← Job (8/42) → |
1. | Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði: |
2. | Hversu lengi ætlar þú slíkt að mæla og orðin í munni þínum að vera hvass vindur? |
3. | Hallar þá Guð réttinum, eða hallar hinn Almáttki réttlætinu? |
4. | Hafi börn þín syndgað móti honum, þá hefir hann selt þau misgjörð þeirra á vald. |
5. | En ef þú leitar Guðs og biður hinn Almáttka miskunnar _ |
6. | ef þú ert hreinn og einlægur _ já, þá mun hann þegar vakna til að sinna þér og endurreisa bústað þíns réttlætis. |
7. | Þá mun þinn fyrri hagur virðast lítilfjörlegur, en framtíðarhagur þinn vaxa stórum. |
8. | Spyr þú hina fyrri kynslóð og gef þú gaum að reynslu feðranna. |
9. | Vér erum síðan í gær og vitum ekkert, því að skuggi eru dagar vorir á jörðunni. |
10. | En þeir munu fræða þig, segja þér það og bera fram orð úr sjóði hjarta síns: |
11. | ,,Sprettur pappírssefið þar sem engin mýri er? vex störin nema í vatni? |
12. | Enn stendur hún í blóma og verður eigi slegin, en hún skrælnar fyrr en nokkurt annað gras.`` |
13. | Svo fer fyrir hverjum þeim, sem gleymir Guði, og von hins guðlausa verður að engu. |
14. | Athvarf hans brestur sundur, og köngullóarvefur er það, sem hann treystir. |
15. | Hann styðst við hús sitt, en það stendur ekki, hann heldur sér fast í það, en það stenst ekki. |
16. | Hann er safarík skríðandi flétta í sólskini, sem teygir jarðstöngla sína um garðinn |
17. | og vefur rótum sínum um grjóthrúgur og læsir sig milli steinanna. |
18. | En ef hann er upprættur frá stað sínum, þá afneitar staðurinn honum og segir: ,,Ég hefi aldrei séð þig!`` |
19. | Sjá, þetta er öll gleði hans, og aðrir spretta í staðinn upp úr moldinni. |
20. | Sjá, Guð hafnar ekki hinum ráðvanda og heldur ekki í hönd illgjörðamanna. |
21. | Enn mun hann fylla munn þinn hlátri og varir þínar fagnaðarópi.Þeir sem hata þig, munu skömminni klæðast, og tjald hinna óguðlegu mun horfið vera. |
22. | Þeir sem hata þig, munu skömminni klæðast, og tjald hinna óguðlegu mun horfið vera. |
← Job (8/42) → |