← John (9/21) → |
1. | Á leið sinni sá hann mann, sem var blindur frá fæðingu. |
2. | Lærisveinar hans spurðu hann: ,,Rabbí, hvort hefur þessi maður syndgað eða foreldrar hans, fyrst hann fæddist blindur?`` |
3. | Jesús svaraði: ,,Hvorki er það af því, að hann hafi syndgað eða foreldrar hans, heldur til þess að verk Guðs verði opinber á honum. |
4. | Oss ber að vinna verk þess, er sendi mig, meðan dagur er. Það kemur nótt, þegar enginn getur unnið. |
5. | Meðan ég er í heiminum, er ég ljós heimsins.`` |
6. | Að svo mæltu skyrpti hann á jörðina, gjörði leðju úr munnvatninu, strauk leðju á augu hans |
7. | og sagði við hann: ,,Farðu og þvoðu þér í lauginni Sílóam.`` (Sílóam þýðir sendur.) Hann fór og þvoði sér og kom sjáandi. |
8. | Nágrannar hans og þeir, sem höfðu áður séð hann ölmusumann, sögðu þá: ,,Er þetta ekki sá, er setið hefur og beðið sér ölmusu?`` |
9. | Sumir sögðu: ,,Sá er maðurinn,`` en aðrir sögðu: ,,Nei, en líkur er hann honum.`` Sjálfur sagði hann: ,,Ég er sá.`` |
10. | Þá sögðu þeir við hann: ,,Hvernig opnuðust augu þín?`` |
11. | Hann svaraði: ,,Maður að nafni Jesús gjörði leðju og smurði á augu mín og sagði mér að fara til Sílóam og þvo mér. Ég fór og fékk sjónina, þegar ég var búinn að þvo mér.`` |
12. | Þeir sögðu við hann: ,,Hvar er hann?`` Hann svaraði: ,,Það veit ég ekki.`` |
13. | Þeir fara til faríseanna með manninn, sem áður var blindur. |
14. | En þá var hvíldardagur, þegar Jesús bjó til leðjuna og opnaði augu hans. |
15. | Farísearnir spurðu hann nú líka, hvernig hann hefði fengið sjónina. Hann svaraði þeim: ,,Hann lagði leðju á augu mín, ég þvoði mér, og nú sé ég.`` |
16. | Þá sögðu nokkrir farísear: ,,Þessi maður er ekki frá Guði, fyrst hann heldur ekki hvíldardaginn.`` Aðrir sögðu: ,,Hvernig getur syndugur maður gjört þvílík tákn?`` Og ágreiningur varð með þeim. |
17. | Þá segja þeir aftur við hinn blinda: ,,Hvað segir þú um hann, fyrst hann opnaði augu þín?`` Hann sagði: ,,Hann er spámaður.`` |
18. | Gyðingar trúðu því ekki, að hann, sem sjónina fékk, hefði verið blindur, og kölluðu fyrst á foreldra hans |
19. | og spurðu þá: ,,Er þetta sonur ykkar, sem þið segið að hafi fæðst blindur? Hvernig er hann þá orðinn sjáandi?`` |
20. | Foreldrar hans svöruðu: ,,Við vitum, að þessi maður er sonur okkar og að hann fæddist blindur. |
21. | En hvernig hann er nú orðinn sjáandi, vitum við ekki, né heldur vitum við, hver opnaði augu hans. Spyrjið hann sjálfan. Hann hefur aldur til. Hann getur svarað fyrir sig.`` |
22. | Þetta sögðu foreldrar hans af ótta við Gyðinga. Því Gyðingar höfðu þegar samþykkt, að ef nokkur játaði, að Jesús væri Kristur, skyldi hann samkundurækur. |
23. | Vegna þessa sögðu foreldrar hans: ,,Hann hefur aldur til, spyrjið hann sjálfan.`` |
24. | Nú kölluðu þeir í annað sinn á manninn, sem blindur hafði verið, og sögðu við hann: ,,Gef þú Guði dýrðina. Vér vitum, að þessi maður er syndari.`` |
25. | Hann svaraði: ,,Ekki veit ég, hvort hann er syndari. En eitt veit ég, að ég, sem var blindur, er nú sjáandi.`` |
26. | Þá sögðu þeir við hann: ,,Hvað gjörði hann við þig? Hvernig opnaði hann augu þín?`` |
27. | Hann svaraði þeim: ,,Ég er búinn að segja yður það, og þér hlustuðuð ekki á það. Hví viljið þér heyra það aftur? Viljið þér líka verða lærisveinar hans?`` |
28. | Þeir atyrtu hann og sögðu: ,,Þú ert lærisveinn hans, vér erum lærisveinar Móse. |
29. | Vér vitum, að Guð talaði við Móse, en um þennan vitum vér ekki, hvaðan hann er.`` |
30. | Maðurinn svaraði þeim: ,,Þetta er furðulegt, að þér vitið ekki, hvaðan hann er, og þó opnaði hann augu mín. |
31. | Vér vitum, að Guð heyrir ekki syndara. En ef einhver er guðrækinn og gjörir vilja hans, þann heyrir hann. |
32. | Frá alda öðli hefur ekki heyrst, að nokkur hafi opnað augu þess, sem blindur var borinn. |
33. | Ef þessi maður væri ekki frá Guði, gæti hann ekkert gjört.`` |
34. | Þeir svöruðu honum: ,,Þú ert syndum vafinn frá fæðingu og ætlar að kenna oss!`` Og þeir ráku hann út. |
35. | Jesús heyrði, að þeir hefðu rekið hann út. Hann fann hann og sagði við hann: ,,Trúir þú á Mannssoninn?`` |
36. | Hinn svaraði: ,,Herra, hver er sá, að ég megi trúa á hann?`` |
37. | Jesús sagði við hann: ,,Þú hefur séð hann, hann er sá sem er nú að tala við þig.`` |
38. | En hann sagði: ,,Ég trúi, herra,`` og féll fram fyrir honum. |
39. | Jesús sagði: ,,Til dóms er ég kominn í þennan heim, svo að blindir sjái og hinir sjáandi verði blindir.`` |
40. | Þetta heyrðu þeir farísear, sem með honum voru, og spurðu: ,,Erum vér þá líka blindir?``Jesús sagði við þá: ,,Ef þér væruð blindir, væruð þér án sakar. En nú segist þér vera sjáandi, því varir sök yðar.`` |
41. | Jesús sagði við þá: ,,Ef þér væruð blindir, væruð þér án sakar. En nú segist þér vera sjáandi, því varir sök yðar.`` |
← John (9/21) → |