← Joshua (19/24) → |
1. | Næst kom upp hlutur Símeons, kynkvíslar Símeons sona eftir ættum þeirra, en arfleifð þeirra lá inni í arfleifð Júda sona miðri. |
2. | Þeir fengu að arfleifð: Beerseba og Seba, Mólada, |
3. | Hasar Súal, Bala, Esem, |
4. | Eltólað, Betúl, Horma, |
5. | Siklag, Bet Markabót, Hasar Súsa, |
6. | Bet Lebaót og Sarúhen, þrettán borgir og þorpin, er að liggja. |
7. | Aín, Rimmon, Eter og Asan, fjórar borgir og þorpin, er að liggja, |
8. | auk þess öll þau þorp, er lágu kringum borgir þessar allt til Baalat Beer, Rama suðurlandsins. Þetta var arfleifð kynkvíslar Símeons sona, eftir ættum þeirra. |
9. | Arfleifð Símeons sona var nokkur hluti af landshluta Júda sona, því að hluti Júda sona var of stór fyrir þá, og fyrir því fengu Símeons synir arfleifð í miðri arfleifð þeirra. |
10. | Þá kom upp þriðji hluturinn. Það var hlutur Sebúlons sona eftir ættum þeirra, og náðu landamerki arfleifðar þeirra allt til Saríd. |
11. | Og landamerki þeirra lágu í vestur upp til Marala, þaðan út til Dabbeset og lentu hjá læknum, sem rennur fyrir austan Jokneam. |
12. | Til austurs aftur á móti, gegnt upprás sólar, lágu þau frá Saríd til landamæra Kislót Tabors, þaðan til Daberat og þaðan upp til Jafía. |
13. | Þaðan lágu þau í austur, mót upprás sólar, yfir til Gat Hefer, til Et Kasín, síðan til Rimmon, sem nær allt til Nea. |
14. | Og landamerkin beygðu þar við, norður til Hannatón, og alla leið til Jifta-El-dals, |
15. | ásamt Katat, Nahalal, Simron, Jidala og Betlehem, tólf borgir og þorpin, er að liggja. |
16. | Þetta var arfleifð Sebúlons sona, eftir ættum þeirra: þessar borgir og þorpin, er að liggja. |
17. | Þá kom upp fjórði hluturinn. Það var hlutur Íssakars, Íssakars sona eftir ættum þeirra. |
18. | Og land þeirra tók yfir: Jesreel, Kesúllót, Súnem, |
19. | Hafaraím, Síón, Anaharat, |
20. | Rabbít, Kisjon, Ebes, |
21. | Remet, En-Ganním, En-Hadda og Bet Passes. |
22. | Og landamerkin náðu til Tabor, Sahasíma og Bet Semes, og alla leið til Jórdanar, sextán borgir og þorpin er að liggja. |
23. | Þetta var arfleifð kynkvíslar Íssakars sona eftir ættum þeirra, borgirnar og þorpin er að liggja. |
24. | Þá kom upp fimmti hluturinn. Það var hlutur kynkvíslar Assers sona, eftir ættum þeirra. |
25. | Og land þeirra tók yfir: Helkat, Halí, Beten, Aksaf, |
26. | Allammelek, Amead og Míseal, og þau náðu vestur að Karmel og Síhór Libnat. |
27. | Þaðan lágu þau í austur til Bet Dagón, og náðu að Sebúlon og Jifta-El-dal í norðri, Bet Emek og Negíel, og lágu norður til Kabúl, |
28. | Ebron, Rehób, Hammon og Kana, allt til hinnar miklu Sídon. |
29. | Þaðan beygðust landamerkin til Rama og allt til hinnar víggirtu borgar Týrus, og þaðan aftur til Hósa og þaðan alla leið til sjávar, frá því er Aksíbhéraði sleppir. |
30. | Auk þess Akkó, Afek og Rehób, tuttugu og tvær borgir og þorpin, er að liggja. |
31. | Þetta var arfleifð kynkvíslar Assers sona, eftir ættum þeirra, þessar borgir og þorpin, er að liggja. |
32. | Þá kom upp sjötti hluturinn. Það var hlutur Naftalí, Naftalí sona eftir ættum þeirra. |
33. | Og landamerki þeirra lágu frá Helef, frá eikunum hjá Saananním, Adamí Nekeb og Jabneel allt til Lakkúm og alla leið að Jórdan. |
34. | Þaðan gengu landamærin í vestur til Asnót Tabor, þaðan út til Húkkók, náðu til Sebúlons að sunnanverðu, til Assers að vestanverðu og til Júda við Jórdan gegnt upprás sólar. |
35. | Og víggirtar borgir voru þar: Siddím, Ser, Hammat, Rakkat, Kinneret, |
36. | Adama, Rama, Hasór, |
37. | Kedes, Edreí, En Hasór, |
38. | Jirón, Migdal, El, Horem, Bet Anat og Bet Semes _ nítján borgir og þorpin, er að liggja. |
39. | Þetta var arfleifð kynkvíslar Naftalí sona eftir ættum þeirra, borgirnar og þorpin, er að liggja. |
40. | Loks kom upp sjöundi hluturinn, og var það hlutur kynkvíslar Dans sona, eftir ættum þeirra. |
41. | Og landamerkin að arfleifð þeirra voru Sorea, Estaól, Ír-Semes, |
42. | Saalabbín, Ajalon, Jitla, |
43. | Elón, Timnat, Ekron, |
44. | Elteke, Gibbetón, Baalat, |
45. | Jehúd, Bene Berak, Gat Rimmon, |
46. | Me-Jarkón og Rakkon, ásamt landinu gegnt Jafó. |
47. | En land Dans sona gekk undan þeim. Þá fóru Dans synir og herjuðu á Lesem, unnu hana og tóku hana herskildi, slógu síðan eign sinni á hana og settust þar að og nefndu hana Dan eftir nafni Dans, föður þeirra. |
48. | Þetta var arfleifð kynkvíslar Dans sona eftir ættum þeirra, þessar borgir og þorpin, er að liggja. |
49. | Er Ísraelsmenn höfðu skipt landinu öllu til ystu ummerkja, gáfu þeir Jósúa Núnssyni óðal meðal sín. |
50. | Eftir boði Drottins gáfu þeir honum borg þá, er hann sjálfur kaus, en það var Timnat Sera í Efraímfjöllum. Hann byggði upp borgina og bjó þar síðan.Þessar voru arfleifðirnar, er þeir Eleasar prestur, Jósúa Núnsson og ætthöfðingjar kynkvísla Ísraelsmanna úthlutuðu með hlutkesti í Síló frammi fyrir Drottni, við dyr samfundatjaldsins. Höfðu þeir nú lokið því að skipta landinu. |
51. | Þessar voru arfleifðirnar, er þeir Eleasar prestur, Jósúa Núnsson og ætthöfðingjar kynkvísla Ísraelsmanna úthlutuðu með hlutkesti í Síló frammi fyrir Drottni, við dyr samfundatjaldsins. Höfðu þeir nú lokið því að skipta landinu. |
← Joshua (19/24) → |