← Judges (4/21) → |
1. | Þegar Ehúð var dáinn, gjörðu Ísraelsmenn enn að nýju það, sem illt var í augum Drottins. |
2. | Og Drottinn seldi þá í hendur Jabín, Kanaans konungi, sem hafði aðsetur í Hasór. Hershöfðingi hans hét Sísera og bjó hann í Haróset Hagojím. |
3. | Og Ísraelsmenn hrópuðu til Drottins, því að hann átti níu hundruð járnvagna og hafði kúgað Ísraelsmenn harðlega í tuttugu ár. |
4. | Kona hét Debóra. Hún var spákona og eiginkona manns þess, er Lapídót hét. Hún var dómari í Ísrael um þessar mundir. |
5. | Hún sat undir Debórupálma milli Rama og Betel á Efraímfjöllum, og Ísraelsmenn fóru þangað upp til hennar, að hún legði dóm á mál þeirra. |
6. | Hún sendi boð og lét kalla til sín Barak Abínóamsson frá Kedes í Naftalí og sagði við hann: ,,Sannlega hefir Drottinn, Ísraels Guð, boðið svo: ,Far þú og hald til Taborfjalls og haf með þér tíu þúsundir manna af Naftalí sonum og Sebúlons sonum. |
7. | Og ég mun leiða Sísera, hershöfðingja Jabíns, með vögnum hans og liði til þín að Kísonlæk, og ég mun gefa hann í hendur þínar.``` |
8. | Barak sagði við hana: ,,Fara mun ég, ef þú fer með mér, en viljir þú eigi fara með mér, mun ég hvergi fara.`` |
9. | Hún svaraði: ,,Víst mun ég með þér fara. En enga frægð munt þú hafa af för þessari, sem þú fer, því að Drottinn mun selja Sísera í konu hendur.`` Síðan tók Debóra sig upp og fór með Barak til Kedes. |
10. | Þá kallaði Barak saman Sebúlon og Naftalí í Kedes, og tíu þúsundir manna fóru með honum, og Debóra var í för með honum. |
11. | Heber Keníti hafði skilist við Kain, við niðja Hóbabs, tengdaföður Móse, og sló hann tjöldum sínum allt að eikinni hjá Saanaím, sem er hjá Kedes. |
12. | Nú var Sísera sagt frá því, að Barak Abínóamsson væri farinn upp á Taborfjall. |
13. | Dró Sísera þá saman alla vagna sína, níu hundruð járnvagna, og allt það lið, er með honum var, frá Haróset Hagojím til Kísonlækjar. |
14. | Þá sagði Debóra við Barak: ,,Rís þú nú upp, því að nú er sá dagur kominn, er Drottinn mun selja Sísera í þínar hendur. Sannlega er Drottinn farinn á undan þér.`` Fór Barak þá ofan af Taborfjalli, og tíu þúsundir manna fylgdu honum. |
15. | Og Drottinn gjörði Sísera felmtsfullan og alla vagna hans og allan hans her með sverðseggjum frammi fyrir Barak, svo að Sísera hljóp af vagni sínum og flýði undan á fæti. |
16. | En Barak elti vagnana og herinn allt til Haróset Hagojím, og allur her Sísera féll fyrir sverðseggjum. Enginn komst undan. |
17. | Sísera flýði á fæti til tjalds Jaelar, konu Hebers Keníta, því að friður var milli Jabíns, konungs í Hasór, og húss Hebers Keníta. |
18. | Þá gekk Jael út í móti Sísera og sagði við hann: ,,Gakk inn, herra minn, gakk inn til mín, vertu óhræddur.`` Og hann gekk inn til hennar í tjaldið, og hún lagði ábreiðu yfir hann. |
19. | Þá sagði hann við hana: ,,Gef mér vatnssopa að drekka, því að ég er þyrstur.`` Hún leysti þá frá mjólkurbelg og gaf honum að drekka, og breiddi síðan ofan á hann aftur. |
20. | Þá sagði hann við hana: ,,Stattu í tjalddyrunum, og ef einhver kemur og spyr þig og segir: ,Er nokkur hér?` þá seg þú: ,Nei.``` |
21. | Jael, kona Hebers, þreif tjaldhæl og tók hamar í hönd sér og gekk hljóðlega inn til hans og rak hælinn gegnum þunnvangann, svo að hann gekk í jörð niður, en Sísera var sofnaður fastasvefni, því að hann var þreyttur. Varð þetta hans bani. |
22. | Í sama bili kom Barak og var að elta Sísera. Jael gekk þá út í móti honum og sagði við hann: ,,Kom þú hingað, og mun ég sýna þér þann mann, sem þú leitar að.`` Og hann gekk inn til hennar, og lá þá Sísera þar dauður með hælinn gegnum þunnvangann. |
23. | Þannig lægði Guð á þeim degi Jabín, Kanaans konung, fyrir Ísraelsmönnum.Og hönd Ísraelsmanna lagðist æ þyngra og þyngra á Jabín, Kanaans konung, uns þeir að lokum gjörðu út af við hann. |
24. | Og hönd Ísraelsmanna lagðist æ þyngra og þyngra á Jabín, Kanaans konung, uns þeir að lokum gjörðu út af við hann. |
← Judges (4/21) → |