← Job (41/42) → |
1. | Getur þú veitt krókódílinn á öngul, getur þú heft tungu hans með snæri? |
2. | Dregur þú seftaug gegnum nasir hans og rekur þú krók gegnum kjálka honum? |
3. | Ætli hann beri fram fyrir þig margar auðmjúkar bænir eða mæli til þín blíðum orðum? |
4. | Mun hann gjöra við þig sáttmála, svo að þú takir hann að ævinlegum þræli? |
5. | Munt þú leika þér að honum eins og litlum fugli og getur þú bundið hann fastan fyrir smámeyjar þínar? |
6. | Manga fiskveiðafélagar um hann, skipta þeir honum meðal kaupmanna? |
7. | Getur þú fyllt húð hans broddum og haus hans skutlum? |
8. | Legg hönd þína á hann _ hugsaðu þér, hvílík viðureign! Þú gjörir það ekki aftur. |
9. | Já, von mannsins bregst, hann fellur þegar flatur fyrir sjóninni einni saman. |
10. | Enginn er svo fífldjarfur, að hann þori að egna hann, _ og hver er þá sá, er þori að ganga fram fyrir mitt auglit? |
11. | Hver hefir að fyrra bragði gefið mér, svo að ég ætti að endurgjalda? Allt sem undir himninum er, það er mitt! |
12. | Ég vil ekki þegja um limu hans, né um styrkleik og fegurð vaxtar hans. |
13. | Hver hefir flett upp skjaldkápu hans að framan, hver fer inn undir tvöfaldan tanngarð hans? |
14. | Hver hefir opnað hliðin að gini hans? Ógn er kringum tennur hans. |
15. | Tignarprýði eru skjaldaraðirnar, lokaðar með traustu innsigli. |
16. | Hver skjöldurinn liggur fast að öðrum, ekkert loft kemst á milli þeirra. |
17. | Þeir eru fastir hver við annan, eru svo samfelldir, að þeir verða eigi skildir sundur. |
18. | Þegar hann hnerrar, standa ljósgeislar úr nösum hans, og augu hans eru sem brágeislar morgunroðans. |
19. | Úr gini hans standa blys, eldneistar ganga fram úr honum. |
20. | Úr nösum hans stendur eimur, eins og upp úr sjóðandi potti, sem kynt er undir með sefgrasi. |
21. | Andi hans kveikir í kolum, og logi stendur úr gini hans. |
22. | Kraftur situr á hálsi hans, og angist stökkur á undan honum. |
23. | Vöðvar holds hans loða fastir við, eru steyptir á hann og hreyfast ekki. |
24. | Hjarta hans er hart sem steinn, já, hart sem neðri kvarnarsteinn. |
25. | Þegar hann stökkur upp, skelfast kapparnir, þeir verða ringlaðir af hræðslu. |
26. | Ráðist einhver að honum með sverði, þá vinnur það eigi á, eigi heldur lensa, skotspjót eða ör. |
27. | Hann metur járnið sem strá, eirinn sem maðksmoginn við. |
28. | Eigi rekur örin hann á flótta, slöngusteinarnir verða hálmur fyrir honum. |
29. | Kylfur metur hann sem hálmstrá, og að hvin spjótsins hlær hann. |
30. | Neðan á honum eru oddhvöss brot, hann markar för í aurinn sem för eftir þreskisleða. |
31. | Hann lætur vella í djúpinu sem í potti, gjörir hafið eins og smyrslaketil. |
32. | Aftur undan honum er ljósrák, ætla mætti, að sjórinn væri silfurhærur. |
33. | Enginn er hans maki á jörðu, hans sem skapaður er til þess að kunna ekki að hræðast.Hann lítur niður á allt hátt, hann er konungur yfir öllum drembnum dýrum. |
34. | Hann lítur niður á allt hátt, hann er konungur yfir öllum drembnum dýrum. |
← Job (41/42) → |