← Job (35/42) → |
1. | Og Elíhú tók enn til máls og sagði: |
2. | Hyggur þú það vera rétt, kallar þú það ,,réttlæti mitt fyrir Guði,`` |
3. | að þú spyr, hvað það stoði þig? ,,Hvaða gagn hefi ég af því, fremur en ef ég syndgaði?`` |
4. | Ég ætla að veita þér andsvör í móti og vinum þínum með þér. |
5. | Horf þú á himininn og sjá, virtu fyrir þér skýin, sem eru hátt yfir þér. |
6. | Syndgir þú, hvað getur þú gjört honum? Og séu afbrot þín mörg, hvaða skaða gjörir þú honum? |
7. | Sért þú ráðvandur, hvað gefur þú honum, eða hvað þiggur hann af þinni hendi? |
8. | Mann, eins og þig, varðar misgjörð þín og mannsins barn ráðvendni þín. |
9. | Menn æpa að sönnu undan hinni margvíslegu kúgan, kveina undan armlegg hinna voldugu, |
10. | en enginn þeirra segir: ,,Hvar er Guð, skapari minn, sá er leiðir fram lofsöngva um nótt, |
11. | sem fræðir oss meira en dýr merkurinnar og gjörir oss vitrari en fugla loftsins?`` |
12. | Þá æpa menn _ en hann svarar ekki _ undan drambsemi hinna vondu. |
13. | Nei, hégómamál heyrir Guð eigi, og hinn Almáttki gefur því engan gaum, |
14. | hvað þá, er þú segir, að þú sjáir hann ekki. Málið er lagt fram fyrir hann, og þú átt að bíða eftir honum. |
15. | En nú, af því að reiði hans hefir eigi refsað, á hann alls eigi að hafa vitað neitt um yfirsjónina!En Job opnar munninn til að mæla hégóma, heldur langar ræður í vanhyggju sinni. |
16. | En Job opnar munninn til að mæla hégóma, heldur langar ræður í vanhyggju sinni. |
← Job (35/42) → |