← John (3/21) → |
1. | Maður hét Nikódemus, af flokki farísea, ráðsherra meðal Gyðinga. |
2. | Hann kom til Jesú um nótt og sagði við hann: ,,Rabbí, vér vitum, að þú ert lærifaðir kominn frá Guði. Enginn getur gjört þessi tákn, sem þú gjörir, nema Guð sé með honum.`` |
3. | Jesús svaraði honum: ,,Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur séð Guðs ríki, nema hann fæðist að nýju.`` |
4. | Nikódemus segir við hann: ,,Hvernig getur maður fæðst, þegar hann er orðinn gamall? Skyldi hann geta komist aftur í líf móður sinnar og fæðst?`` |
5. | Jesús svaraði: ,,Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur komist inn í Guðs ríki, nema hann fæðist af vatni og anda. |
6. | Það sem af holdinu fæðist, er hold, en það sem af andanum fæðist, er andi. |
7. | Undrast eigi, að ég segi við þig: Yður ber að fæðast að nýju. |
8. | Vindurinn blæs þar sem hann vill, og þú heyrir þyt hans. Samt veistu ekki, hvaðan hann kemur né hvert hann fer. Svo er um þann, sem af andanum er fæddur.`` |
9. | Þá spurði Nikódemus: ,,Hvernig má þetta verða?`` |
10. | Jesús svaraði honum: ,,Þú ert lærifaðir í Ísrael og veist ekki þetta? |
11. | Sannlega, sannlega segi ég þér: Vér tölum um það, sem vér þekkjum, og vitnum um það, sem vér höfum séð, en þér takið ekki á móti vitnisburði vorum. |
12. | Ef þér trúið eigi, þegar ég ræði við yður jarðnesk efni, hvernig skylduð þér þá trúa, er ég ræði við yður um hin himnesku? |
13. | Enginn hefur stigið upp til himins, nema sá er steig niður frá himni, Mannssonurinn. |
14. | Og eins og Móse hóf upp höggorminn í eyðimörkinni, þannig á Mannssonurinn að verða upp hafinn, |
15. | svo að hver sem trúir hafi eilíft líf í honum. |
16. | Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. |
17. | Guð sendi ekki soninn í heiminn til að dæma heiminn, heldur að heimurinn skyldi frelsast fyrir hann. |
18. | Sá sem trúir á hann, dæmist ekki. Sá sem trúir ekki, er þegar dæmdur, því að hann hefur ekki trúað á nafn Guðs sonarins eina. |
19. | En þessi er dómurinn: Ljósið er komið í heiminn, en menn elskuðu myrkrið fremur en ljósið, því að verk þeirra voru vond. |
20. | Hver sem illt gjörir hatar ljósið og kemur ekki til ljóssins, svo að verk hans verði ekki uppvís. |
21. | En sá sem iðkar sannleikann kemur til ljóssins, svo að augljóst verði, að verk hans eru í Guði gjörð.`` |
22. | Eftir þetta fór Jesús og lærisveinar hans út í Júdeuhérað. Þar dvaldist hann með þeim og skírði. |
23. | Jóhannes var líka að skíra í Aínon nálægt Salím, en þar var mikið vatn. Menn komu þangað og létu skírast. |
24. | Þá var ekki enn búið að varpa Jóhannesi í fangelsi. |
25. | Nú varð deila um hreinsun milli lærisveina Jóhannesar og Gyðings eins. |
26. | Þeir komu til Jóhannesar og sögðu við hann: ,,Rabbí, sá sem var hjá þér handan við Jórdan og þú barst vitni um, hann er að skíra, og allir koma til hans.`` |
27. | Jóhannes svaraði þeim: ,,Enginn getur tekið neitt, nema honum sé gefið það af himni. |
28. | Þér getið sjálfir vitnað um, að ég sagði: ,Ég er ekki Kristur, heldur er ég sendur á undan honum.` |
29. | Sá er brúðguminn, sem á brúðina, en vinur brúðgumans, sem stendur hjá og hlýðir á hann, gleðst mjög við rödd hans. Þessi gleði er nú mín að fullu. |
30. | Hann á að vaxa, en ég að minnka. |
31. | Sá sem kemur að ofan, er yfir öllum. Sá sem er af jörðu, hann er af jörðu og talar af jörðu. Sá sem kemur af himni, er yfir öllum |
32. | og vitnar um það, sem hann hefur séð og heyrt, og enginn tekur á móti vitnisburði hans. |
33. | En sá sem hefur tekið á móti vitnisburði hans, hefur staðfest, að Guð sé sannorður. |
34. | Sá sem Guð sendi, talar Guðs orð, því ómælt gefur Guð andann. |
35. | Faðirinn elskar soninn og hefur lagt allt í hönd honum.Sá sem trúir á soninn, hefur eilíft líf, en sá sem óhlýðnast syninum, mun ekki sjá líf, heldur varir reiði Guðs yfir honum.`` |
36. | Sá sem trúir á soninn, hefur eilíft líf, en sá sem óhlýðnast syninum, mun ekki sjá líf, heldur varir reiði Guðs yfir honum.`` |
← John (3/21) → |