← John (19/21) → |
1. | Þá lét Pílatus taka Jesú og húðstrýkja hann. |
2. | Hermennirnir fléttuðu kórónu úr þyrnum og settu á höfuð honum og lögðu yfir hann purpurakápu. |
3. | Þeir gengu hver af öðrum fyrir hann og sögðu: ,,Sæll þú, konungur Gyðinga,`` og slógu hann í andlitið. |
4. | Pílatus gekk aftur út fyrir og sagði við þá: ,,Nú leiði ég hann út til yðar, svo að þér skiljið, að ég finn enga sök hjá honum.`` |
5. | Jesús kom þá út fyrir með þyrnikórónuna og í purpurakápunni. Pílatus segir við þá: ,,Sjáið manninn!`` |
6. | Þegar æðstu prestarnir og verðirnir sáu hann, æptu þeir: ,,Krossfestu, krossfestu!`` Pílatus sagði við þá: ,,Takið þér hann og krossfestið. Ég finn enga sök hjá honum.`` |
7. | Gyðingar svöruðu: ,,Vér höfum lögmál, og samkvæmt lögmálinu á hann að deyja, því hann hefur gjört sjálfan sig að Guðs syni.`` |
8. | Þegar Pílatus heyrði þessi orð, varð hann enn hræddari. |
9. | Hann fór aftur inn í höllina og segir við Jesú: ,,Hvaðan ertu?`` En Jesús veitti honum ekkert svar. |
10. | Pílatus segir þá við hann: ,,Viltu ekki tala við mig? Veistu ekki, að ég hef vald til að láta þig lausan, og ég hef vald til að krossfesta þig?`` |
11. | Jesús svaraði: ,,Þú hefðir ekkert vald yfir mér, ef þér væri ekki gefið það að ofan. Fyrir því ber sá þyngri sök, sem hefur selt mig þér í hendur.`` |
12. | Eftir þetta reyndi Pílatus enn að láta hann lausan. En Gyðingar æptu: ,,Ef þú lætur hann lausan, ert þú ekki vinur keisarans. Hver sem gjörir sjálfan sig að konungi, rís á móti keisaranum.`` |
13. | Þegar Pílatus heyrði þessi orð, leiddi hann Jesú út og settist í dómstólinn á stað þeim, sem nefnist Steinhlað, á hebresku Gabbata. |
14. | Þá var aðfangadagur páska, um hádegi. Hann sagði við Gyðinga: ,,Sjáið þar konung yðar!`` |
15. | Þá æptu þeir: ,,Burt með hann! Burt með hann! Krossfestu hann!`` Pílatus segir við þá: ,,Á ég að krossfesta konung yðar?`` Æðstu prestarnir svöruðu: ,,Vér höfum engan konung nema keisarann.`` |
16. | Þá seldi hann þeim hann í hendur, að hann yrði krossfestur. Þeir tóku þá við Jesú. |
17. | Og hann bar kross sinn og fór út til staðar, sem nefnist Hauskúpa, á hebresku Golgata. |
18. | Þar krossfestu þeir hann og með honum tvo aðra sinn til hvorrar handar; Jesús í miðið. |
19. | Pílatus hafði ritað yfirskrift og sett hana á krossinn. Þar stóð skrifað: JESÚS FRÁ NASARET, KONUNGUR GYÐINGA. |
20. | Margir Gyðingar lásu þessa yfirskrift, því staðurinn, þar sem Jesús var krossfestur, var nærri borginni, og þetta var ritað á hebresku, latínu og grísku. |
21. | Þá sögðu æðstu prestar Gyðinga við Pílatus: ,,Skrifaðu ekki ,konungur Gyðinga`, heldur að hann hafi sagt: ,Ég er konungur Gyðinga`.`` |
22. | Pílatus svaraði: ,,Það sem ég hef skrifað, það hef ég skrifað.`` |
23. | Þegar hermennirnir höfðu krossfest Jesú, tóku þeir klæði hans og skiptu í fjóra hluti, og fékk hver sinn hlut. Þeir tóku og kyrtilinn, en hann var saumlaus, ofinn í eitt ofan frá og niður úr. |
24. | Þeir sögðu því hver við annan: ,,Rífum hann ekki sundur, köstum heldur hlut um, hver skuli fá hann.`` Svo rættist ritningin: Þeir skiptu með sér klæðum mínum og köstuðu hlut um kyrtil minn. Þetta gjörðu hermennirnir. |
25. | En hjá krossi Jesú stóðu móðir hans og móðursystir, María, kona Klópa, og María Magdalena. |
26. | Þegar Jesús sá móður sína standa þar og lærisveininn, sem hann elskaði, segir hann við móður sína: ,,Kona, nú er hann sonur þinn.`` |
27. | Síðan sagði hann við lærisveininn: ,,Nú er hún móðir þín.`` Og frá þeirri stundu tók lærisveinninn hana heim til sín. |
28. | Jesús vissi, að allt var þegar fullkomnað. Þá sagði hann, til þess að ritningin rættist: ,,Mig þyrstir.`` |
29. | Þar stóð ker fullt af ediki. Þeir settu njarðarvött fylltan ediki á ísópslegg og báru að munni honum. |
30. | Þegar Jesús hafði fengið edikið, sagði hann: ,,Það er fullkomnað.`` Þá hneigði hann höfuðið og gaf upp andann.Nú var aðfangadagur, og til þess að líkin væru ekki á krossunum hvíldardaginn, báðu Gyðingar Pílatus að láta brjóta fótleggi þeirra og taka líkin ofan, enda var mikil helgi þess hvíldardags. [ (John 20:32) Hermenn komu því og brutu fótleggi þeirra, sem með honum voru krossfestir, fyrst annars, svo hins. ] [ (John 20:33) Þegar þeir komu að Jesú og sáu, að hann var þegar dáinn, brutu þeir ekki fótleggi hans. ] [ (John 20:34) En einn af hermönnunum stakk spjóti sínu í síðu hans, og rann jafnskjótt út blóð og vatn. ] [ (John 20:35) Sá er séð hefur, vitnar þetta, svo að þér trúið líka og vitnisburður hans er sannur. Og hann veit, að hann segir satt. ] [ (John 20:36) Þetta varð til þess, að ritningin rættist: ,,Ekkert bein hans skal brotið.`` ] [ (John 20:37) Og enn segir önnur ritning: ,,Þeir munu horfa til hans, sem þeir stungu.`` ] [ (John 20:38) Jósef frá Arímaþeu, sem var lærisveinn Jesú, en á laun af ótta við Gyðinga, bað síðan Pílatus að mega taka ofan líkama Jesú. Pílatus leyfði það. Hann kom þá og tók ofan líkama hans. ] [ (John 20:39) Þar kom líka Nikódemus, er fyrrum hafði komið til hans um nótt, og hafði með sér blöndu af myrru og alóe, nær hundrað pundum. ] [ (John 20:40) Þeir tóku nú líkama Jesú og sveipuðu hann línblæjum með ilmjurtunum, eins og Gyðingar búa lík til greftrunar. ] [ (John 20:41) En á staðnum, þar sem hann var krossfestur, var grasgarður og í garðinum ný gröf, sem enginn hafði enn verið lagður í. ] [ (John 20:42) Þar lögðu þeir Jesú, því það var aðfangadagur Gyðinga, og gröfin var nærri. ] |
31. | Nú var aðfangadagur, og til þess að líkin væru ekki á krossunum hvíldardaginn, báðu Gyðingar Pílatus að láta brjóta fótleggi þeirra og taka líkin ofan, enda var mikil helgi þess hvíldardags. [ (John 20:32) Hermenn komu því og brutu fótleggi þeirra, sem með honum voru krossfestir, fyrst annars, svo hins. ] [ (John 20:33) Þegar þeir komu að Jesú og sáu, að hann var þegar dáinn, brutu þeir ekki fótleggi hans. ] [ (John 20:34) En einn af hermönnunum stakk spjóti sínu í síðu hans, og rann jafnskjótt út blóð og vatn. ] [ (John 20:35) Sá er séð hefur, vitnar þetta, svo að þér trúið líka og vitnisburður hans er sannur. Og hann veit, að hann segir satt. ] [ (John 20:36) Þetta varð til þess, að ritningin rættist: ,,Ekkert bein hans skal brotið.`` ] [ (John 20:37) Og enn segir önnur ritning: ,,Þeir munu horfa til hans, sem þeir stungu.`` ] [ (John 20:38) Jósef frá Arímaþeu, sem var lærisveinn Jesú, en á laun af ótta við Gyðinga, bað síðan Pílatus að mega taka ofan líkama Jesú. Pílatus leyfði það. Hann kom þá og tók ofan líkama hans. ] [ (John 20:39) Þar kom líka Nikódemus, er fyrrum hafði komið til hans um nótt, og hafði með sér blöndu af myrru og alóe, nær hundrað pundum. ] [ (John 20:40) Þeir tóku nú líkama Jesú og sveipuðu hann línblæjum með ilmjurtunum, eins og Gyðingar búa lík til greftrunar. ] [ (John 20:41) En á staðnum, þar sem hann var krossfestur, var grasgarður og í garðinum ný gröf, sem enginn hafði enn verið lagður í. ] [ (John 20:42) Þar lögðu þeir Jesú, því það var aðfangadagur Gyðinga, og gröfin var nærri. ] |
← John (19/21) → |