← Jonah (2/4) → |
1. | Þá sendi Drottinn stórfisk til þess að svelgja Jónas. Og Jónas var í kviði fisksins þrjá daga og þrjár nætur. |
2. | Og Jónas bað til Drottins Guðs síns í kviði fisksins |
3. | og sagði: Ég kallaði til Drottins í neyð minni, og hann svaraði mér. Frá skauti Heljar hrópaði ég, og þú heyrðir raust mína. |
4. | Þú varpaðir mér í djúpið, út í mitt hafið, svo að straumurinn umkringdi mig. Allir boðar þínir og bylgjur gengu yfir mig. |
5. | Ég hugsaði: Ég er burt rekinn frá augum þínum. Mun ég nokkurn tíma framar líta þitt heilaga musteri? |
6. | Vötnin luktu um mig og ætluðu að sálga mér, hyldýpið umkringdi mig, höfði mínu var faldað með marhálmi. |
7. | Ég steig niður að grundvöllum fjallanna, slagbrandar jarðarinnar voru lokaðir á eftir mér að eilífu. Þá færðir þú líf mitt upp úr gröfinni, Drottinn, Guð minn! |
8. | Þegar sál mín örmagnaðist í mér, þá minntist ég Drottins, og bæn mín kom til þín, í þitt heilaga musteri. |
9. | Þeir sem dýrka fánýt falsgoð, þeir hafna hjálpræði sínu.En ég vil færa þér fórnir með lofgjörðarsöng. Ég vil greiða það er ég hefi heitið. Hjálpin kemur frá Drottni. [ (Jonah 2:11) En Drottinn bauð fiskinum að spúa Jónasi upp á þurrt land. ] |
10. | En ég vil færa þér fórnir með lofgjörðarsöng. Ég vil greiða það er ég hefi heitið. Hjálpin kemur frá Drottni. [ (Jonah 2:11) En Drottinn bauð fiskinum að spúa Jónasi upp á þurrt land. ] |
← Jonah (2/4) → |