← John (13/21) → |
1. | Hátíð páskanna var að ganga í garð. Jesús vissi, að stund hans var kominn og að hann færi burt úr þessum heimi til föðurins. Hann hafði elskað sína, þá sem í heiminum voru. Hann elskaði þá, uns yfir lauk. |
2. | Kvöldmáltíð stóð yfir. Djöfullinn hafði þegar blásið því í brjóst Júdasi Símonarsyni Ískaríots að svíkja Jesú. |
3. | Jesús vissi, að faðirinn hafði lagt allt í hendur honum, að hann var frá Guði kominn og var að fara til Guðs. |
4. | Hann stóð upp frá máltíðinni, lagði af sér yfirhöfnina, tók líndúk og batt um sig. |
5. | Síðan hellti hann vatni í mundlaug og tók að þvo fætur lærisveinanna og þerra með líndúknum, sem hann hafði um sig. |
6. | Hann kemur þá að Símoni Pétri, sem segir við hann: ,,Herra, ætlar þú að þvo mér um fæturna?`` |
7. | Jesús svaraði: ,,Nú skilur þú ekki, hvað ég er að gjöra, en seinna muntu skilja það.`` |
8. | Pétur segir við hann: ,,Aldrei að eilífu skaltu þvo fætur mína.`` Jesús svaraði: ,,Ef ég þvæ þér ekki, áttu enga samleið með mér.`` |
9. | Símon Pétur segir við hann: ,,Herra, ekki aðeins fætur mína, líka hendurnar og höfuðið.`` |
10. | Jesús segir við hann: ,,Sá sem laugast hefur, þarf ekki að þvost nema um fætur. Hann er allur hreinn. Og þér eruð hreinir, þó ekki allir.`` |
11. | Hann vissi, hver mundi svíkja hann, og því sagði hann: ,,Þér eruð ekki allir hreinir.`` |
12. | Þegar hann hafði þvegið fætur þeirra, tekið yfirhöfn sína og setst aftur niður, sagði hann við þá: ,,Skiljið þér, hvað ég hef gjört við yður? |
13. | Þér kallið mig meistara og herra, og þér mælið rétt, því það er ég. |
14. | Fyrst ég, sem er herra og meistari, hef nú þvegið yður um fæturna, þá ber yður einnig að þvo hver annars fætur. |
15. | Ég hef gefið yður eftirdæmi, að þér breytið eins og ég breytti við yður. |
16. | Sannlega, sannlega segi ég yður: Þjónn er ekki meiri en herra hans né sendiboði meiri þeim, er sendi hann. |
17. | Þér vitið þetta, og þér eruð sælir, ef þér breytið eftir því. |
18. | Ég tala ekki um yður alla. Ég veit, hverja ég hef útvalið. En ritningin verður að rætast: ,Sá sem etur brauð mitt, lyftir hæli sínum móti mér.` |
19. | Ég segi yður þetta núna, áður en það verður, svo að þér trúið, þegar það er orðið, að ég er sá sem ég er. |
20. | Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem tekur við þeim, sem ég sendi, hann tekur við mér, og sá sem tekur við mér, tekur við þeim er sendi mig.`` |
21. | Þegar Jesús hafði sagt þetta, varð honum mjög þungt um hjarta og hann sagði beinum orðum: ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Einn af yður mun svíkja mig.`` |
22. | Lærisveinarnir litu hver á annan og skildu ekki, við hvern hann ætti. |
23. | Sá lærisveinn Jesú, sem hann elskaði, sat næstur honum. |
24. | Símon Pétur benti honum og bað hann spyrja, hver sá væri, sem Jesús talaði um. |
25. | Hann laut þá að Jesú og spurði: ,,Herra, hver er það?`` |
26. | Jesús svaraði: ,,Það er sá sem ég fæ bita þann, er ég dýfi nú í.`` Þá dýfði hann í bitanum, tók hann og fékk Júdasi Símonarsyni Ískaríots. |
27. | Og eftir þann bita fór Satan inn í hann. Jesús segir við hann: ,,Það sem þú gjörir, það gjör þú skjótt!`` |
28. | En enginn þeirra, sem sátu til borðs, vissi til hvers hann sagði þetta við hann. |
29. | En af því að Júdas hafði pyngjuna, héldu sumir þeirra, að Jesús hefði sagt við hann: ,,Kauptu það, sem vér þurfum til hátíðarinnar,`` _ eða að hann skyldi gefa eitthvað fátækum. |
30. | Þá er hann hafði tekið við bitanum, gekk hann jafnskjótt út. Þá var nótt. |
31. | Þegar hann var farinn út, sagði Jesús: ,,Nú er Mannssonurinn dýrlegur orðinn, og Guð er orðinn dýrlegur í honum. |
32. | Fyrst Guð er orðinn dýrlegur í honum, mun Guð og gjöra hann dýrlegan í sér, og skjótt mun hann gjöra hann dýrlegan. |
33. | Börnin mín, stutta stund verð ég enn með yður. Þér munuð leita mín, og eins og ég sagði Gyðingum, segi ég yður nú: Þangað sem ég fer, getið þér ekki komist. |
34. | Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hver annan. Eins og ég hef elskað yður, skuluð þér einnig elska hver annan. |
35. | Á því munu allir þekkja, að þér eruð mínir lærisveinar, ef þér berið elsku hver til annars.`` |
36. | Símon Pétur segir við hann: ,,Herra, hvert ferðu?`` Jesús svaraði: ,,Þú getur ekki fylgt mér nú þangað sem ég fer, en síðar muntu fylgja mér.`` |
37. | Pétur segir við hann: ,,Herra, hví get ég ekki fylgt þér nú? Ég vil leggja líf mitt í sölurnar fyrir þig.``Jesús svaraði: ,,Viltu leggja líf þitt í sölurnar fyrir mig? Sannlega, sannlega segi ég þér: Ekki mun hani gala fyrr en þú hefur afneitað mér þrisvar.`` |
38. | Jesús svaraði: ,,Viltu leggja líf þitt í sölurnar fyrir mig? Sannlega, sannlega segi ég þér: Ekki mun hani gala fyrr en þú hefur afneitað mér þrisvar.`` |
← John (13/21) → |