← Job (40/42) → |
1. | Og Drottinn mælti til Jobs og sagði: |
2. | Vill ámælismaðurinn þrátta við hinn Almáttka? Sá er sakir ber á Guð, svari hann þessu! |
3. | Þá svaraði Job Drottni og sagði: |
4. | Sjá, ég er of lítilmótlegur, hverju á ég að svara þér? Ég legg hönd mína á munninn. |
5. | Einu sinni hefi ég talað, og endurtek það eigi, _ tvisvar, og gjöri það ekki oftar. |
6. | Þá svaraði Drottinn Job úr stormviðrinu og sagði: |
7. | Gyrð lendar þínar eins og maður. Ég mun spyrja þig, og þú skalt fræða mig. |
8. | Ætlar þú jafnvel að gjöra rétt minn að engu, dæma mig sekan, til þess að þú standir réttlættur? |
9. | Hefir þú þá armlegg eins og Guð, og getur þú þrumað með slíkri rödd sem hann? |
10. | Skrýð þig vegsemd og tign, íklæð þig dýrð og ljóma! |
11. | Lát úthellast strauma reiði þinnar og varpa til jarðar með einu tilliti sérhverjum dramblátum. |
12. | Auðmýk þú sérhvern dramblátan með einu tilliti, og troð þú hina óguðlegu niður þar sem þeir standa. |
13. | Byrg þú þá í moldu alla saman, loka andlit þeirra inni í myrkri, |
14. | þá skal ég líka lofa þig, fyrir það að hægri hönd þín veitir þér fulltingi. |
15. | Sjá, nykurinn sem ég hefi skapað eins og þig, hann etur gras eins og naut. |
16. | Sjá, kraftur hans er í lendum hans og afl hans í kviðvöðvunum. |
17. | Hann sperrir upp stertinn eins og sedrustré, lærsinar hans eru ofnar saman. |
18. | Leggir hans eru eirpípur, beinin eins og járnstafur. |
19. | Hann er frumgróði Guðs verka, sá er skóp hann, gaf honum sverð hans. |
20. | Fjöllin láta honum grasbeit í té, og þar leika sér dýr merkurinnar. |
21. | Hann liggur undir lótusrunnum í skjóli við reyr og sef. |
22. | Lótusrunnarnir breiða skugga yfir hann, lækjarpílviðirnir lykja um hann. |
23. | Sjá, þegar vöxtur kemur í ána, skelfist hann ekki, hann er óhultur, þótt fljót belji á skolti hans.Getur nokkur veitt hann með því að ganga framan að honum, getur nokkur dregið taug gegnum nasir hans? |
24. | Getur nokkur veitt hann með því að ganga framan að honum, getur nokkur dregið taug gegnum nasir hans? |
← Job (40/42) → |