← Job (38/42) → |
1. | Þá svaraði Drottinn Job úr stormviðrinu og sagði: |
2. | Hver er sá, sem myrkvar ráðsályktun Guðs með óskynsamlegum orðum? |
3. | Gyrð lendar þínar eins og maður, þá mun ég spyrja þig, og þú skalt fræða mig. |
4. | Hvar varst þú, þegar ég grundvallaði jörðina? Seg fram, ef þú hefir þekkingu til. |
5. | Hver ákvað mál hennar _ þú veist það! _ eða hver þandi mælivaðinn yfir hana? |
6. | Á hvað var stólpum hennar hleypt niður, eða hver lagði hornstein hennar, |
7. | þá er morgunstjörnurnar sungu gleðisöng allar saman og allir guðssynir fögnuðu? |
8. | Og hver byrgði hafið inni með hurðum, þá er það braust fram, gekk út af móðurkviði, |
9. | þá er ég fékk því skýin að klæðnaði og svartaþykknið að reifum? |
10. | þá er ég braut því takmörk og setti slagbranda fyrir og hurðir |
11. | og mælti: ,,Hingað skaltu komast og ekki lengra, hér skulu þínar hreyknu hrannir brotna!`` |
12. | Hefir þú nokkurn tíma á ævi þinni boðið út morgninum, vísað morgunroðanum á stað hans, |
13. | til þess að hann gripi í jaðar jarðarinnar og hinir óguðlegu yrðu hristir af henni? |
14. | Hún breytist eins og leir undir signeti, og allt kemur fram eins og á klæði. |
15. | Og hinir óguðlegu verða sviptir ljósinu og hinn upplyfti armleggur sundur brotinn. |
16. | Hefir þú komið að uppsprettum hafsins og gengið á botni undirdjúpsins? |
17. | Hafa hlið dauðans opnast fyrir þér og hefir þú séð hlið svartamyrkursins? |
18. | Hefir þú litið yfir breidd jarðarinnar? Seg fram, fyrst þú veist það allt saman. |
19. | Hvar er vegurinn þangað sem ljósið býr, og myrkrið _ hvar á það heima, |
20. | svo að þú gætir flutt það heim í landareign þess og þekktir göturnar heim að húsi þess? |
21. | Þú veist það, því að þá fæddist þú, og tala daga þinna er há! |
22. | Hefir þú komið til forðabúrs snjávarins og séð forðabúr haglsins, |
23. | sem ég hefi geymt til tíma neyðarinnar, til orustu- og ófriðardagsins? |
24. | Hvar er vegurinn þangað sem ljósið skiptist og austanvindurinn dreifist yfir jörðina? |
25. | Hver hefir búið til rennu fyrir steypiregnið og veg fyrir eldingarnar |
26. | til þess að láta rigna yfir mannautt land, yfir eyðimörkina, þar sem enginn býr, |
27. | til þess að metta auðnir og eyðilönd og láta grængresi spretta? |
28. | Á regnið föður eða hver hefir getið daggardropana? |
29. | Af kviði hverrar er ísinn útgenginn, og hrím himinsins _ hver fæddi það? |
30. | Vötnin þéttast eins og steinn, og yfirborð fljótsins verður samfrosta. |
31. | Getur þú þrengt sjöstirnis-böndin eða fær þú leyst fjötra Óríons? |
32. | Lætur þú stjörnumerki dýrahringsins koma fram á sínum tíma og leiðir þú Birnuna með húnum hennar? |
33. | Þekkir þú lög himinsins eða ákveður þú yfirráð hans yfir jörðunni? |
34. | Getur þú lyft raust þinni upp til skýsins, svo að vatnaflaumurinn hylji þig? |
35. | Getur þú sent eldingarnar, svo að þær fari og segi við þig: ,,Hér erum vér!`` |
36. | Hver hefir lagt vísdóm í hin dimmu ský eða hver hefir gefið loftsjónunum vit? |
37. | Hver telur skýin með visku, og vatnsbelgir himinsins _ hver hellir úr þeim, |
38. | þegar moldin rennur saman í kökk og hnausarnir loða hver við annan? |
39. | Veiðir þú bráðina fyrir ljónynjuna, og seður þú græðgi ungljónanna, |
40. | þá er þau kúra í bæli sínu og vaka yfir veiði í þéttum runni?Hver býr hrafninum fæðu hans, þá er ungar hans hrópa til Guðs, flögra til og frá ætislausir? |
41. | Hver býr hrafninum fæðu hans, þá er ungar hans hrópa til Guðs, flögra til og frá ætislausir? |
← Job (38/42) → |