← John (2/21) → |
1. | Á þriðja degi var brúðkaup í Kana í Galíleu. Móðir Jesú var þar. |
2. | Jesú var og boðið til brúðkaupsins og lærisveinum hans. |
3. | En er vín þraut segir móðir Jesú við hann: ,,Þeir hafa ekki vín.`` |
4. | Jesús svarar: ,,Hvað varðar það mig og þig, kona? Minn tími er ekki enn kominn.`` |
5. | Móðir hans sagði þá við þjónana: ,,Gjörið það, sem hann kann að segja yður.`` |
6. | Nú voru þar sex vatnsker úr steini samkvæmt reglum Gyðinga um hreinsun, og tók hvert þeirra tvo mæla eða þrjá. |
7. | Jesús segir við þá: ,,Fyllið kerin vatni.`` Þeir fylltu þau á barma. |
8. | Síðan segir hann: ,,Ausið nú af og færið veislustjóra.`` Þeir gjörðu svo. |
9. | Veislustjóri bragðaði vatnið, sem var orðið vín, og vissi ekki, hvaðan það var, en þjónarnir, sem vatnið höfðu ausið, vissu það. Þá kallaði veislustjóri á brúðgumann |
10. | og sagði: ,,Allir menn bera fyrst fram góða vínið og síðan hið lakara, er menn gjörast ölvaðir. Þú hefur geymt góða vínið þar til nú.`` |
11. | Þetta fyrsta tákn sitt gjörði Jesús í Kana í Galíleu og opinberaði dýrð sína, og lærisveinar hans trúðu á hann. |
12. | Eftir þetta fór hann ofan til Kapernaum ásamt móður sinni, bræðrum og lærisveinum. Þar voru þau nokkra daga. |
13. | Nú fóru páskar Gyðinga í hönd, og Jesús hélt upp til Jerúsalem. |
14. | Þar sá hann í helgidóminum þá, er seldu naut, sauði og dúfur, og víxlarana, sem sátu þar. |
15. | Þá gjörði hann sér svipu úr köðlum og rak alla út úr helgidóminum, líka sauðina og nautin. Hann steypti niður peningum víxlaranna og hratt um borðum þeirra, |
16. | og við dúfnasalana sagði hann: ,,Burt með þetta héðan. Gjörið ekki hús föður míns að sölubúð.`` |
17. | Lærisveinum hans kom í hug, að ritað er: ,,Vandlæting vegna húss þíns mun tæra mig upp.`` |
18. | Gyðingar sögðu þá við hann: ,,Hvaða tákn getur þú sýnt oss um það, að þú megir gjöra þetta?`` |
19. | Jesús svaraði þeim: ,,Brjótið þetta musteri, og ég skal reisa það á þrem dögum.`` |
20. | Þá sögðu Gyðingar: ,,Þetta musteri hefur verið fjörutíu og sex ár í smíðum, og þú ætlar að reisa það á þrem dögum!`` |
21. | En hann var að tala um musteri líkama síns. |
22. | Þegar hann var risinn upp frá dauðum, minntust lærisveinar hans, að hann hafði sagt þetta, og trúðu ritningunni og orðinu, sem Jesús hafði talað. |
23. | Meðan hann var í Jerúsalem á páskahátíðinni, fóru margir að trúa á nafn hans, því þeir sáu þau tákn, sem hann gjörði. |
24. | En Jesús gaf þeim ekki trúnað sinn, því hann þekkti alla.Hann þurfti þess ekki, að neinn bæri öðrum manni vitni; hann vissi sjálfur, hvað í manni býr. |
25. | Hann þurfti þess ekki, að neinn bæri öðrum manni vitni; hann vissi sjálfur, hvað í manni býr. |
← John (2/21) → |