← John (6/21) → |
1. | Eftir þetta fór Jesús yfir um Galíleuvatn eða Tíberíasvatn. |
2. | Mikill fjöldi manna fylgdi honum, því þeir sáu þau tákn, er hann gjörði á sjúku fólki. |
3. | Þá fór Jesús upp á fjallið og settist þar niður með lærisveinum sínum. |
4. | Þetta var laust fyrir páska, hátíð Gyðinga. |
5. | Jesús leit upp og sá, að mikill mannfjöldi kom til hans. Hann segir þá við Filippus: ,,Hvar eigum vér að kaupa brauð, að þessir menn fái að eta?`` |
6. | En þetta sagði hann til að reyna hann, því hann vissi sjálfur, hvað hann ætlaði að gjöra. |
7. | Filippus svaraði honum: ,,Brauð fyrir tvö hundruð denara nægðu þeim ekki, svo að hver fengi lítið eitt.`` |
8. | Annar lærisveinn hans, Andrés, bróðir Símonar Péturs, segir þá við hann: |
9. | ,,Hér er piltur, sem er með fimm byggbrauð og tvo fiska, en hvað er það handa svo mörgum?`` |
10. | Jesús sagði: ,,Látið fólkið setjast niður.`` Þarna var gras mikið. Menn settust nú niður, um fimm þúsund karlmenn að tölu. |
11. | Nú tók Jesús brauðin, gjörði þakkir og skipti þeim út til þeirra, sem þar sátu, og eins af fiskunum, svo mikið sem þeir vildu. |
12. | Þegar þeir voru mettir, segir hann við lærisveina sína: ,,Safnið saman leifunum, svo ekkert spillist.`` |
13. | Þeir söfnuðu þeim saman og fylltu tólf körfur með leifum byggbrauðanna fimm, sem af gengu hjá þeim, er neytt höfðu. |
14. | Þegar menn sáu táknið, sem hann gjörði, sögðu þeir: ,,Þessi maður er sannarlega spámaðurinn, sem koma skal í heiminn.`` |
15. | Jesús vissi nú, að þeir mundu koma og taka hann með valdi til að gjöra hann að konungi, og vék því aftur upp til fjallsins einn síns liðs. |
16. | Þegar kvöld var komið, fóru lærisveinar hans niður að vatninu, |
17. | stigu út í bát og lögðu af stað yfir um vatnið til Kapernaum. Myrkur var skollið á, og Jesús var ekki enn kominn til þeirra. |
18. | Vind gerði hvassan, og tók vatnið að æsast. |
19. | Þegar þeir höfðu róið hér um bil tuttugu og fimm eða þrjátíu skeiðrúm, sáu þeir Jesú gangandi á vatninu og nálgast bátinn. Þeir urðu hræddir, |
20. | en hann sagði við þá: ,,Það er ég, óttist eigi.`` |
21. | Þeir vildu þá taka hann í bátinn, en í sömu svifum rann báturinn að landi, þar sem þeir ætluðu að lenda. |
22. | Daginn eftir sá fólkið, sem eftir var handan vatnsins, að þar hafði ekki verið nema einn bátur og að Jesús hafði ekki stigið í bátinn með lærisveinum sínum, heldur höfðu þeir farið burt einir saman. |
23. | Aðrir bátar komu frá Tíberías í nánd við staðinn, þar sem þeir höfðu etið brauðið, þegar Drottinn gjörði þakkir. |
24. | Nú sáu menn, að Jesús var ekki þarna fremur en lærisveinar hans. Þeir stigu því í bátana og komu til Kapernaum í leit að Jesú. |
25. | Þeir fundu hann hinum megin við vatnið og spurðu hann: ,,Rabbí, nær komstu hingað?`` |
26. | Jesús svaraði þeim: ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér leitið mín ekki af því, að þér sáuð tákn, heldur af því, að þér átuð af brauðunum og urðuð mettir. |
27. | Aflið yður eigi þeirrar fæðu, sem eyðist, heldur þeirrar fæðu, sem varir til eilífs lífs og Mannssonurinn mun gefa yður. Því á hann hefur faðirinn, Guð sjálfur, sett innsigli sitt.`` |
28. | Þá sögðu þeir við hann: ,,Hvað eigum vér að gjöra, svo að vér vinnum verk Guðs?`` |
29. | Jesús svaraði þeim: ,,Þetta er verk Guðs, að þér trúið á þann, sem hann sendi.`` |
30. | Þeir spurðu hann þá: ,,Hvaða tákn gjörir þú, svo að vér sjáum og trúum þér? Hvað afrekar þú? |
31. | Feður vorir átu manna í eyðimörkinni, eins og ritað er: ,Brauð af himni gaf hann þeim að eta.``` |
32. | Jesús sagði við þá: ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Móse gaf yður ekki brauðið af himni, heldur gefur faðir minn yður hið sanna brauð af himni. |
33. | Brauð Guðs er sá, sem stígur niður af himni og gefur heiminum líf.`` |
34. | Þá sögðu þeir við hann: ,,Herra, gef oss ætíð þetta brauð.`` |
35. | Jesús sagði þeim: ,,Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra, sem til mín kemur, og þann aldrei þyrsta, sem á mig trúir. |
36. | En ég hef sagt við yður: Þér hafið séð mig og trúið þó ekki. |
37. | Allt sem faðirinn gefur mér, mun koma til mín, og þann sem kemur til mín, mun ég alls eigi brott reka. |
38. | Ég er stiginn niður af himni, ekki til að gjöra vilja minn, heldur vilja þess, er sendi mig. |
39. | En sá er vilji þess, sem sendi mig, að ég glati engu af öllu því, sem hann hefur gefið mér, heldur reisi það upp á efsta degi. |
40. | Því sá er vilji föður míns, að hver sem sér soninn og trúir á hann, hafi eilíft líf, og ég mun reisa hann upp á efsta degi.`` |
41. | Nú kom upp kurr meðal Gyðinga út af því, að hann sagði: ,,Ég er brauðið, sem niður steig af himni,`` |
42. | og þeir sögðu: ,,Er þetta ekki hann Jesús, sonur Jósefs? Vér þekkjum bæði föður hans og móður. Hvernig getur hann sagt, að hann sé stiginn niður af himni?`` |
43. | Jesús svaraði þeim: ,,Verið ekki með kurr yðar á meðal. |
44. | Enginn getur komið til mín, nema faðirinn, sem sendi mig, dragi hann, og ég mun reisa hann upp á efsta degi. |
45. | Hjá spámönnunum er skrifað: ,Þeir munu allir verða af Guði fræddir.` Hver sem hlýðir á föðurinn og lærir af honum, kemur til mín. |
46. | Ekki er það svo, að nokkur hafi séð föðurinn. Sá einn, sem er frá Guði, hefur séð föðurinn. |
47. | Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir, hefur eilíft líf. |
48. | Ég er brauð lífsins. |
49. | Feður yðar átu manna í eyðimörkinni, en þeir dóu. |
50. | Þetta er brauðið, sem niður stígur af himni. Sá sem etur af því, deyr ekki. |
51. | Ég er hið lifandi brauð, sem steig niður af himni. Hver sem etur af þessu brauði, mun lifa að eilífu. Og brauðið, sem ég mun gefa, er hold mitt, heiminum til lífs.`` |
52. | Nú deildu Gyðingar sín á milli og sögðu: ,,Hvernig getur þessi maður gefið oss hold sitt að eta?`` |
53. | Þá sagði Jesús við þá: ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef þér etið ekki hold Mannssonarins og drekkið blóð hans, hafið þér ekki lífið í yður. |
54. | Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt, hefur eilíft líf, og ég reisi hann upp á efsta degi. |
55. | Hold mitt er sönn fæða, og blóð mitt er sannur drykkur. |
56. | Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt, er í mér og ég í honum. |
57. | Eins og hinn lifandi faðir sendi mig og ég lifi fyrir föðurinn, svo mun sá lifa fyrir mig, sem mig etur. |
58. | Þetta er það brauð, sem niður steig af himni. Það er ekki eins og brauðið, sem feðurnir átu og dóu. Sá sem etur þetta brauð, mun lifa að eilífu.`` |
59. | Þetta sagði hann, þegar hann var að kenna í samkundunni í Kapernaum. |
60. | Margir af lærisveinum hans, er á hlýddu, sögðu: ,,Þung er þessi ræða. Hver getur hlustað á hana?`` |
61. | Jesús vissi með sjálfum sér, að kurr var með lærisveinum hans út af þessu, og sagði við þá: ,,Hneykslar þetta yður? |
62. | En ef þér sæjuð Mannssoninn stíga upp þangað, sem hann áður var? |
63. | Það er andinn, sem lífgar, holdið megnar ekkert. Orðin, sem ég hef talað til yðar, þau eru andi og þau eru líf. |
64. | En meðal yðar eru nokkrir, sem ekki trúa.`` Jesús vissi frá upphafi, hverjir þeir voru, sem trúðu ekki, og hver sá var, sem mundi svíkja hann. |
65. | Og hann bætti við: ,,Vegna þess sagði ég við yður: Enginn getur komið til mín, nema faðirinn veiti honum það.`` |
66. | Upp úr þessu hurfu margir af lærisveinum hans frá og voru ekki framar með honum. |
67. | Þá sagði Jesús við þá tólf: ,,Ætlið þér að fara líka?`` |
68. | Símon Pétur svaraði honum: ,,Herra, til hvers ættum vér að fara? Þú hefur orð eilífs lífs, |
69. | og vér trúum og vitum, að þú ert hinn heilagi Guðs.`` |
70. | Jesús svaraði þeim: ,,Hef ég eigi sjálfur útvalið yður tólf? Þó er einn yðar djöfull.``En hann átti við Júdas Símonarson Ískaríots, sem varð til að svíkja hann, einn þeirra tólf. |
71. | En hann átti við Júdas Símonarson Ískaríots, sem varð til að svíkja hann, einn þeirra tólf. |
← John (6/21) → |