← Joshua (14/24) → |
1. | Þetta er það, sem Ísraelsmenn fengu að arfleifð í Kanaanlandi, það sem Eleasar prestur, Jósúa Núnsson og ætthöfðingjar kynkvísla Ísraelsmanna úthlutuðu þeim |
2. | með hlutkesti til arfleifðar, eins og Drottinn hafði skipað fyrir meðalgöngu Móse um níu kynkvíslirnar og hálfa. |
3. | Móse hafði gefið tveimur kynkvíslunum og hálfri óðul hinumegin Jórdanar, en levítunum hafði hann eigi gefið óðal meðal þeirra. |
4. | Jósefs synir voru tvær kynkvíslir, Manasse og Efraím, og levítunum gáfu þeir ekki hlut í landinu, heldur aðeins borgir til að búa í og beitilandið, er lá undir þær, handa fénaði þeirra og skepnum. |
5. | Eins og Drottinn hafði boðið Móse, svo gjörðu Ísraelsmenn og skiptu landinu. |
6. | Þá gengu Júda synir fyrir Jósúa í Gilgal, og Kaleb Jefúnneson, Kenisíti, sagði við hann: ,,Þér er kunnugt um, hvað Drottinn sagði við guðsmanninn Móse um mig og þig í Kades Barnea. |
7. | Þá var ég fertugur að aldri, er Móse, þjónn Drottins, sendi mig frá Kades Barnea að kanna landið, og bar ég honum það, er ég vissi sannast. |
8. | En bræður mínir, sem með mér fóru, skelfdu hjörtu lýðsins, en ég fylgdi Drottni Guði mínum trúlega. |
9. | Og þann dag sór Móse og sagði: ,Sannlega skal land það, sem þú steigst fæti á, vera þín eign og sona þinna ævinlega, því að þú fylgdir Drottni Guði mínum trúlega.` |
10. | Og sjá, nú hefir Drottinn látið mig lifa, eins og hann lofaði, í þessi fjörutíu og fimm ár, síðan Drottinn sagði þetta við Móse, meðan Ísrael hefir farið um eyðimörkina, og sjá, nú hefi ég fimm um áttrætt. |
11. | Og enn í dag er ég eins hraustur og þegar Móse sendi mig. Orka mín er enn hin sama og hún var þá til að berjast og til að ganga út og inn. |
12. | Gef mér nú fjalllendi þetta, sem Drottinn talaði um þann dag, því að þú hlýddir sjálfur á þann dag. Anakítar eru þar og stórar, víggirtar borgir. Vera má, að Drottinn veiti mér fulltingi, svo ég fái stökkt þeim burt, eins og Drottinn hefir heitið.`` |
13. | Jósúa blessaði hann og gaf Kaleb Jefúnnesyni Hebron að arfleifð. |
14. | Fyrir því fékk Kaleb Jefúnneson, Kenisíti, Hebron að arfleifð, og er svo enn í dag, sökum þess að hann fylgdi Drottni, Ísraels Guði, trúlega.En Hebron hét áður Kirjat Arba, eftir Arba þeim, er mestur var meðal Anakíta. Eftir það létti ófriði af landinu. |
15. | En Hebron hét áður Kirjat Arba, eftir Arba þeim, er mestur var meðal Anakíta. Eftir það létti ófriði af landinu. |
← Joshua (14/24) → |