðma nú mykjuhauga. |
6. | Því að misgjörð dóttur þjóðar minnar var meiri en synd Sódómu, sem umturnað var svo að segja á augabragði, án þess að manna hendur kæmu þar nærri. |
7. | Höfðingjar hennar voru hreinni en mjöll, hvítari en mjólk, líkami þeirra rauðari en kórallar, ásýnd þeirra eins og safír. |
8. | Útlit þeirra er orðið blakkara en sót, þeir þekkjast ekki á strætunum. Skinnið á þeim er skorpið að beinum, það er þornað eins og tré. |
9. | Sælli voru þeir er féllu fyrir sverði heldur en þeir er féllu fyrir hungri, þeir er hnigu hungurmorða, af því að enginn var akurgróðinn. |
10. | Viðkvæmar konur suðu með eigin höndum börnin sín, þau voru þeim til næringar, þá er dóttir þjóðar minnar var eydd. |
11. | Drottinn tæmdi heift sína, úthellti sinni brennandi reiði og kveikti eld í Síon, er eyddi henni til grunna. |
12. | Konungar jarðarinnar hefðu ekki trúað því, né neinn af íbúum jarðríkis, að fjendur og óvinir mundu inn fara um hlið Jerúsalem. |
13. | Vegna synda spámanna hennar, misgjörða presta hennar, er úthelltu inni í henni blóði réttlátra, |
14. | reika þeir eins og blindir menn um strætin, ataðir blóði, svo að eigi mættu menn snerta klæði þeirra. |
15. | ,,Víkið úr vegi! Óhreinn maður!`` kölluðu menn á undan þeim, ,,víkið úr vegi, víkið úr vegi, snertið hann eigi!`` Þegar þeir skjögruðu, sögðu menn meðal heiðingjanna: ,,Þeir skulu eigi dveljast hér lengur.`` |
16. | Reiðitillit Drottins hefir tvístrað þeim, hann lítur eigi framar við þeim. Hann virti prestana að vettugi og miskunnaði sig ekki yfir gamalmennin. |
17. | Hversu lengi störðu augu vor sig þreytt eftir hjálp sem ekki kom. Af sjónarhól vorum mændum vér eftir þjóð sem ekki hjálpar. |
18. | Menn röktu slóðir vorar, svo að vér gátum ekki gengið á götum vorum. Endalok vor nálguðust, dagar vorir fullnuðust, já, endalok vor komu. |
19. | Ofsækjendur vorir voru léttfærari en ernirnir í loftinu, þeir eltu oss yfir fjöllin, sátu um oss í eyðimörkinni. |
20. | Andi nasa vorra, Drottins smurði, varð fanginn í gryfjum þeirra _ hann sem vér sögðum um: ,,Í skjóli hans skulum vér lifa meðal þjóðanna!`` |
21. | Fagna þú og ver glöð, dóttirin Edóm, þú sem býr í Ús-landi: Til þín mun og bikarinn koma, þú munt verða drukkin og bera blygðan þína!Sekt þín er á enda, dóttirin Síon, hann mun eigi framar gjöra þig landræka. Hann vitjar misgjörðar þinnar, dóttirin Edóm, dregur skýluna af syndum þínum. |
22. | Sekt þín er á enda, dóttirin Síon, hann mun eigi framar gjöra þig landræka. Hann vitjar misgjörðar þinnar, dóttirin Edóm, dregur skýluna af syndum þínum. |
← Lamentations (4/5) → |