| ← Job (36/42) → |
| 1. | Og Elíhú hélt áfram og sagði: |
| 2. | Haf þolinmæði við mig enn stutta stund, að ég megi fræða þig, því að enn má margt segja Guði til varnar. |
| 3. | Ég ætla að sækja þekking mína langar leiðir og sanna, að skapari minn hafi á réttu að standa. |
| 4. | Því að vissulega fer ég eigi með ósannindi, maður með fullkominni þekking stendur frammi fyrir þér. |
| 5. | Sjá, Guð er voldugur, þó fyrirlítur hann engan, voldugur að andans krafti. |
| 6. | Hann viðheldur ekki lífi hins óguðlega, en veitir hinum voluðu rétt þeirra. |
| 7. | Hann hefir ekki augun af hinum réttláta, og hjá konungum í hásætinu lætur hann þá sitja að eilífu, til þess að þeir séu hátt upp hafnir. |
| 8. | Og þótt þeir verði viðjum reyrðir, veiddir í snörur eymdarinnar, |
| 9. | og hann setur þeim fyrir sjónir gjörðir þeirra og afbrot þeirra að þeir breyttu drambsamlega, |
| 10. | og hann opnar eyru þeirra fyrir umvönduninni og segir að þeir skuli snúa sér frá ranglæti, _ |
| 11. | ef þeir þá hlýða og þjóna honum, þá eyða þeir dögum sínum í velgengni og árum sínum í unaði. |
| 12. | En hlýði þeir ekki, þá farast þeir fyrir skotvopnum, gefa upp andann í vanhyggju sinni. |
| 13. | Því að vonskufullir í hjarta ala þeir með sér reiði, hrópa eigi á hjálp, þegar hann fjötrar þá. |
| 14. | Önd þeirra deyr í æskublóma og líf þeirra eins og hórsveina. |
| 15. | En hann frelsar hinn bágstadda með bágindum hans og opnar eyru þeirra með þrengingunni. |
| 16. | Einnig þig ginnir hann út úr gini neyðarinnar út á víðlendi, þar sem engin þrengsli eru, og það sem kemur á borð þitt, er fullt af feiti. |
| 17. | En ef þú vinnur til dóms hins óguðlega, þá munu dómur og réttur hremma þig. |
| 18. | Lát því eigi reiðina ginna þig til spotts, og lát eigi stærð lausnargjaldsins tæla þig. |
| 19. | Mun hróp þitt koma þér úr nauðunum eða nokkur áreynsla krafta þinna? |
| 20. | Þráðu eigi nóttina, þá er þjóðir sópast burt af stöðvum sínum. |
| 21. | Gæt þín, snú þér eigi að ranglæti, því að það kýst þú heldur en að líða. |
| 22. | Sjá, Guð er háleitur í framkvæmdum máttar síns, hver er slíkur kennari sem hann? |
| 23. | Hver hefir fyrirskipað honum veg hans, og hver dirfist að segja: ,,Þú hefir gjört rangt``? |
| 24. | Minnstu þess, að þú vegsamir verk hans, það er mennirnir syngja um lofkvæði. |
| 25. | Allir menn horfa með fögnuði á það, dauðlegur maðurinn lítur það úr fjarska. |
| 26. | Já, Guð er mikill og vér þekkjum hann ekki, tala ára hans órannsakanleg. |
| 27. | Því að hann dregur upp vatnsdropana og lætur ýra úr þoku sinni, |
| 28. | regnið, sem skýin láta niður streyma, drjúpa yfir marga menn. |
| 29. | Og hver skilur útbreiðslu skýjanna og dunurnar í tjaldi hans? |
| 30. | Sjá, hann breiðir ljós sitt út kringum sig og hylur djúp hafsins. |
| 31. | Því að með því dæmir hann þjóðirnar, með því veitir hann fæðu í ríkum mæli. |
| 32. | Hendur sínar hylur hann ljósi og býður því út gegn fjandmanni sínum.Þruma hans boðar komu hans, hans sem lætur reiði sína geisa gegn ranglætinu. |
| 33. | Þruma hans boðar komu hans, hans sem lætur reiði sína geisa gegn ranglætinu. |
| ← Job (36/42) → |