John (1/21) → |
1. | Í upphafi var Orðið, og Orðið var hjá Guði, og Orðið var Guð. |
2. | Hann var í upphafi hjá Guði. |
3. | Allir hlutir urðu fyrir hann, án hans varð ekki neitt, sem til er. |
4. | Í honum var líf, og lífið var ljós mannanna. |
5. | Ljósið skín í myrkrinu, og myrkrið tók ekki á móti því. |
6. | Maður kom fram, sendur af Guði. Hann hét Jóhannes. |
7. | Hann kom til vitnisburðar, til að vitna um ljósið, svo að allir skyldu trúa fyrir hann. |
8. | Ekki var hann ljósið, hann kom til að vitna um ljósið. |
9. | Hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann, kom nú í heiminn. |
10. | Hann var í heiminum, og heimurinn var orðinn til fyrir hann, en heimurinn þekkti hann ekki. |
11. | Hann kom til eignar sinnar, en hans eigin menn tóku ekki við honum. |
12. | En öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim, er trúa á nafn hans. |
13. | Þeir eru ekki af blóði bornir, ekki að holds vild né manns vilja, heldur af Guði fæddir. |
14. | Og Orðið varð hold, hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika, og vér sáum dýrð hans, dýrð, sem sonurinn eini á frá föðurnum. |
15. | Jóhannes vitnar um hann og hrópar: ,,Þetta er sá sem ég átti við, þegar ég sagði: Sá sem kemur eftir mig, var á undan mér, enda fyrri en ég.`` |
16. | Af gnægð hans höfum vér allir þegið, náð á náð ofan. |
17. | Lögmálið var gefið fyrir Móse, en náðin og sannleikurinn kom fyrir Jesú Krist. |
18. | Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð. Sonurinn eini, Guð, sem er í faðmi föðurins, hann hefur birt hann. |
19. | Þessi er vitnisburður Jóhannesar, þegar Gyðingar sendu til hans presta og levíta frá Jerúsalem að spyrja hann: ,,Hver ert þú?`` |
20. | Hann svaraði ótvírætt og játaði: ,,Ekki er ég Kristur.`` |
21. | Þeir spurðu hann: ,,Hvað þá? Ertu Elía?`` Hann svarar: ,,Ekki er ég hann.`` ,,Ertu spámaðurinn?`` Hann kvað nei við. |
22. | Þá sögðu þeir við hann: ,,Hver ertu? Vér verðum að svara þeim, er sendu oss. Hvað segir þú um sjálfan þig?`` |
23. | Hann sagði: ,,Ég er rödd hrópanda í eyðimörk: Gjörið beinan veg Drottins, eins og Jesaja spámaður segir.`` |
24. | Sendir voru menn af flokki farísea. |
25. | Þeir spurðu hann: ,,Hvers vegna skírir þú, fyrst þú ert hvorki Kristur, Elía né spámaðurinn?`` |
26. | Jóhannes svaraði: ,,Ég skíri með vatni. Mitt á meðal yðar stendur sá, sem þér þekkið ekki, |
27. | hann, sem kemur eftir mig, og skóþveng hans er ég ekki verður að leysa.`` |
28. | Þetta bar við í Betaníu, handan Jórdanar, þar sem Jóhannes var að skíra. |
29. | Daginn eftir sér hann Jesú koma til sín og segir: ,,Sjá, Guðs lamb, sem ber synd heimsins. |
30. | Þar er sá er ég sagði um: ,Eftir mig kemur maður, sem var á undan mér, því hann er fyrri en ég.` |
31. | Sjálfur þekkti ég hann ekki. En til þess kom ég og skíri með vatni, að hann opinberist Ísrael.`` |
32. | Og Jóhannes vitnaði: ,,Ég sá andann koma af himni ofan eins og dúfu, og hann nam staðar yfir honum. |
33. | Sjálfur þekkti ég hann ekki, en sá er sendi mig að skíra með vatni, sagði mér: ,Sá sem þú sérð andann koma yfir og nema staðar á, hann er sá sem skírir með heilögum anda.` |
34. | Þetta sá ég, og ég vitna, að hann er sonur Guðs.`` |
35. | Daginn eftir var Jóhannes þar aftur staddur og tveir lærisveinar hans. |
36. | Hann sér Jesú á gangi og segir: ,,Sjá, Guðs lamb.`` |
37. | Lærisveinar hans tveir heyrðu orð hans og fóru á eftir Jesú. |
38. | Jesús sneri sér við, sá þá koma á eftir sér og sagði við þá: ,,Hvers leitið þið?`` Þeir svara: ,,Rabbí (það þýðir meistari), hvar dvelst þú?`` |
39. | Hann segir: ,,Komið og sjáið.`` Þeir komu og sáu, hvar hann dvaldist, og voru hjá honum þann dag. Þetta var síðdegis. |
40. | Annar þessara tveggja, sem heyrðu orð Jóhannesar og fóru á eftir Jesú, var Andrés, bróðir Símonar Péturs. |
41. | Hann finnur fyrst bróður sinn, Símon, og segir við hann: ,,Við höfum fundið Messías!`` (Messías þýðir Kristur, Hinn smurði.) |
42. | Hann fór með hann til Jesú. Jesús horfði á hann og sagði: ,,Þú ert Símon Jóhannesson, þú skalt heita Kefas`` (Pétur, það þýðir klettur). |
43. | Næsta dag hugðist Jesús fara til Galíleu. Hann hitti þá Filippus og sagði við hann: ,,Fylg þú mér!`` |
44. | Filippus var frá Betsaídu, sömu borg og Andrés og Pétur. |
45. | Filippus fann Natanael og sagði við hann: ,,Vér höfum fundið þann, sem Móse skrifar um í lögmálinu og spámennirnir, Jesú frá Nasaret, son Jósefs.`` |
46. | Natanael sagði: ,,Getur nokkuð gott komið frá Nasaret?`` Filippus svaraði: ,,Kom þú og sjá.`` |
47. | Jesús sá Natanael koma til sín og sagði við hann: ,,Hér er sannur Ísraelíti, sem engin svik eru í.`` |
48. | Natanael spyr: ,,Hvaðan þekkir þú mig?`` Jesús svarar: ,,Ég sá þig undir fíkjutrénu, áður en Filippus kallaði á þig.`` |
49. | Þá segir Natanael: ,,Rabbí, þú ert sonur Guðs, þú ert konungur Ísraels.`` |
50. | Jesús spyr hann: ,,Trúir þú, af því að ég sagði við þig: ,Ég sá þig undir fíkjutrénu`? Þú munt sjá það, sem þessu er meira.``Og hann segir við hann: ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér munuð sjá himininn opinn og engla Guðs stíga upp og stíga niður yfir Mannssoninn.`` |
51. | Og hann segir við hann: ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér munuð sjá himininn opinn og engla Guðs stíga upp og stíga niður yfir Mannssoninn.`` |
John (1/21) → |