← Job (34/42) → |
1. | Og Elíhú tók aftur til máls og sagði: |
2. | Heyrið, þér vitrir menn, orð mín, og þér fróðir menn, hlustið á mig. |
3. | Því að eyrað prófar orðin, eins og gómurinn smakkar matinn. |
4. | Vér skulum rannsaka, hvað rétt er, komast að því hver með öðrum, hvað gott er. |
5. | Því að Job hefir sagt: ,,Ég er saklaus, en Guð hefir svipt mig rétti mínum. |
6. | Þótt ég hafi rétt fyrir mér, stend ég sem lygari, banvæn ör hefir hitt mig, þótt ég hafi í engu brotið.`` |
7. | Hvaða maður er eins og Job, sem drekkur guðlast eins og vatn |
8. | og gefur sig í félagsskap við þá, sem illt fremja, og er í fylgi við óguðlega menn? |
9. | Því að hann hefir sagt: ,,Maðurinn hefir ekkert gagn af því að vera í vinfengi við Guð.`` |
10. | Fyrir því, skynsamir menn, heyrið mig! Fjarri fer því, að Guð aðhafist illt og hinn Almáttki fremji ranglæti. |
11. | Nei, hann geldur manninum verk hans og lætur manninum farnast eftir breytni hans. |
12. | Já, vissulega fremur Guð ekki ranglæti, og hinn Almáttki hallar ekki réttinum. |
13. | Hver hefir fengið honum jörðina til varðveislu, og hver hefir grundvallað allan heiminn? |
14. | Ef hann hugsaði aðeins um sjálfan sig, ef hann drægi til sín anda sinn og andardrátt, |
15. | þá mundi allt hold gefa upp andann og maðurinn aftur verða að dufti. |
16. | Hafir þú vit, þá heyr þú þetta, hlusta þú á hljóm orða minna. |
17. | Getur sá stjórnað, sem hatar réttinn? Eða vilt þú dæma hinn réttláta, volduga? |
18. | þann sem segir við konunginn: ,,Þú varmenni!`` við tignarmanninn: ,,Þú níðingur!`` |
19. | sem ekki dregur taum höfðingjanna og gjörir ekki ríkum hærra undir höfði en fátækum, því að handaverk hans eru þeir allir. |
20. | Skyndilega deyja þeir, og það um miðja nótt, fólkið verður skelkað, og þeir hverfa, og hinn sterki er hrifinn burt, en eigi af manns hendi. |
21. | Því að augu Guðs hvíla yfir vegum hvers manns, og hann sér öll spor hans. |
22. | Ekkert það myrkur er til eða sú niðdimma, að illgjörðamenn geti falið sig þar. |
23. | Því að Guð þarf ekki fyrst að gefa manni gaum, til þess að hann komi fyrir dóm hans. |
24. | Hann brýtur hina voldugu sundur rannsóknarlaust og setur aðra í þeirra stað. |
25. | Þannig þekkir hann verk þeirra og steypir þeim um nótt, og þeir verða marðir sundur. |
26. | Hann hirtir þá sem misgjörðamenn í augsýn allra manna, |
27. | vegna þess að þeir hafa frá honum vikið og vanrækt alla vegu hans |
28. | og látið kvein hins fátæka berast til hans, en hann heyrði kvein hinna voluðu. |
29. | Haldi hann kyrru fyrir, hver vill þá sakfella hann? og byrgi hann auglitið, hver fær þá séð hann? Þó vakir hann yfir þjóð og einstaklingi, |
30. | til þess að guðlausir menn skuli ekki drottna, til þess að þeir séu ekki snörur lýðsins. |
31. | Því að segir nokkur við Guð: ,,Mér hefir verið hegnt og breyti þó ekki illa. |
32. | Kenn þú mér það, sem ég sé ekki. Hafi ég framið ranglæti, skal ég eigi gjöra það framar``? |
33. | Á hann að endurgjalda eftir geðþótta þínum, af því að þú hafnar? því að þú átt að velja, en ekki ég. Og seg nú fram það, er þú veist! |
34. | Skynsamir menn munu segja við mig, og vitur maður, sem á mig hlýðir: |
35. | ,,Job talar ekki hyggilega, og orð hans eru ekki skynsamleg.`` |
36. | Ó að Job mætti reyndur verða æ að nýju, af því að hann svarar eins og illir menn svara.Því að hann bætir misgjörð ofan á synd sína, hann klappar saman höndunum framan í oss og heldur langar ræður móti Guði. |
37. | Því að hann bætir misgjörð ofan á synd sína, hann klappar saman höndunum framan í oss og heldur langar ræður móti Guði. |
← Job (34/42) → |