← John (7/21) → |
1. | Eftir þetta fór Jesús um Galíleu. Hann vildi ekki fara um Júdeu, sökum þess að Gyðingar sátu um líf hans. |
2. | Nú fór að hátíð Gyðinga, laufskálahátíðin. |
3. | Þá sögðu bræður hans við hann: ,,Flyt þig héðan og farðu til Júdeu, til þess að lærisveinar þínir sjái líka verkin þín, sem þú gjörir. |
4. | Því enginn starfar í leynum, ef hann vill verða alkunnur. Fyrst þú vinnur slík verk, þá opinbera sjálfan þig heiminum.`` |
5. | Því jafnvel bræður hans trúðu ekki á hann. |
6. | Jesús sagði við þá: ,,Minn tími er ekki enn kominn, en yður hentar allur tími. |
7. | Heimurinn getur ekki hatað yður. Mig hatar hann, af því ég vitna um hann, að verk hans eru vond. |
8. | Þér skuluð fara upp eftir á hátíðina. Ég fer ekki til þessarar hátíðar, því minn tími er ekki enn kominn.`` |
9. | Þetta sagði hann þeim og var kyrr í Galíleu. |
10. | Þegar bræður hans voru farnir upp eftir til hátíðarinnar, fór hann samt líka upp eftir, ekki svo menn vissu, heldur nánast á laun. |
11. | Gyðingar voru að leita að honum á hátíðinni og spurðu, hvar hann væri. |
12. | Manna á meðal var margt um hann talað. Sumir sögðu: ,,Hann er góður,`` en aðrir sögðu: ,,Nei, hann leiðir fjöldann í villu.`` |
13. | Þó talaði enginn opinskátt um hann af ótta við Gyðinga. |
14. | Er hátíðin var þegar hálfnuð, fór Jesús upp í helgidóminn og tók að kenna. |
15. | Gyðingar urðu forviða og sögðu: ,,Hvernig hefur þessi maður orðið lærður og hefur þó ekki fræðslu notið?`` |
16. | Jesús svaraði þeim: ,,Kenning mín er ekki mín, heldur hans, er sendi mig. |
17. | Sá sem vill gjöra vilja hans, mun komast að raun um, hvort kenningin er frá Guði eða ég tala af sjálfum mér. |
18. | Sá sem talar af sjálfum sér, leitar eigin heiðurs, en sá sem leitar heiðurs þess, er sendi hann, er sannorður og í honum ekkert ranglæti. |
19. | Gaf Móse yður ekki lögmálið? Samt heldur enginn yðar lögmálið. Hví sitjið þér um líf mitt?`` |
20. | Fólkið ansaði: ,,Þú ert haldinn illum anda. Hver situr um líf þitt?`` |
21. | Jesús svaraði þeim: ,,Eitt verk gjörði ég, og þér undrist það allir. |
22. | Móse gaf yður umskurnina _ hún er að vísu ekki frá Móse, heldur feðrunum _ og þér umskerið mann jafnvel á hvíldardegi. |
23. | Fyrst maður er umskorinn á hvíldardegi, til þess að lögmál Móse verði ekki brotið, hví reiðist þér mér, að ég gjörði manninn allan heilan á hvíldardegi? |
24. | Dæmið ekki eftir útliti, dæmið réttlátan dóm.`` |
25. | Þá sögðu nokkrir Jerúsalembúar: ,,Er þetta ekki sá, sem þeir sitja um að lífláta? |
26. | Og nú er hann að tala á almannafæri, og þeir segja ekkert við hann. Skyldu nú höfðingjarnir hafa komist að raun um, að hann sé Kristur? |
27. | Nei, vér vitum, hvaðan þessi maður er. Þegar Kristur kemur, veit enginn, hvaðan hann er.`` |
28. | Jesús var að kenna í helgidóminum, og nú kallaði hann: ,,Bæði þekkið þér mig og vitið hvaðan ég er. Þó er ég ekki kominn af sjálfum mér. En sá er sannur, sem sendi mig, og hann þekkið þér ekki. |
29. | Ég þekki hann, því ég er frá honum og hann sendi mig.`` |
30. | Nú ætluðu þeir að grípa hann, en enginn lagði hendur á hann, því stund hans var enn ekki komin. |
31. | En af alþýðu manna tóku margir að trúa á hann og sögðu: ,,Mun Kristur gjöra fleiri tákn, þegar hann kemur, en þessi maður hefur gjört?`` |
32. | Farísear heyrðu, að fólk var að skrafa þetta um hann, og æðstu prestar og farísear sendu þjóna að taka hann höndum. |
33. | Þá sagði Jesús: ,,Enn verð ég hjá yður skamma stund, og þá fer ég aftur til þess, sem sendi mig. |
34. | Þér munuð leita mín og eigi finna. Þér getið ekki komist þangað sem ég er.`` |
35. | Þá sögðu Gyðingar sín á milli: ,,Hvert skyldi hann ætla að fara, svo að vér finnum hann ekki? Hann ætlar þó ekki að fara til Gyðinga, sem dreifðir eru meðal Grikkja og kenna Grikkjum? |
36. | Hvað var hann að segja: ,Þér munuð leita mín og eigi finna, og þér getið ekki komist þangað sem ég er`?`` |
37. | Síðasta daginn, hátíðardaginn mikla, stóð Jesús þar og kallaði: ,,Ef nokkurn þyrstir, þá komi hann til mín og drekki. |
38. | Sá sem trúir á mig, _ frá hjarta hans munu renna lækir lifandi vatns, eins og ritningin segir.`` |
39. | Þarna átti hann við andann, er þeir skyldu hljóta, sem á hann trúa. Því enn var andinn ekki gefinn, þar eð Jesús var ekki enn dýrlegur orðinn. |
40. | Þá sögðu nokkrir úr mannfjöldanum, sem hlýddu á þessi orð: ,,Þessi er sannarlega spámaðurinn.`` |
41. | Aðrir mæltu: ,,Hann er Kristur.`` En sumir sögðu: ,,Mundi Kristur þá koma frá Galíleu? |
42. | Hefur ekki ritningin sagt, að Kristur komi af kyni Davíðs og frá Betlehem, þorpinu þar sem Davíð var?`` |
43. | Þannig greindi menn á um hann. |
44. | Nokkrir þeirra vildu grípa hann, en þó lagði enginn hendur á hann. |
45. | Nú komu þjónarnir til æðstu prestanna og faríseanna, sem sögðu við þá: ,,Hvers vegna komuð þér ekki með hann?`` |
46. | Þjónarnir svöruðu: ,,Aldrei hefur nokkur maður talað þannig.`` |
47. | Þá sögðu farísearnir: ,,Létuð þér þá einnig leiðast afvega? |
48. | Ætli nokkur af höfðingjunum hafi farið að trúa á hann, eða þá af faríseum? |
49. | Þessi almúgi, sem veit ekkert í lögmálinu, hann er bölvaður!`` |
50. | Nikódemus, sem kom til hans fyrrum og var einn af þeim, segir við þá: |
51. | ,,Mundi lögmál vort dæma mann, nema hann sé yfirheyrður áður og að því komist, hvað hann hefur aðhafst?`` |
52. | Þeir svöruðu honum: ,,Ert þú nú líka frá Galíleu? Gáðu að og sjáðu, að enginn spámaður kemur úr Galíleu.``[Nú fór hver heim til sín. |
53. | [Nú fór hver heim til sín. |
← John (7/21) → |