← Joshua (13/24) → |
1. | Þegar Jósúa var orðinn gamall og hniginn að aldri, sagði Drottinn við hann: ,,Þú ert orðinn gamall og hniginn að aldri, en mjög mikið af landinu er enn óunnið. |
2. | Þetta er landið, sem enn er eftir: Öll héruð Filista og allt land Gesúra; |
3. | frá Síhór, sem rennur fram með Egyptalandi að austanverðu, til landamæra Ekron í norðri _ það telst með landi Kanaaníta _, fimm höfðingjar Filistanna í Gasa, Asdód, Askalon, Gat og Ekron, svo og Avítar í suðri, |
4. | allt land Kanaaníta og Meara, sem heyrir Sídoningum, allt til Afek, til landamæra Amoríta, |
5. | og land Giblíta og allt Líbanon í austri, frá Baal Gað undir Hermonfjalli allt þangað, er leið liggur til Hamat. |
6. | Allir fjallabúarnir frá Líbanon til Misrefót Majím, allir Sídoningar, _ ég mun stökkva þeim burt undan Ísraelsmönnum. En legg þú á hluti og skipt því meðal Ísraels til eignar, eins og ég hefi boðið þér. |
7. | Skipt þú nú landi þessu til eignar níu ættkvíslunum og hálfri ættkvísl Manasse.`` |
8. | Með hálfri ættkvísl Manasse hafa Rúbenítar og Gaðítar fengið sinn eignarhluta, er Móse gaf þeim hinumegin Jórdanar, austanmegin. Móse, þjónn Drottins, gaf þeim hann: |
9. | landið frá Aróer, sem liggur á bakka Arnonár, og borginni, sem liggur í dalnum miðjum, og allt sléttlendið frá Medeba til Díbon, |
10. | svo og allar borgir, er átti Síhon, Amorítakonungur, er sat í Hesbon, allt til landamæra Ammóníta. |
11. | Enn fremur Gíleað og land Gesúra og Maakatíta, Hermonfjöll öll og allt Basan til Salka, |
12. | allt konungsríki Ógs í Basan, sem sat í Astarót og Edreí. Hann var einn eftir af Refaítum; en Móse vann sigur á þeim og stökkti þeim burt. |
13. | Aftur á móti stökktu Ísraelsmenn Gesúrum og Maakatítum ekki burt, heldur búa Gesúrar og Maakatítar meðal Ísraels allt fram á þennan dag. |
14. | En ættkvísl Leví gaf hann ekkert óðal. Eldfórnir Drottins, Ísraels Guðs, eru óðal hans, eins og hann hét honum. |
15. | Móse fékk kynkvíslum Rúbens sona land eftir ættum þeirra. |
16. | Fengu þeir land frá Aróer, sem liggur á bakka Arnonár, og frá borginni, sem liggur í dalnum miðjum, og allt sléttlendið hjá Medeba, |
17. | Hesbon og allar borgirnar þar umhverfis, sem liggja á sléttlendinu, Díbon, Bamót Baal, Bet-Baal-Meon, |
18. | Jahsa, Kedemót, Mefaat, |
19. | Kirjataím, Síbma, Seret Sahar á fellinu í dalnum, |
20. | og Bet Peór, Pisgahlíðar og Bet Jesímót, |
21. | enn fremur allar borgir á sléttlendinu og allt konungsríki Síhons, Amorítakonungs, sem sat í Hesbon og Móse vann sigur á ásamt höfðingjum Midíaníta: Eví, Rekem, Súr, Húr og Reba, jörlum Síhons, sem bjuggu í landinu. |
22. | Ísraelsmenn drápu og spásagnamanninn Bíleam Beórsson með sverði, auk annarra, er þeir felldu. |
23. | Og vesturtakmörkum Rúbens sona réð Jórdan alla leið. Þetta er óðal Rúbens sona eftir ættum þeirra, borgirnar og þorpin, sem að liggja. |
24. | Móse fékk kynkvísl Gaðs, Gaðs sonum, land eftir ættum þeirra. |
25. | Fengu þeir land sem hér segir: Jaser og allar borgirnar í Gíleað og hálft land Ammóníta, allt til Aróer, sem liggur fyrir austan Rabba, |
26. | og frá Hesbon til Ramat Mispe og Betóním, og frá Mahanaím til Lídebír landamæra. |
27. | Enn fremur í dalnum: Bet Haram, Bet Nimra, Súkkót og Safón, leifarnar af konungsríki Síhons, konungs í Hesbon, og Jórdan á mörkum allt að suðurenda Genesaretvatns, austanmegin Jórdanar. |
28. | Þetta er óðal Gaðs sona eftir ættum þeirra, borgirnar og þorpin, er að liggja. |
29. | Móse fékk hálfri ættkvísl Manasse land. Fékk hálf kynkvísl Manasse sona land eftir ættum sínum sem hér segir. |
30. | Land þeirra náði frá Mahanaím yfir allt Basan, allt konungsríki Ógs, konungs í Basan, og öll Jaírs-þorp, sem liggja í Basan, sextíu borgir. |
31. | Enn fremur yfir hálft Gíleað og Astarót og Edreí, höfuðstaði konungsríkis Ógs í Basan. Þetta fengu Makírs synir, Manassesonar, helmingurinn af Makírs sonum eftir ættum þeirra. |
32. | Þetta voru lönd þau, er Móse úthlutaði á Móabsvöllum hinumegin Jórdanar gegnt Jeríkó, austanmegin.En ættkvísl Leví gaf Móse ekkert óðal. Drottinn, Ísraels Guð, er óðal þeirra, eins og hann hefir heitið þeim. |
33. | En ættkvísl Leví gaf Móse ekkert óðal. Drottinn, Ísraels Guð, er óðal þeirra, eins og hann hefir heitið þeim. |
← Joshua (13/24) → |