← Joshua (21/24) → |
1. | Ætthöfðingjar levítanna gengu fyrir þá Eleasar prest, Jósúa Núnsson og ætthöfðingja kynkvísla Ísraelsmanna |
2. | og töluðu þannig til þeirra í Síló í Kanaanlandi: ,,Drottinn bauð fyrir Móse að oss skyldi borgir gefa til bústaða, svo og beitilandið, er að þeim liggur, handa fénaði vorum.`` |
3. | Þá gáfu Ísraelsmenn levítunum af óðulum sínum, eftir boði Drottins, þessar borgir og beitilönd þau, er að þeim lágu. |
4. | Nú kom upp hlutur ætta Kahatíta, og fengu þá meðal levítanna synir Arons prests með hlutkesti þrettán borgir hjá Júda kynkvísl, Símeons kynkvísl og Benjamíns kynkvísl. |
5. | Hinir synir Kahats fengu með hlutkesti tíu borgir frá ættum Efraíms kynkvíslar og frá Dans kynkvísl og frá hálfri kynkvísl Manasse. |
6. | Synir Gersons fengu með hlutkesti þrettán borgir frá ættum Íssakars kynkvíslar, frá Assers kynkvísl, frá Naftalí kynkvísl og frá hálfri kynkvísl Manasse í Basan. |
7. | Merarí synir fengu tólf borgir eftir ættum þeirra frá Rúbens kynkvísl, frá Gaðs kynkvísl og frá Sebúlons kynkvísl. |
8. | Ísraelsmenn gáfu levítunum borgir þessar og beitilandið, er að þeim liggur, eftir hlutkesti, eins og Drottinn hafði boðið fyrir meðalgöngu Móse. |
9. | Þeir gáfu af kynkvísl Júda sona og af kynkvísl Símeons sona þessar borgir, sem hér eru nafngreindar. |
10. | Af ættum Kahatíta meðal Leví sona fengu Arons synir þær, af því að fyrsti hluturinn hlotnaðist þeim. |
11. | Þeim gáfu þeir Kirjat-Arba, er átt hafði Arba, faðir Anaks, það er Hebron, á Júdafjöllum og beitilandið umhverfis hana. |
12. | En akurland borgarinnar og þorpin, er að henni lágu, gáfu þeir Kaleb Jefúnnesyni til eignar. |
13. | Sonum Arons prests gáfu þeir: Hebron, sem var griðastaður vígsekra, og beitilandið, er að henni lá, Líbna og beitilandið, er að henni lá, |
14. | Jattír og beitilandið, er að henni lá, Estemóa og beitilandið, er að henni lá, |
15. | Hólon og beitilandið, er að henni lá, Debír og beitilandið, er að henni lá, |
16. | Asan og beitilandið, er að henni lá, Jútta og beitilandið, er að henni lá, og Bet Semes og beitilandið er að henni lá _ níu borgir frá þessum tveimur ættkvíslum. |
17. | Af Benjamíns kynkvísl: Gíbeon og beitilandið, er að henni lá, Geba og beitilandið, er að henni lá, |
18. | Anatót og beitilandið, er að henni lá, og Almón og beitilandið, er að henni lá _ fjórar borgir. |
19. | Þannig hlutu synir Arons, prestarnir, þrettán borgir alls og beitilönd þau, er að þeim lágu. |
20. | Að því er snertir ættir þeirra Kahats sona, er töldust til levítanna, hinna Kahats sonanna, þá fengu þær borgir þær, er þeim hlotnuðust frá Efraíms kynkvísl. |
21. | Þeir gáfu þeim Síkem, sem var griðastaður vígsekra, og beitilandið, er að henni lá, á Efraímfjöllum, Geser og beitilandið, er að henni lá, |
22. | Kibsaím og beitilandið, er að henni lá, og Bet Hóron og beitilandið, er að henni lá _ fjórar borgir. |
23. | Frá kynkvísl Dans: Elteke og beitilandið, er að henni lá, Gibbetón og beitilandið, er að henni lá, |
24. | Ajalon og beitilandið, er að henni lá, og Gat Rimmon og beitilandið, er að henni lá _ fjórar borgir. |
25. | Frá hálfri kynkvísl Manasse: Taanak og beitilandið, er að henni lá, og Jibleam og beitilandið, er að henni lá _ tvær borgir. |
26. | Ættir hinna Kahats sonanna hlutu þannig tíu borgir alls og beitilönd þau, er að þeim lágu. |
27. | Af ættum levítanna fengu Gersons synir frá hálfri kynkvísl Manasse: Gólan í Basan, griðastað vígsekra, og beitilandið, er að henni lá, og Beestera og beitilandið, er að henni lá _ tvær borgir. |
28. | Frá Íssakars kynkvísl: Kisjón og beitilandið, er að henni lá, Daberat og beitilandið, er að henni lá, |
29. | Jarmút og beitilandið, er að henni lá, og En-Ganním og beitilandið, er að henni lá _ fjórar borgir. |
30. | Frá Assers kynkvísl: Míseal og beitilandið, er að henni lá, Abdón og beitilandið, er að henni lá, |
31. | Helkat og beitilandið, er að henni lá, og Rehób og beitilandið, er að henni lá _ fjórar borgir. |
32. | Frá Naftalí kynkvísl: Kedes í Galíleu, griðastað vígsekra, og beitilandið, er að henni lá, Hammót Dór og beitilandið, er að henni lá, og Kartan og beitilandið er að henni lá _ þrjár borgir. |
33. | Þannig hlutu Gersonítar eftir ættum þeirra, þrettán borgir alls og beitilönd þau, er að þeim lágu. |
34. | Ættir Merarí sona, þeirra Leví sona, er enn voru eftir, fengu frá Sebúlons kynkvísl: Jokneam og beitilandið, er að henni lá, Karta og beitilandið, er að henni lá, |
35. | Dimna og beitilandið, er að henni lá, og Nahalal og beitilandið, er að henni lá _ fjórar borgir. |
36. | Frá Rúbens kynkvísl: Beser í eyðimörkinni, griðastað vígsekra, og beitilandið, er að henni lá, Jahsa og beitilandið, er að henni lá, |
37. | Kedemót og beitilandið, er að henni lá, og Mefaat og beitilandið, er að henni lá _ fjórar borgir. |
38. | Frá Gaðs kynkvísl: Ramót í Gíleað, griðastað vígsekra, og beitilandið, er að henni lá, Mahanaím og beitilandið, er að henni lá, |
39. | Hesbon og beitilandið, er að henni lá, og Jaeser og beitilandið, er að henni lá _ fjórar borgir alls. |
40. | Þannig fengu Merarí synir, eftir ættum þeirra, þeir er enn voru eftir af ættum levítanna, í sitt hlutskipti tólf borgir alls. |
41. | Borgir þær, er levítarnir fengu inni í eignarlöndum Ísraelsmanna, voru fjörutíu og átta alls, og beitilöndin, er að þeim lágu. |
42. | Og allar þessar borgir voru hver um sig ein borg með beitilandi umhverfis. Var svo um allar þessar borgir. |
43. | Drottinn gaf Ísrael allt landið, er hann hafði svarið að gefa feðrum þeirra, og þeir tóku það til eignar og settust þar að. |
44. | Og Drottinn lét þá búa í friði á alla vegu, öldungis eins og hann hafði svarið feðrum þeirra. Enginn af öllum óvinum þeirra fékk staðist fyrir þeim, Drottinn gaf alla óvini þeirra í hendur þeim.Ekkert brást af öllum fyrirheitum þeim, er Drottinn hafði gefið húsi Ísraels. Þau rættust öll. |
45. | Ekkert brást af öllum fyrirheitum þeim, er Drottinn hafði gefið húsi Ísraels. Þau rættust öll. |
← Joshua (21/24) → |